Morgunblaðið - 07.03.2020, Blaðsíða 1
Ætla að ljúka lífsverkinu
Mun lesahugsanir
Eftir 46 ára starf kveður ljós-
myndarinn Ragnar Axelsson,
RAX, Morgunblaðið til að sinna
köllun sinni af fullum þunga;
að mynda lífið á norðurslóðum
í sinni fjölbreyttustu mynd.Hann er þakklátur fyrir áriná blaðinu og kveðst alltafhafa gert sitt besta í harðrisamkeppni við aðra miðlaenda þolir hann ekki að tapa. 12
8. MARS 2020SUNNUDAGUR
Vildi búa í gömlu húsi
Ingó Geirdasegist fá útrfyrir sköpunarþörfina serokkari ogtöframaður.Á sýninguí Salnummun hanngleypa rak-vélablöð oglesa hugsan2
Í íbúð UnuMargrétarJónsdótturkennir margragrasa. 18
Skjárinn
ræður
Pálmi Gestsson leikur íÚtsendingu og segir hannboðskapinn aldrei hafa átt
eins vel við og nú þegar fólki
er stjórnað af fjölmiðlum ogsamfélagsmiðlum. 8
l
ás
-
m
ir.
L A U G A R D A G U R 7. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 57. tölublað 108. árgangur
+ www.audi.is
PERSÓNULEG-
ASTA SÝNINGIN
TIL ÞESSA
SAKAMANNA-
LÝSINGAR
MERK HEIMILD
SÝNING Á ÞINGVÖLLUM 12BRÚÐUVEISLA 50
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það má í sjálfu sér segja að þessi
þróun hafi verið fyrirséð,“ sagði
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð-
herra við Morgunblaðið þegar hún
var spurð um fyrsta smit kórónuveir-
unnar innanlands, sem greint var frá í
gær. Hún sagði að búist hefði verið
við því að þetta gerðist.
„Við erum reiðubúin í þann kafla.
Það þarf að fara bæði í smitrakningu
og aðrar aðgerðir sem þessu fylgja
auk þess sem almannavarnastigið var
sett á neyðarstig,“ sagði Svandís.
Samkvæmt 12. grein sóttvarnalaga
ákveður heilbrigðisráðherra hvort
grípa skuli til opinberra sóttvarnaráð-
stafana, eins og t.d. samkomubanns
eða samgöngubanns. Er verið að
skoða slíkt?
„Heilbrigðisráðherra gerir þetta að
fenginni tillögu sóttvarnalæknis. Slík
tillaga hefur ekki verið lögð fram,“
sagði Svandís. Hún kvaðst vera dag-
lega í sambandi við sóttvarnalækni og
stjórnstöð almannavarna. Staðan
væri metin frá degi til dags og hingað
til hefði ekki verið talin ástæða til að
setja slíkt bann. Þó kynni að koma til
þess.
Undanþágunefndir Sameykis og
Sjúkraliðafélagsins féllust í gær á
beiðnir Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins og Landspítala um undan-
þágu allra starfsmanna vegna boðaðs
verkfalls 9. og 10. mars. Svandís
kvaðst vona að samningar næðust og
sagði að sér hefði heyrst að skýr vilji
væri beggja vegna borðsins til að
klára málið. „Við vonum að það gangi
eftir,“ sagði Svandís.
Farsóttanefnd Landspítalans
ákvað í gær að loka öllum legudeild-
um spítalans fyrir gestum, nema í
sérstökum undantekningartilfellum.
Hjúkrunar- og dvalarheimili hafa
einnig tekið upp almennt heimsókna-
bann til að vernda íbúa sína fyrir
smiti. Það á t.d. við um öll Hrafnistu-
heimilin, Droplaugarstaði og Grund.
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar
virkjaði í gær viðbragðsáætlun
borgarinnar fyrir neyðarstig. Vel-
ferðarsvið borgarinnar mun loka
starfsstöðum og starfseiningum sem
viðkvæmir einstaklingar sækja.
Neyðarstig vegna veirunnar
Kórónuveirusmit á milli fólks hér á landi Þróunin var fyrirséð, segir heilbrigðisráðherra Tillaga um
samkomubann hefur ekki verið lögð fram Undanþágur hjá heilsugæslu og Landspítala vegna boðaðs verkfalls
Morgunblaðið/Eggert
Mikill viðbúnaður vegna kórónuveirusmitsins
Neyðarstig almannavarna tók gildi í gær er ljóst var að nýja kórónuveiran var farin að smitast milli manna innanlands. Veiran veldur sjúkdómnum
COVID-19. Fyrstu innlendu smitin, fyrst tvö og svo önnur tvö, voru staðfest í gær og greindust alls átta ný tilfelli. Þar með voru smitin orðin alls 45.
Helmingur tilfella sem greindust í gær tengdist fólki sem var á ferðalagi á skíðasvæðum á Ítalíu og í Austurríki. Í gær var búið að taka um 400 sýni vegna
gruns um smit. Daglegir blaðamannafundir vegna kórónuveirunnar eru haldnir í Samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð í Reykjavík.
45
staðfest tilfelli
kórónuveirusmits
á Íslandi
4
smituðust innanlands
Um 400
einstaklingar í sóttkví
og einangrun
Öll smit
innanlands rakin til
samskipta við fólk
sem dvalið hefur á
Ítalíu eðaAusturríki
KÓRÓNUVEIRU-
FARALDUR
Áætluð þróun um fjölda kórónuvírussmita
8
4 innlend smit, eða alls
45 staðfest smit*
Fjöldi smita ef ekki er gripið til aðgerða
Áætluð þróun m.v. þær aðgerðir sem nú standa yfir
ný tilfelli greindust
í gær, þar af
Fjöldi smita
Tími2-3 mánuðir
Heimild: Samhæfingar-
stöð Almannavarna
*Kl. 19.30 í gær
MKÓRÓNUVEIRA»2, 4, 6, 10, 11, 22, 24 og 26
Ljósmynd/SHS
Sjúkraflutningar Sjúkraflutningamenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
eru við öllu búnir og skrýðast varnargöllum vegna kórónuveirunnar.