Morgunblaðið - 15.02.2020, Page 13
Í HENDI?
Samið hefur verið um kjör 97% starfsfólks á almennum vinnumarkaði og félagsmanna
18 af 19 aðildarfélögum SGS sem starfa hjá sveitarfélögum um land allt.
Lægstu laun hækka hlutfallslega mest, eða um 90 þúsund krónur á mánuði á samnings-
tímanum.
Lífskjarasamningurinn hefur skilað ríkulegum ávinningi. Verðbólga er mjög lítil og vextir
hafa ekki verið lægri í 70 ár. Ráðstöfunartekjur skuldsettra heimila aukast vegna lægri
vaxta og mögulegrar endurfjármögnunar lána.
Lækkun tekjuskatts á lægri tekjur hefur tryggt lágtekjufólki auknar ráðstöfunartekjur um
allt að 10 þúsund krónur á mánuði.
Lífskjarasamningurinn stuðlar að styttri og sveigjanlegri vinnutíma sem tekur mið af
mismunandi þörfum fólks og fyrirtækja.
Framlag ríkisstjórnarinnar felst í því að á næstu misserum verður fjárfest í framtíðinni fyrir
80 milljarða króna. Mestu skiptir lenging fæðingarorlofs, lækkun tekjuskatts, hækkun
barnabóta og lausnir í húsnæðismálum. Aðgerðirnar gagnast best ungu og tekjulágu fólki.
Aðalatriðið er að launin verða verðmætari og meira fæst fyrir þau vegna jákvæðra
breytinga sem samkomulag náðist um milli samtaka launafólks, atvinnulífs og stjórnvalda.
Lífskjarasamningurinn er lykill að betri kjörum landsmanna.
Hagur heimilanna hefur batnað og verðbólgan er horfin