Morgunblaðið - 01.02.2020, Page 48
Útsala
Lokadagar
afsláttur af öllum
vörum
50%
Kór Langholtskirkju flytur Nátt-
söngva eftir Sergej Rakhmanínov
undir stjórn Magnúsar Ragnars-
sonar í Langholtskirkju í dag kl. 16.
Verkið telst eitt glæsilegasta tón-
verk rússnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar. Það er samið fyrir fjögurra
til ellefu radda kór án undirleiks
og skiptist í fimmtán kafla. Það
tekur um klukkutíma í flutningi
og er ókeypis inn á tónleikana.
Flytja Náttsöngva
Rakhmanínovs í dag
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 32. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Daníel Freyr Andrésson, markvörð-
ur Vals í Olísdeild karla í handknatt-
leik, er á leið til Svíþjóðar í sumar.
Hann hefur samið við Guif í Eskils-
tuna um að leika með liðinu á
næsta tímabili. „Þetta kom inn á
borð til mín fyrir nokkrum vikum,“
segir Daníel meðal annars í samtali
við Morgunblaðið í dag en hann
leikur með Val fram á vorið. »41
Daníel Freyr heldur
aftur til Svíþjóðar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Nemendur sem voru í Mýrarhúsa-
skóla á Seltjarnarnesi fyrir um hálfri
öld hafa ákveðið að dusta rykið af
minningunum og boða til dansleiks í
Félagsheimili Seltjarnarness laugar-
daginn 8. febrúar. „Þetta er í fyrsta
sinn sem haldið er sérstakt ball fyrir
nemendur í tilteknum árgöngum
skólans, en margir hafa líklega ekki
sést í yfir 50 ár,“ segir Margrét
Guðnadóttir. Hún er í undirbúnings-
nefnd skemmtunarinnar ásamt Ernu
Jóhannsdóttur og Meyvant Þórólfs-
syni.
Nemendur einstakra bekkja hafa
áður komið saman eins og gengur en
þetta er í fyrsta sinn sem dans-
skemmtun er skipulögð fyrir ár-
ganga skólans og er miðað við nem-
endur sem fæddust 1948-1957.
„Meyvant átti hugmyndina og þegar
ég tók vel í hana og fékk sauma-
klúbbinn minn til liðs við okkur fór
boltinn að rúlla,“ segir Margrét um
undirbúninginn, sem hófst í haust.
„Við höfum fundið fyrir miklum
áhuga og það er augljóst að fólki
finnst spennandi að hitta fyrrverandi
bekkjar- og skólafélaga.“
Mikil breyting
Þegar þessir krakkar voru í skól-
anum voru fáir íbúar á Seltjarnar-
nesi. „Mýrarhúsaskóli var fámennur
sveitaskóli og margir áttu heima í
húsum sem hétu eitthvað,“ segir
Margrét. „Ég átti heima á Sólbergi,
Meysi á Eiði, vinkona mín á Ökrum
og önnur í Sindra. Mörg heimilin, sér
í lagi austan Valhúsahæðar, voru eins
og bæir í sveit og nemendur gjarnan
nefndir eftir húsum sínum.“ Hún
bætir við að Seltjarnarnes hafi
breyst mikið, en eftir standi að fáir
hafi verið í hverjum árgangi og því
hafi þau ákveðið að halda sameigin-
legt ball fyrir tíu árganga. „Við feng-
um fulltrúa í hverjum árgangi til þess
að vera tengiliðir við bekkina og ekki
veitti af því fólk hefur dreifst víða á
löngum tíma.“
Smáréttir verða innifaldir í að-
göngumiðanum og hljómsveitin Bít-
ilbræður leikur fyrir dansi en hana
skipa Guðjón B. Hilmarsson á
trommur, Þórólfur Guðnason á
bassa, Ársæll Másson á gítar, Mey-
vant Þórólfsson á gítar og Sveinn
Guðjónsson hljómborðsleikari. Helga
M. Steinsson, sem einnig var nem-
andi við skólann, kemur austan frá
Neskaupstað til þess að syngja með
bandinu. Margrét segir að fulltrúar
hvers árgangs muni segja sögur frá
sínum bekk eða árgangi og síðast en
ekki síst verði gleðin í fyrirrúmi.
Húsið verður opnað klukkan 19.15
og skemmtunin hefst með fordrykk
stundarfjórðungi síðar. Skráning og
upplýsingar um miðasöluna eru á
heimasíðunni ernaej.com, en undir-
búningsnefndin (ernaej@gmail.com,
margretgu@internet.is og mey-
vantth@gmail.com) veitir allar frek-
ari upplýsingar.
Tímamótaskemmtun
á Seltjarnarnesi
Morgunblaðið/RAX
Nefndin Erna Jóhannsdóttir, Meyvant Þórólfsson og Margrét Guðnadóttir.
Fyrsti árgangadansleikur Mýrarhúsaskóla handan við hornið
Ljósmynd/Lilja Ársælsdóttir
Bítilbræður Helga M. Steinsson, Meyvant Þórólfsson, Ársæll Másson, Guðjón
B. Hilmarsson, Sveinn Guðjónsson og Þórólfur Guðnason, Mýrarhúsaskóla.
Boðið er upp á þrenna tónleika í
Kaldalóni Hörpu í dag fyrir börn á
tónlistarhátíðinni Myrkrabörnum
sem haldin er samhliða Myrkum
músíkdögum. Klukkan 14 flytja
Aurora og eldri stúlkurnar í
Stúlknakór Reykjavíkur tónlist eftir
m.a. Jórunni Viðar og Hildi Guðna-
dóttur. Klukkan 15 stiklar Tinna
Þorsteinsdóttir á stóru og smáu í
dótapíanótónlistarsög-
unni. Klukkan 16
bregða Hallveig Rún-
arsdóttir sópran, Jón
Svavar Jósefsson
barítón og Hrönn
Þráinsdóttir pí-
anóleikari á
leik. Aðgangur
er ókeypis á
alla tónleika.
Myrkrabörn með
þrenna tónleika