Morgunblaðið - 07.03.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Laun hækka afturvirkt frá 1. apríl á
síðasta ári í samræmi við lífskjara-
samninginn, markviss skref verða tek-
in til styttingar vinnuvikunnar og frá
1. janúar næstkomandi styttist vinnu-
vikan um samtals 65 mínútur fyrir fólk
í fullu starfi. Vinnuvika vaktavinnu-
fólks í fullu starfi verður 36 stundir og
nýtt launamyndunarkerfi tekið upp.
Þetta er meðal þess sem samið var um
í nýjum kjarasamningi 18 aðildar-
félaga Starfsgreinasambands Íslands,
sem sambandið undirritaði með samn-
inganefnd ríkisins í gær. Öll aðildar-
félögin að Eflingu undanskilinni
standa að samningnum. Gert er ráð
fyrir að kosningu um hann meðal fé-
lagsmanna verði lokið 26. mars.
Björn Snæbjörnsson, formaður
SGS, segir að með undirrituninni í
gær hafi náðst góður áfangi. Mikil-
vægur árangur hafi náðst með sam-
komulaginu um breytingar á vinnu-
tíma og vaktavinnukerfinu sem hafi
verið baráttumál í áratugi. Þá sé mik-
ilvægt að samkomulag hafi náðst um
að laun hækki afturvirkt yfir svo langt
tímabil, þ.e.a.s. frá 1. apríl á síðasta ári
og telur Björn að slíkt fyrirkomulag
við gerð samninga hljóti að vera komið
til að vera. Verði samningurinn sam-
þykktur fá starfsmenn sem hann
tekur til afturvirku hækkanirnar
greiddar 1. maí sem ná þá yfir 13 mán-
aða tímabil.
SGS hefur nú lokið gerð allra samn-
inga sem eru á sameiginlegu borði að-
ildarfélaganna, með gerð lífskjara-
samninganna í fyrra, nýjum kjara-
samningi 17 aðildarfélaga sem gerður
var við sveitarfélögin í febrúar og nú
við ríkið auk fleiri.
Vinnuvika vaktavinnufólks
gæti styst í 32 stundir
SGS var aðili að víðtæku sam-
komulagi launþegasamtaka og hins
opinbera sem náðist á miðvikudags-
kvöld um útfærslu á styttingu vinnu-
vikunnar fyrir vaktavinnufólk.
Í fréttatilkynningu frá BSRB í
gær er greint frá efni þess sam-
komulags og þar kemur fram að
starfsfólk í vaktavinnu muni geta
stytt vinnuviku sína úr 40 stundum í
36, og í einhverjum tilvikum allt nið-
ur í 32. Áður hafði náðst samkomu-
lag um styttingu vinnuvikunnar í
dagvinnu í allt niður í 36 stundir.
„Þar með geta þeir sem eru í 80 pró-
sent starfshlutfalli á þrískiptum
vöktum í dag breytt starfshlutfalli
sínu í 100 prósent. Þeir sem eru í
lægra starfshlutfalli í dag geta unnið
jafn mikið en hækkað starfshlutfall
sitt og hækkað þar með laun sín.
Áfram verður greitt vaktaálag fyrir
vinnu utan dagvinnutíma en álag á
næturvöktum verður hækkað. Nýr
launaflokkur, vaktahvati, verður
greiddur til að umbuna betur fyrir
þegar fólk er að mæta á fjölbreyttar
vaktir,“ segir í umfjöllun BSRB en
samkomulagið verður hluti af vænt-
anlegum kjarasamningum BSRB við
ríki og sveitarfélög þegar þeir liggja
fyrir.
BHM ekki undirritað
Í tilkynningu frá BHM í gær er
bent á að aðildarfélög BHM hafa ekki
undirritað samkomulagið um stytt-
ingu vinnuvikunnar.
Stöðug fundarhöld voru hjá Ríkis-
sáttasemjara í gær í sjö kjaradeilum
sem vísað hefur verið. Útlit er núna
fyrir að komið geti til verkfallsaðgerða
í álveri Rio Tintó í Straumsvík en í
sameiginlegri tilkynningu sex stéttar-
félaga starfsmanna í álverinu í gær
kemur fram að efnt verði til atkvæða-
greiðslu í hverju félagi um sig dagana
10. til 13. mars um vinnustöðvanir í
formi skæruverkfalla sem gætu hafist
hjá flestum félaganna 24. mars og á að
ljúka 10.-12. júní. omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Samningum fagnað Samningamenn tókust ekki í hendur en fögnuðu samningnum með öðrum táknrænum hætti.
SGS semur við ríkið fyrir
hönd 18 aðildarfélaga
Fá afturvirka greiðslu sem teygir sig aftur um 13 mánuði
Sex félög kjósa um skæruverkföll í álverinu í Straumsvík
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Á síðustu dögum hafa fjögur fyrir-
tæki gert samninga við Regus um að
koma upp skrifstofuaðstöðu til bráða-
birgða til þess að
forðast röskun á
starfsemi vegna
kórónuveirunnar,
að sögn Tómasar
Hilmars Ragnars-
sonar, fram-
kvæmdastjóra
Regus. Hann seg-
ir að meðal fyrir-
tækjanna sem
þegar hafa gert
samning sé fjármálafyrirtæki og
fyrirtæki í ferðaþjónustu.
„Við erum með aðila sem eru að
leita leiða til þess að dreifa áhættunni
og vera á tveimur stöðum,“ segir
Tómas Hilmar, sem útskýrir að fyrir-
tækin vilji hafa möguleika á því að
halda úti starfsemi ef smit skyldi
greinast. Þannig gætu þau haldið
áfram starfsemi á einum stað þótt
annar yrði settur í sóttkví. „Við erum
að setja upp bráðabirgðaskrifstofu
þannig að starfsemin lamist ekki. Þá
eru tveir hópar starfsfólks, annar í
fyrirtækinu en hinn á fleiri stöðum.
[…] Svo skipta þeir líka upp vöktum
þannig að vaktir eru á sitt hvorum
staðnum.“
Fleiri leita til Regus
Spurður hvort þetta séu stór fyrir-
tæki sem hafa leitað til Regus vegna
kórónuveirunnar svarar hann að um
sé að ræða fyrirtæki sem þurfi að
halda uppi starfsemi allan sólarhring-
inn. „Þetta eru meðal annars fjár-
mála- og ferðaþjónustufyrirtæki.“
Tómas Hilmar kveðst sannfærður
um að fleiri fyrirtæki leiti til Regus á
næstu dögum enda séu þegar fleiri að
skoða þennan kost en þau sem gengið
hafa til samninga við félagið. „Þetta
skýrist betur um og eftir helgina,“
segir hann og bætir við að fyrirtækið
sé með fleiri staði sem hægt sé að
velja á milli í Reykjavík. Þá bendir
hann jafnframt á að félagið tengist al-
þjóðlegri starfsemi Regus, sem hefur
húsnæði um allan heim, þannig að
starfsfólk sem statt er erlendis og
jafnvel kemst ekki til landsins vegna
aðgerða sem tengjast kórónuveirunni
geti tekið til starfa þar sem það er
statt.
Ekki geta allir unnið að heiman
Þá hafi verið gefnar út leiðbeining-
ar vegna kórónuveirunnar innan sam-
steypunnar á alþjóðavísu í byrjun
febrúar og þegar verið teknir upp við-
bragðsferlar með auknum þrifum og
dreifingu sprittbrúsa, að sögn
Tómasar Hilmars.
„Fólk er hrætt og ef sú staða kem-
ur upp að það þurfi að loka, eins og
gerðist hjá arkítektastofunni [sem
sett var í sóttkví], þarf fólk að vinna
að heiman. En það eru ekki allir í
þeirri stöðu að geta unnið að heiman.
Svo eru þetta líka fyrirbyggjandi að-
gerðir hjá fyrirtækjunum til þess að
komast hjá því að loka,“ útskýrir
framkvæmdastjórinn.
Dreifa áhættunni með leigurými
Fyrirtæki hafa leitað til Regus til að setja upp starfsstöðvar til bráðabirgða Gert til að fyrirbyggja
truflun í rekstri Fjármálafyrirtæki og fyrirtæki úr ferðaþjónustu meðal þeirra sem vilja tryggja sig
Morgunblaðið/Eggert
Skrifstofur Fyrirtæki leita í leigurými vegna kórónuveirunnar.
Tómas Hilmar
Ragnarsson
Þrátt fyrir að Ísland teljist til dýrari
áfangastaða fyrir erlenda ferðamenn
er framlegð ferðaþjónustufyrirtækja
lág. Á þetta benti Bogi Nils Bogason,
forstjóri Icelandair Group, í ræðu á
aðalfundi Icelandair Group sem hald-
inn var á Nordica Hilton hóteli í gær.
„Auka þarf framleiðni í greininni, en
auk þess þurfa stjórnvöld að lækka
skatta og álögur á ferðaþjónustuna,“
sagði hann og bætti við: „Á síðustu ár-
um hefur þó meira verið rætt á vett-
vangi stjórnmálamanna um hvernig
hægt sé að skattleggja ferðaþjón-
ustuna umfram það sem nú er gert.“
Í tengslum við uppgjör sem Bogi
Nils kynnti á fundinum var ítrekað að
tvíþætt samkomulag hefði nú þegar
verið gert við Boeing vegna kyrrsetn-
ingar Boeing 737-MAX véla félagsins
en að teknu tilliti til þeirra væri tjón
félagsins af völdum hennar 100 millj-
ónir dollara, jafnvirði 12,7 milljarða
króna. Eins og áður hefur komið fram
nam tap félagsins 7,1 milljarði á ný-
liðnu ári. Benti Bogi á að ef ekki hefði
verið fyrir kyrrsetningu hinna nýju
véla hefði rekstrarbati orðið sýni-
legur hjá félaginu, sem tapaði álíka
fjárhæðum árið 2018 og á nýliðnu ári.
Á fundinum tók ný stjórn við af
þeirri sem kjörin var á aðalfundi 2019.
Hefur fráfarandi stjórn haldið 33
fundi á liðnu starfsári. Úr stjórninni
hverfa Ómar Benediktsson og Heið-
rún Jónsdóttir. Að ráði tilnefningar-
nefndar félagsins voru í þeirra stað
kjörin í stjórnina þau Nina Jonsson
og John F. Thomas. Áfram sitja í
stjórninni Úlfar Steindórsson stjórn-
arformaður, Guðmundur Hafsteins-
son og Svafa Grönfeldt. Á meðan á að-
alfundi félagsins stóð voru birtar
flutningatölur hjá Icelandair fyrir
febrúarmánuð. Flutti félagið 225.635
farþega í mánuðinum, sem er 8%
fleiri en í sama mánuði í fyrra. Far-
þegum til Íslands fjölgaði um 27% frá
því í febrúar 2019 og frá Íslandi um
4%. Hins vegar fækkaði tengi-
farþegum um 17%. Sé litið til fyrstu
tveggja mánaða ársins hefur félagið
flutt u.þ.b. sama fjölda yfir það tíma-
bil og í janúar og febrúar í fyrra. Sam-
hliða flutningatölunum tilkynnti fé-
lagið að það hefði ákveðið að fella
niður 80 flug í mars- og aprílmánuði
vegna minnkandi eftirspurnar, sem
er afleiðing af útbreiðslu kórónuveir-
unnar. Jafngildir það 2% af flugfram-
boði félagsins yfir fyrrgreint tímabil.
Flugferðir félagsins í mánuðunum
tveimur eru áætlaðar 3.500 talsins.
ses@mbl.is
Lækka þarf
skatta á greinina
Ný stjórn Icelandair tekin til starfa