Morgunblaðið - 07.03.2020, Síða 39

Morgunblaðið - 07.03.2020, Síða 39
Borgarritari Umsjón með ráðningu hefur Intellecta. Framlengdur umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2020. Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is), Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Lóa Birna Birgisdóttir sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar (loa.birna.birgisdottir@reykjavik.is). Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Skipuð verður 3ja manna hæfnisnefnd sem mun vinna úr öllum umsóknum í samráði við Intellecta. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf borgarritara Reykjavíkurborgar. Borgarritari er æðsti embættismaður Reykjavíkurborgar að borgarstjóra undanskildum og fer með forystu- og samhæfingar- hlutverk í stjórnsýslu og þjónustu Reykjavíkurborgar. Borgarritari er einn af staðgenglum borgarstjóra og tilheyrir yfirstjórn Reykjavíkurborgar. Ráðið er í starf borgarritara af borgarráði til fimm ára. Hjá Reykjavíkurborg starfa á hverjum tíma um 9.000 starfsmenn sem sinna fjölbreyttri þjónustu á mörgum sviðum fyrir íbúa og gesti Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg er einn vinnustaður í öllum sínum fjölbreytileika. Samkvæmt mannauðsstefnu Reykjavíkurborgar og þeirri framtíðarsýn sem þar birtist þá einkennist starfsemi Reykjavíkurborgar af fagmennsku og framsækni. Með því að taka öra tækniþróun upp á okkar arma erum við lifandi og skemmtilegur vinnustaður með sterkt aðdráttarafl fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk á öllum aldri sem vinnur í þágu borgarbúa. Í kjölfar aukinnar áherslu á þverfaglegt samstarf og styttri boðleiðir upplifir starfsfólk borgina sem einn vinnustað sem einkennist af fjölbreytni, sterkri menningu, sveigjanleika og samheldni. Sjá nánar á: www.reykjavik.is • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi • Leiðtogahæfileikar, farsæl reynsla af stjórnun ásamt reynslu af því að leiða breytingar • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, stefnumótunarvinnu og áætlunargerð • Þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum. • Þekking og reynsla af samningagerð og undirbúningi samninga • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum. • Framsýni, metnaður, frumkvæði og skipulagshæfileikar • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur • Forysta um að Reykjavíkurborg sé í fararbroddi í þróun og þjónustu, stjórnsýslu og rekstri á landsvísu og standist samanburð við framsæknar borgir í alþjóðlegum samanburði • Ábyrgð á að stefnumörkun borgarráðs og borgarstjórnar sé fylgt eftir með upplýsingamiðlun og stoðþjónustu við fagsvið borgarinnar • Eftirlit með að framkvæmd sé í samræmi við markaða stefnu og fjárhagsheimildir • Ábyrgð á því að stuðla að lýðræðislegum stjórnunarháttum með því að auka gegnsæi og styrkja upplýsingaflæði milli stjórnenda, sviða og stofnana borgarinnar, íbúa og annarra samráðsaðila • Yfirumsjón með miðlægri stjórnsýslu og stoðþjónustu á vegum Reykjavíkurborgar • Fer fyrir samningateymi Reykjavíkurborgar í samskiptum við ríkið • Tengiliður Reykjavíkurborgar við byggðasamlög og B-hluta félög • Tengiliður Reykjavíkurborgar við atvinnulífið í Reykjavíkurborg og á landsvísu • Leiðir stór og flókin verkefni sem kalla á samhæfingu og samræmingu innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar og utan þess • Undir borgarritara heyra skrifstofa borgarstjóra og borgarritara og mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa Menntunar- og hæfniskröfur: Ábyrgðarsvið:        atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.