Morgunblaðið - 15.02.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2020
Andríki fjallaði á dögunum umráðningar hins opinbera og
rifjaði upp að nýverið hefðu bæði
borg og ríki samið um „háar
greiðslur við umsækjendur um
starf borgarlög-
manns og þjóð-
garðsvarðar á
Þingvöllum. Ekki
þó um laun fyrir
sjálft starfið
heldur um millj-
ónir í bætur fyrir
að hafa ekki verið ráðnir til starf-
ans. Í bæði skiptin hafði kærunefnd
jafnréttismála talið að brotið hefði
verið á umsækjendum.“
Andríki bendir á að í bæði skipt-in „fór kærunefndin í algeran
sparðatíning til að komast að niður-
stöðu um brot. Annars vegar var
eitthvert huglægt mat ekki skrifað
nægilega niður. Hins vegar var of
mikið sett á blað um hvor umsækj-
andi væri flinkari í Norðurlanda-
máli.“
Þá segir Andríki: „Öllum má veraljóst að búið er að gera ótrú-
legan leikþátt úr ráðningum hjá
hinu opinbera. Það er látið eins og
hægt sé að slá því föstu með vís-
indalegri nákvæmni hver sé hæf-
astur úr stórum hópi umsækjenda
til að gegna starfi. Á sviðið streyma
sérfræðingar í hæfnisnefndum og
ráðgjafarfyrirtækjum. Umsækj-
endur eru settir í Excel-skjöl til að
ljá leiknum faglegt yfirbragð. Þá
sjaldan sem slík skjöl koma fyrir
augu almennings reynast þau ævin-
týraleg hrákasmíð manna sem
kunna hvorki á töflureikni né að
leggja saman tölur.“
Það er auðvitað löngu tímabærtfyrir hið opinbera að hætta
þessum leikaraskap og færa völdin
frá óþekktu embættis- og nefndar-
mönnunum aftur í hendur þeirra
sem hægt er að láta sæta ábyrgð,
þ.e. kjörinna fulltrúa.
Völd og ábyrgð
fari saman
STAKSTEINAR
S. 414 7000 · Glæsibær / Vesturhús, 2. hæð · 104 Reykjavík · www.augljos.is
Það gleður okkur
að tilkynna að
Elva Dögg Jóhannesdóttir
augnlæknir hefur
hafið störf á
augnlæknastofunni
Augljósi
Tímapantanir í síma
414 7000
Elva Dögg Jóhannesdóttir
Augnlæknir
Tilkynning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég hef ekkert á móti því að Hæsti-
réttur fjalli um þetta mál. Það eina
sem ég hef áhyggjur af í því sam-
bandi er að dómurinn sem fjalli um
þetta verði hlutlaust skipaður,“ segir
Jón Steinar Gunnlaugsson, fv.
hæstaréttardómari, og rökstyður
mál sitt: „Ástæða þess að ég hef
áhyggjur af því er auðvitað sú að
andstæðingur
minn, eða gagn-
aðili í þessu máli,
er sjálfur dómari
í Hæstarétti og
formaður Dóm-
stólasýslunnar,“
segir Jón Steinar
og vísar til Bene-
dikts Bogasonar.
Fram kom í
Morgunblaðinu í
gær að Hæstiréttur hefði samþykkt
umsókn Benedikts um leyfi til að
áfrýja dómi Landsréttar í meiðyrða-
máli gegn Jóni Steinari. Dómur
Landsréttar féll í nóvember en þar
var Jón Steinar sýknaður.
Vinnubrögðin vekja ekki traust
„Þar að auki hef ég orðið var við
vinnubrögð Benedikts í tengslum við
rekstur þessa máls sem eru tor-
tryggileg,“ segir Jón Steinar.
Spurður hvort það sé ekki alvöru-
mál ef fyrrverandi hæstaréttardóm-
ari hafi áhyggjur af því að fá ekki
réttláta málsmeðferð fyrir Hæsta-
rétti svarar Jón Steinar að búast
megi við því. Hann hafi hins vegar
fyllstu ástæðu til að hafa þær
áhyggjur. Þá til dæmis með hliðsjón
af framgöngu Benedikts í málinu
fram að þessu.
Ekki liggur fyrir hvenær áfrýjun-
in kemur til kasta Hæstaréttar.
Efast um hlutleysi Hæstaréttar
Fv. hæstaréttardómari ræðir áfrýjun Benedikts Bogasonar í meiðyrðamáli
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Elísabet Guðný Her-
mannsdóttir lést á
hjúkrunarheimilinu
Sóltúni 8. febrúar síð-
astliðinn. Hún var
fædd 16. júní 1928,
dóttir þeirra Guðnýjar
Vigfúsdóttur (1893-
1984) og Hermanns
Vilhjálmssonar (1984-
1967). Systkini El-
ísabetar voru Sigrún,
Ragnar Sigurður,
Björg, Elísabet og
Erna, sem ein er eft-
irlifandi.
Elísabet giftist 15.
janúar 1955 Indriða Pálssyni lög-
fræðingi, f. 15.12. 1927, d. 13.5. 2015.
Hann var lengi forstjóri Olíufélags-
ins Skeljungs auk þess að gegna
fjölmörgum öðrum félags- og trún-
aðarstörfum. Foreldrar Indriða voru
Sigríður Indriðadóttir (1900-1935) og
Páll Ásgrímsson (1892-1978).
Börn Elísabetar og Indriða eru:
1) Sigríður kennari f. 13.2. 1956,
maki Margeir Pétursson lögfræð-
ingur. Dóttir þeirra er Elísabet, f.
1985. 2) Einar Páll læknir, f. 8.5.
1963, maki Halla Halldórsdóttir
læknir. Börn þeirra eru Indriði, f.
1992, Halldór, f. 1996 og Ingibjörg,
f. 1999.
Elísabet varð gagn-
fræðingur frá
Menntaskólanum á
Akureyri 1948. Hún
vann ýmis skrif-
stofustörf á Seyð-
isfirði 1943-1947 og í
Reykjavík 1949-1956.
Elísabet var félagi í
Inner Wheel og var
gjaldkeri þar um
skeið. Hún gekk í
Kvenfélagið Hringinn
1974 og naut sín þar
mjög vel. Hún var for-
maður Hringsins frá
1991 til 1999. For-
mannsár sín í kvenfélaginu sat hún
í stjórn Byggingarsjóðs nýs barna-
spítala. Einnig átti hún sæti í rík-
isskipaðri byggingarnefnd Barna-
spítala Hringsins 1994-1999.
Eftir andlát Indriða fluttist El-
ísabet á hjúkrunarheimilið Sóltún í
Reykjavík þar sem hún naut mjög
góðrar aðhlynningar starfsfólks.
Elísabet var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1994 fyr-
ir störf sín að heilbrigðismálum
barna.
Útför Elísabetar fer fram frá
Háteigskirkju næstkomandi
fimmtudag, 20. febrúar, og hefst
athöfnin klukkan 13.
Andlát
Elísabet Guðný
Hermannsdóttir