Morgunblaðið - 07.03.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
Fáðu tilboð í
Ræstingar-
þjónustu
án allra skuldbindinga
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Kórónufaraldurinn er farinn að hafa
áhrif á íslenska veislu- og veitinga-
geirann. Daglega berast fréttir af
árshátíðum eða öðrum samkomum
sem hætt hefur verið við.
Guðríður María Jóhannesdóttir,
framkvæmdastjóri veitingaþjónust-
unnar Múlakaffis, sem er eitt at-
kvæðamesta
fyrirtækið hér á
landi í veisluþjón-
ustu, segir í sam-
tali við Morgun-
blaðið að ástandið
sé farið að hafa
áhrif á rekstur fé-
lagsins. Hún segir
að þó nokkrir
stórir erlendir
hópar hafi til
dæmis hætt við komu hingað til
lands. „Þetta eru hópar sem höfðu
bókað sig á ráðstefnur eða í stórar
veislur. Þetta eru kannski allt upp í
þúsund manna kvöldverðir sem við
áttum að sjá um,“ segir Guðríður.
Aðspurð segir hún að tekjutap
Múlakaffis verði mikið fyrir hverja
slíka stórveislu sem hætt er við.
Hún segir að ekki þýði annað en að
bregðast við ástandinu af æðruleysi.
„Við áttum t.d. að sjá um veitingar
fyrir stóran hluta af þeim fyrir-
tækjum sem hafa verið að hætta við
árshátíðir sínar, eða slá þeim á frest.
Einn af stærstu mánuðum ársins er
að færast í flokk þeirra minnstu.“
Hún segist vera bjartsýn á að ein-
ungis sé um tímabundið ástand að
ræða, enda ætli margir að halda
árshátíðir í maí eða í haust í staðinn.
„Við höldum ró okkar enn sem komið
er, en við finnum klárlega fyrir þessu
eins og aðrir á markaðnum.“
Rólegra í kjötinu
Kjötsmiðjan og Kjarnafæði eru
stórir kjötbirgjar á markaðnum.
Bryndís Sigurðardóttir hjá Kjöt-
smiðjunni segir að fyrirtækið þjón-
usti veitingastaði, hótel og veislu-
þjónustur, en segist enn ekki hafa
fundið fyrir miklum áhrifum af veir-
unni í afpöntunum og slíku. Hún
hafi meiri áhyggjur af því ef starfs-
menn smitist, en öðru.
Gunnlaugur Eiðsson, fram-
kvæmdastjóri Kjarnafæðis, segir
að rólegra sé hjá fyrirtækinu en alla
jafna, og verkföll í leikskólum hafi
einnig áhrif. „Við erum einn stærsti
birgir leikskólanna í Reykjavík. Það
er alveg ljóst að það verður sam-
dráttur hjá okkur á þessu ári í
rekstrinum.“
Gunnlaugur segir að ef ferðir fólks
til útlanda dragist saman vegi það
upp á móti minni viðskiptum vegna
færri ferðamanna og annars. „Það er
ljóst að maður er að fara með minni
væntingar inn í árið.“
Magnús R. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri heildsölunnar Garra,
segir í samtali við Morgunblaðið að
Garri hafi enn ekki merkt samdrátt
en viðbúið sé að það breytist. „Við
tökum einn dag fyrir í einu.“
Hann segir að allt sé undir og taka
verði ástandið mjög alvarlega. Garri
selur vörur sínar til veisluþjónustu-
fyrirtækja, veislusala og veitinga-
húsa m.a. Öll aðfangakeðjan muni
verða fyrir áhrifum.
„Við erum með stóran hluta af
þeim aðföngum í mat sem verið er að
bjóða þarna.“
Magnús nefnir einnig verkföllin á
leikskólum, fækkun ferðamanna og
samdrátt í ferðalögum Íslendinga til
útlanda. Allir þessi kraftar spili sam-
an. „Ég get ekki neitað því að ég hef
áhyggjur af afkomu fyrirtækja í
greininni. Vonandi gengur þetta
fljótt yfir.“
Hann segist bera mikið traust til
fagaðila sem stjórni viðbrögðum við
veirunni.
Færri sækja WorldClass
Björn Leifsson, framkvæmda-
stjóri og einn eigenda heilsuræktar-
innar World Class, segir að mæting
hafi minnkað í þessari viku. „Mæt-
ingin hefur minnkað um fimm pró-
sent nú í vikunni miðað við síðustu
tvær vikur. Aðsókn hefur mest dreg-
ist saman á morgnana, en þá er
meira um að eldra fólk mæti. Þetta
virðist því hafa mest áhrif á þann
hóp.“
Veiruáhrif á veislugeira
Árshátíð Vonir standa til að þeir sem hafa hætt við árshátíðir sínar haldi þær í staðinn í maí eða í haust.
Minni væntingar inn í árið Einn stærsti mánuðurinn að verða meðal þeirra
minnstu Aðsókn að World Class dróst saman í vikunni, einkum á morgnana
Guðríður María
Jóhannesdóttir
7. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.06 127.66 127.36
Sterlingspund 164.15 164.95 164.55
Kanadadalur 94.7 95.26 94.98
Dönsk króna 18.974 19.086 19.03
Norsk króna 13.691 13.771 13.731
Sænsk króna 13.405 13.483 13.444
Svissn. franki 133.2 133.94 133.57
Japanskt jen 1.1874 1.1944 1.1909
SDR 175.66 176.7 176.18
Evra 141.8 142.6 142.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.4572
Hrávöruverð
Gull 1647.45 ($/únsa)
Ál 1722.5 ($/tonn) LME
Hráolía 51.66 ($/fatið) Brent
Eignir íslensku lífeyrissjóðanna
stóðu í ríflega 5.000 milljörðum í lok
janúarmánaðar og jukust um 41,7
milljarða króna í fyrsta mánuði árs-
ins. Af eignum sjóðanna í lok janúar
voru ríflega 30% þeirra utan land-
steinanna eða 1.509 milljarðar og
hefur hlutfallið hækkað um tæp 3
prósentustig síðasta árið. Innlendar
eignir námu 3.497 milljörðum króna.
Hafa eignir sjóðanna aukist um
616,5 milljarða króna á síðustu tólf
mánuðum.
Stöðugleiki í útlánunum
Í janúar námu ný sjóðfélagalán
sjóðanna 11,6 milljörðum króna og
er það 2,5 milljörðum meira en í
sama mánuði í fyrra.
Sjóðirnir hafa aldrei lánað jafn
mikið í einum mánuði og í október
síðastliðnum. Þá náðu ný sjóð-
félagalán tæpum 14 milljörðum
króna.
Verðtryggð útlán voru tæpir 7
milljarðar og óverðtryggð námu 4,7
milljörðum. Meðalfjárhæð lána var
12,3 milljónir og er það á svipuðum
slóðum og verið hefur. Í fyrra var
meðalfjárhæð lána tæpar 11,6 millj-
ónir króna.
Eignirnar
jukust um
41,7 ma.
Lífeyrissjóðir lána
11,6 milljarða króna
● Hlutabréf Origo
hækkuðu um
0,86% í við-
skiptum gærdags-
ins. Var það eina
félagið sem ekki
lækkaði í lok vik-
unnar. Talsverð
lækkun varð hjá
mörgum félögum.
Mest varð hún hjá Sýn eða 6,57%. Þá
lækkuðu bréf Kviku banka um 6,15%.
Marel lækkaði um 5,75% og Skeljungur
um 5,25%.
Bréf Icelandair Group lækkuðu um
4,5% og hafa ekki verið lægri síðan á
árinu 2012. Markaðsvirði félagsins er
nú 28,8 milljarðar króna, eða vel innan
við helmingur af bókfærðu eigin fé fé-
lagsins. Félagið hefur, líkt og flest önnur
flugfélög heimsins, tekið á sig þung
högg í kjölfar þess að kórónuveiran tók
að breiðast um heiminn.
Sjóvá lækkaði um 4,27% og Reitir
um 4,25%. Eimskipafélagið lækkaði um
3,85% og Arion banki um 3,69%. Þá
lækkuðu bréf TM um 3,61% og Ice-
landic Seafood um 3,56%. Eik lækkaði
um 3,44% og Festi um 3,28%.
Bréf Regins lækkuðu um 2,6%, VÍS
um 2,59% og Símans um 2,49%. Þá
lækkuðu bréf Haga um 1,89% og Brims
um 1,55%. Heimavelli lækkuðu um
1,46%.
Talsverðar lækkanir hjá
nær öllum í Kauphöll
STUTT