Morgunblaðið - 07.03.2020, Qupperneq 4
Útför Ragnars Bjarnasonar söngvara fór fram frá
Háteigskirkju í gær. Séra Pálmi Matthíasson jarðsöng
og Þorgeir Ástvaldsson var tónlistarstjóri.
Hljómlistarfólkið Óskar Einarsson, Fanny K.
Tryggvadóttir, Hrönn Svansdóttir, Björgvin Franz
Gíslason, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Páll Óskar
Hjálmtýsson, Ásgeir Ásgeirsson, Bjarni Arason, Lovísa
Elísabet Sigrúnardóttir, Sigurður Guðmundsson, Guð-
mundur Óskar Guðmundsson og Ástvaldur Traustason
fluttu tónlist við útförina.
Líkmenn voru, talið frá vinstri: Ólafur Bjarni Péturs-
son, Ingvar Arnarson, Alex Evan Henrysson, Henry
Lárus Ragnarsson, Örn Ingi Ingvarsson, Örn Arnar-
son, Aron Ragnar Henrysson og Bjarni Ómar Ragnars-
son. Útfararstofa Íslands annaðist útförina.
Bálför fer fram í Fossvogskirkju.
Ragnar Bjarnason kvaddur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
holar@holabok.is — www.holabok.is
SIDDI GULL
Um tvítugt missti Sigmar Ó.
Maríusson gullsmiður báða
fætur í bílslysi og hafði þá
ýmislegt dunið á honum áður
og átti enn eftir að gera.
En ... hann hefur aldrei
gefist upp og ávallt horft á
björtu hliðarnar, sama hversu
dökkt útlitið var. Þess vegna
eru æviminningar hans
átakanlegar en jafnframt
stútfullar af skemmtilegum
sögum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Oddur mokar snjónum á Eyrarbakka sér til heilsubótar
Meiri snjór er nú á Eyrarbakka
en sést hefur mörg undanfarin
ár. Snjó hefur kyngt niður í
byggðinni auk þess sem skafið
hefur af mýrunum ofan við kaup-
túnið að húsum þar. „Þetta er
mesti snjór sem ég man eftir í
langan tíma,“ segir Oddur Þor-
steinsson á Sunnuhvoli, sem er
eitt af húsunum vestast í
byggðarlaginu. „En ég er ekkert
að kvarta. Mér finnst fínt að fara
út að moka snjó, sem mér finnst
alveg frábær líkamsþjálfun og
heilsubót.“
Líklegt er nú að meira þurfi að
moka á Eyrarbakka, því spáð er
leiðinlegu veðri frá Austfjörðum
og suður á Reykjanes um helgina.
Líkt og oft áður má búast við
hvassviðri undir Eyjafjöllum og á
láglendu verður snjókoma og
slydda og ekkert ferðaveður. Á
Austurlandi má svo reikna með
talsverðri snjókomu og skafrenn-
ingi, einkum á fjallvegum svo
færð gæti spillst. Mun þekkilegri
veðrátta verður á höfuðborgar-
svæðinu í dag, heiðskírt og hiti
þrjár gráður í plús um miðjan
daginn. Þá verður ágætt veður á
Vestfjörðum í dag en þar er nú
mikill snjór eftir óveðurstíð.
Margra ára málarekstri íþrótta-
félags nokkurs gegn skattayfir-
völdum vegna álagningar bifreiða-
gjalds á ökutæki í þess eigu sem
ekki var í notkun lauk á dögunum
með því að yfirskattanefnd úrskurð-
aði félaginu að hluta til í vil og fann
að vinnubrögðum ríkisskattstjóra í
málinu. Greint er frá málavöxtum
og niðurstöðunni á vef yfirskatta-
nefndar, en ekki kemur fram um
hvaða félag er að ræða.
Það var í janúar árið 2013 sem
íþróttafélagið tilkynnti lögreglu að
skráningarmerkjum hefði verið
stolið af bifreið félagsins árið 2012.
Félagið hafði fest kaup á henni tíu
ára gamalli sumarið 2010. Það var
svo sumarið 2014 sem félagið óskaði
eftir því við ríkisskattstjóra að bif-
reiðagjald yrði fellt niður þar sem
bifreiðin væri ekki í notkun.
Nokkru síðar pantaði félagið nýja
númeraplötu á bifreiðina til að
leggja inn hjá Samgöngustofu, þar
sem ekki er hægt að afskrá bifreið-
ar nema skráningarnúmer þeirra
séu lögð inn. Ríkisskattstjóri synj-
aði erindinu á þeim grundvelli að
ekki væri heimilt að fella niður bif-
reiðagjald nema skráningarnúmer
hefðu verið lögð inn eða sýnt fram á
að bifreiðin væri ónýt og sannan-
lega ekki í notkun á gjaldatíma-
bilinu.
Erindinu synjað fimm sinnum
Þegar málið kom á borð yfir-
skattanefndar í ágúst 2019 lágu
fyrir gögn sem sýndu að bifreið
íþróttafélagsins var ekki á númer-
um og ótryggð. Þá hafði félagið
a.m.k. fimm sinnum á undanförnum
árum óskað eftir því við ríkisskatt-
stjóra að bifreiðagjaldið yrði fellt
niður en ávallt verið synjað án þess
að leiðbeint væri um kæruheimild.
Yfirskattanefnd fann að því að fé-
lagið hefði í erindum sínum ekki til-
greint með skýrum hætti þau
greiðslutímabil sem málaleitanir
þess tóku til, en ríkisskattstjóri
hafði litið svo á að öll erindin litu að
niðurfellingu bifreiðagjalds fyrir ár-
ið 2011. Ný skráningarmerki fyrir
bifreiðina höfðu verið tilbúin frá því
í janúar 2015. Féllst yfirskattanefnd
á niðurfellingu bifreiðagjalds fyrir
árið 2015 og fyrri hluta árs 2016, en
taldi að ekki væri lagaheimild fyrir
niðurfellingu eldri gjalda frá 2012 til
2014. gudmundur@mbl.is
Þrefað um gjöld af
númerslausum bíl
Tók sex ár að sannfæra skattyfirvöld
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, hefur
haft samband við íslensk heil-
brigðisyfirvöld og boðist til að
skima fólk fyrir kórónuveirunni.
Fólkið þarf ekki að hafa verið á
áhættusvæðum eða tengjast ein-
staklingum sem hafa verið á
áhættusvæðum. Í samtali við
mbl.is í gær sagðist Kári reikna
með að hægt yrði að hefjast
handa fljótlega við að taka sýni,
mögulega á næstu dögum.
Hann hyggst einnig raðgreina
veirurnar úr þeim sem hafa smit-
ast.
„Hugmyndin á bak við það er
að læra um hvernig veiran er að
stökkbreytast. Það er alveg ljóst
að hún er að stökkbreytast. Þegar
hún stökkbreytist getur hún
sloppið undan ónæmiskerfinu
okkar og farið að vega að fólki
sem hefur meira að segja ónæmi
fyrir annarri gerð af veirunni,“
sagði Kári.
Spurður hversu margir starfs-
menn muni sinna þessu verkefni
segist Kári í raun ekki hafa hug-
mynd um það en þeir verði eins
margir og þurfi.
„Við ætlum að gera þetta eins
myndarlega og til þarf og við
getum. Við munum ekki spara
neitt til þess.“
Verkefnið mun eflaust hafa
áhrif á aðra starfsemi fyrir-
tækisins en Kári lætur sér þær til-
færingar í léttu rúmi liggja. „Eins
og segir á gullaldarmálinu: „So
what“,“ segir hann og bætir við:
„Þetta er mál málanna núna.“
Íslensk erfðagreining býðst til að raðgreina kórónuveiruna