Morgunblaðið - 07.03.2020, Blaðsíða 39
Borgarritari
Umsjón með ráðningu hefur Intellecta. Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2020. Nánari upplýsingar um
starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is), Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Lóa Birna Birgisdóttir sviðsstjóri
mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar (loa.birna.birgisdottir@reykjavik.is).
Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Skipuð verður 3ja manna hæfnisnefnd sem mun vinna úr
öllum umsóknum í samráði við Intellecta. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf borgarritara Reykjavíkurborgar. Borgarritari er æðsti
embættismaður Reykjavíkurborgar að borgarstjóra undanskildum og fer með forystu- og samhæfingar-
hlutverk í stjórnsýslu og þjónustu Reykjavíkurborgar. Borgarritari er einn af staðgenglum borgarstjóra og
tilheyrir yfirstjórn Reykjavíkurborgar. Ráðið er í starf borgarritara af borgarráði til fimm ára.
Hjá Reykjavíkurborg starfa á hverjum tíma
um 9.000 starfsmenn sem sinna fjölbreyttri
þjónustu á mörgum sviðum fyrir íbúa og
gesti Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg er einn vinnustaður í
öllum sínum fjölbreytileika. Samkvæmt
mannauðsstefnu Reykjavíkurborgar og
þeirri framtíðarsýn sem þar birtist þá
einkennist starfsemi Reykjavíkurborgar
af fagmennsku og framsækni. Með því
að taka öra tækniþróun upp á okkar
arma erum við lifandi og skemmtilegur
vinnustaður með sterkt aðdráttarafl fyrir
hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk á öllum
aldri sem vinnur í þágu borgarbúa.
Í kjölfar aukinnar áherslu á þverfaglegt
samstarf og styttri boðleiðir upplifir
starfsfólk borgina sem einn vinnustað sem
einkennist af fjölbreytni, sterkri menningu,
sveigjanleika og samheldni.
Sjá nánar á: www.reykjavik.is
• Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í
starfi
• Leiðtogahæfileikar, farsæl reynsla af stjórnun
ásamt reynslu af því að leiða breytingar
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu,
stefnumótunarvinnu og áætlunargerð
• Þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum.
• Þekking og reynsla af samningagerð og
undirbúningi samninga
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Framsýni, metnaður, frumkvæði og
skipulagshæfileikar
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og
ensku. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur
• Forysta um að Reykjavíkurborg sé í fararbroddi í þróun
og þjónustu, stjórnsýslu og rekstri á landsvísu og standist
samanburð við framsæknar borgir í alþjóðlegum samanburði
• Ábyrgð á að stefnumörkun borgarráðs og borgarstjórnar
sé fylgt eftir með upplýsingamiðlun og stoðþjónustu við
fagsvið borgarinnar
• Eftirlit með að framkvæmd sé í samræmi við markaða stefnu
og fjárhagsheimildir
• Ábyrgð á því að stuðla að lýðræðislegum stjórnunarháttum
með því að auka gegnsæi og styrkja upplýsingaflæði
milli stjórnenda, sviða og stofnana borgarinnar, íbúa og
annarra samráðsaðila
• Yfirumsjón með miðlægri stjórnsýslu og stoðþjónustu
á vegum Reykjavíkurborgar
• Fer fyrir samningateymi Reykjavíkurborgar í samskiptum
við ríkið
• Tengiliður Reykjavíkurborgar við byggðasamlög og
B-hluta félög
• Tengiliður Reykjavíkurborgar við atvinnulífið í
Reykjavíkurborg og á landsvísu
• Leiðir stór og flókin verkefni sem kalla á samhæfingu
og samræmingu innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar og
utan þess
• Undir borgarritara heyra skrifstofa borgarstjóra og
borgarritara og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa
Menntunar- og hæfniskröfur: Ábyrgðarsvið:
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR