Morgunblaðið - 07.03.2020, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ígærmorgun varenga orrustu-flugvél að sjá á
himninum yfir Idlib
í fyrsta skipti í lang-
an tíma. Óhugnan-
legt hefur verið að fylgjast með
sókn sýrlenska stjórnarhersins
með stuðningi Rússa að síðustu
vígjum uppreisnarmanna í Sýr-
landi. Það hefur verið augljós
stefna Bashars al-Assads að eira
engu í sókn sinni til að ná aftur
öllum þeim svæðum sem hann
hefur misst í átökunum í land-
inu.
Sóknin til að ná Idlib hófst
fyrir þremur mánuðum og hefur
haft hrikalegar afleiðingar og
leitt til þess að fjöldi manns hef-
ur flosnað upp og er á vergangi.
Hjá Sameinuðu þjóðunum er tal-
að um mestu neyð frá því að
stríðið hófst árið 2011.
Eina hjálp þeirra sem verja
Idlib hefur komið frá Tyrkjum,
sem sendu þúsundir hermanna á
vettvang. Þegar á fjórða tug
tyrkneskra hermanna féll í árás
sýrlenska hersins brugðust
Tyrkir hart við og ótti kviknaði
um að átökin myndu ágerast,
ekki síst vegna þáttar Rússa í
aðgerðum Sýrlendinga. Á
fimmtudag náðu Vladimír Pútín,
forseti Rússlands, og Recep
Tayyip Erdogan, forseti Tyrk-
lands, samkomulagi um vopna-
hlé, sem tók gildi í gær. Kveður
það meðal annars á um sam-
eiginlegt eftirlit Rússa og
Tyrkja síðar í mánuðinum.
Vissulega er ástæða til að
fagna vopnahléinu og vona að
það beri árangur, en reynslan
gefur ekki tilefni til bjartsýni.
Meginástæðan er sú að Assad
ætlar sér meira og svífst einskis.
Í hans huga eru mannslíf einskis
virði og svipar honum þar til föð-
ur síns.
Hafez al-Assad barði allt and-
óf niður af harðfylgi í valdatíð
sinni. Í byrjun níunda áratugar-
ins kviknaði andóf gegn honum
og var kjarni uppreisnarmanna í
Hama, fjórðu stærstu borg Sýr-
lands. Í febrúar árið 1982 lét
Assad til skarar skríða gegn
andstæðingum sínum. Ekki er
víst hvað margir féllu, en talað
er um allt að 40 þúsund manns.
Uppreisnarhverfin voru jöfnuð
við jörðu svo ekki færi á milli
mála hvernig færi fyrir andófs-
mönnum í landinu.
Þegar Bashar tók við af föður
sínum héldu margir að við tæki
mildara stjórnarfar, en það
reyndist öðru nær.
Það er mikil einföldun að kalla
átökin í Sýrlandi borgarastyrj-
öld. Margir hafa skorist í leik-
inn. Sýrlenski rithöfundurinn
Khaled Khalifa segir að í Sýr-
landi takist á hagsmunir ýmissa
utanaðkomandi aðila, grannríkja
og stórvelda, sem geri upp sakir
í Sýrlandi. Skáldsaga Khaleds
Dauðinn er barningur er mögn-
uð lýsing á stríði þar sem líkbíll
verður „hversdagslegt fyrirbæri
og vekur einungis öfund þeirra
sem lifa í stöðugri
kvöl, viðbúin dauð-
anum“.
Í Sýrlandi berjast
vígamenn úr öllum
áttum. Ríki íslams
hreiðraði þar um sig um tíma og
náði undir sig stórum svæðum.
Íranar koma við sögu og sveitir
Hezbollah-hreyfingarinnar í Líb-
anon hafa lagt Assad lið ásamt
Rússum, sem hafa haft herstöð í
Sýrlandi og vilja ekki missa einu
fótfestu sína við Miðjarðarhafið.
Tyrkir hafa hjálpað uppreisnar-
mönnum, en um leið reynt að
koma í veg fyrir að Kúrdar í Sýr-
landi yrðu of atkvæðamiklir.
Bandaríkjamenn hafa hins vegar
stutt Kúrda, ekki síst vegna þess
að þeir hafa verið helstu banda-
mennirnir í að ráða niðurlögum
Ríkis íslams, og þar með verið í
öðru liði en tyrkneskir banda-
menn þeirra í Atlantshafs-
bandalaginu. Þá má ekki gleyma
íhlutun Sádi-Araba og banda-
manna þeirra, sem vilja gæta
þess að Íranar verði ekki of að-
sópsmiklir.
Ástæðan fyrir afskiptum
Tyrkja af átökunum í Sýrlandi er
sú helst að flóttamannavandinn
hefur einkum bitnað á þeim. 3,6
milljónir flóttamanna eru fyrir í
Tyrklandi og það myndi reyna
verulega á að taka á móti nýrri
holskeflu.
Grunnt hefur verið á hinu góða
milli Tyrkja og bandamanna
þeirra í Atlantshafsbandalaginu
undanfarið. Ákvörðun Erdogans
um að opna landamærin og
hleypa flóttamönnum í gegn hef-
ur vakið ugg og reiði í Evrópu.
Í leiðara í tímaritinu The Eco-
nomist í þessari viku eru banda-
menn Tyrkja í NATO hvattir til
að veita þeim stuðning hvað sem
líði ágreiningi á ýmsum sviðum og
stjórnarfari í Tyrklandi. Pútín
hefur reynt að nýta sér þennan
ágreining og reka fleyg á milli
Tyrkja og NATO. Tókst honum
meðal annars að selja Tyrkjum
loftvarnarkerfi, sem enga samleið
eiga með kerfum NATO. „En
Tyrkland er of mikilvægt til að
NATO láti það lönd og leið,“ segir
í blaðinu. „Það er með næst-
stærsta her bandalagsins og
liggur á krossgötum austurs og
vesturs.“ Blaðið telur að nú sé
tækifæri til að bæta úr samskipt-
unum og NATO geti ýmislegt
gert án þess að senda her, allt frá
því að útvega hergögn til hjálpar-
gagna og aðstoðar við ratsjár-
eftirlit.
Þegar gamla Júgóslavía lið-
aðist í sundur í vopnagný stóð
Evrópa lémagna hjá. Það sama
gerðist í Sýrlandi og þegar flótta-
mennirnir þyrptust brott sátu
Tyrkir uppi með svartapéturinn,
ásamt Líbönum, Jórdönum og
Egyptum. Um miðjan þennan
mánuð verða níu ár liðin frá því að
stríðið hófst í Sýrlandi. Það hefur
kostað 400 þúsund manns lífið og
milljónir manna eru á vergangi.
Það er til skammar að ekki hafi
tekist að stöðva þennan illa leik.
Atlantshafs-
bandalagið ætti að
leggja Tyrkjum lið}
Ógnarástand í Sýrlandi
Þ
að hefur líklega ekki farið framhjá
mörgum að smit af völdum CO-
VID-19-kórónuveirunnar hafa nú
greinst hér á landi. Um 100.000
manns um allan heim hafa smitast
af veirunni og í gær, 6. mars, lýsti embætti
ríkislögreglustjóra yfir neyðarstigi almanna-
varna í samráði við sóttvarnalækni og emb-
ætti landlæknis en það er gert þegar hóp-
sýking er farin að breiðast út innanlands.
Neyðarstig almannavarna merkir meðal ann-
ars að fyrirtæki og stofnanir hafa það hlut-
verk að herða á sínum vörnum til þess að
hefta megi útbreiðslu smita eins og kostur er.
Flest smitin sem greinst hafa hérlendis eru
enn sem komið er bundin við ferðalanga sem
hafa komið til landsins nýlega frá Norður-
Ítalíu eða Austurríki og í gær var staðan sú að
smitin sem hafa átt sér stað innanlands má rekja til sam-
skipta við fólk sem var að koma af þeim svæðum erlendis
þar sem smit hefur greinst.
Embætti landlæknis heldur úti fræðsluvef um CO-
VID19-kórónaveiruna á heimasíðunni sinni, landlaekn-
ir.is, en þar má finna nýjustu upplýsingar og fræðslu um
veiruna. Fræðsluefni má einnig finna á Facebook-síðu
Embættis landlæknis og sóttvarnalæknir hefur upplýst
almenning um málið í fjölmiðlum oft og vel. Almanna-
varnadeild Ríkislögreglustjóra hefur boðað til blaða-
mannafunda reglulega vegna málsins þar sem farið er
yfir stöðuna, nú síðast í gær, auk þess sem ýmsar stofn-
anir og fyrirtæki hafa birt fræðsluefni á sín-
um heimasíðum, til dæmis Landspítali og
RÚV.
Upplýsingar og fræðslu um veiruna er því
að finna á hinum ýmsu stöðum og miðlum og
ég hvet alla til að kynna sér slíkar upplýs-
ingar. Nú skiptir öllu máli að almenningur
gæti að almennu hreinlæti og smitvörnum og
það þurfum við öll að taka til okkar. Góð
handhreinsun er mikilvægasta ráðið fyrir
heilbrigða til að forðast smit. Handþvottur
með vatni og sápu er æskilegastur ef hendur
eru óhreinar, en hendur sem virðast hreinar
en hafa komið við sameiginlega snertifleti s.s.
hurðahúna, eða tekið við hlutum úr annarra
höndum s.s. peningum eða greiðslukortum
má hreinsa með handspritti.
Mikilvægt er að hósta eða hnerra í oln-
bogabót eða í pappír, forðast náið samneyti við ein-
staklinga sem eru með almenn kvefeinkenni, hnerra eða
hósta, gæta hreinlætis og forðast snertingu við augu, nef
og munn, varast snertifleti á fjölförnum stöðum og heilsa
frekar með brosi en handabandi.
Í þessu samhengi langar mig að þakka sérstaklega
heilbrigðisstarfsfólki fyrir þeirra vinnu. Starfsfólk heil-
brigðisþjónustunnar stendur í ströngu þessa dagana og
álagið er mikið. Framlag þess er mikilvægt og við ættum
öll að muna að þakka fyrir það.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Verjumst veirunni
Höfundur er heilbrigðisráðherra
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
159 tilfelli veirunnar í fjórtán ríkjum.
Það er ótrúlega lág tala miðað við
mannfjölda og tölfræðilegar líkur á
smiti þar vestra. Enda skýrist það af
því að aðeins höfðu innan við 500 sýni
verið greind í landinu öllu! Á sama
tíma eru 10 þúsund sýnatökur dag-
lega í Suður-Kóreu. Það má því segja
að Bandaríkin gætu verið tifandi
tímasprengja hvað útbreiðslu kór-
ónuveirunnar snertir. Sama er að
segja um fjölda annarra landa, ekki
síst þar sem heilbrigðiskerfi eru
vanþróuð og fjárhagslega veik. Þá
getur alls kyns ábyrgðarlaus hags-
munagæsla stjórnvalda spilað inn í;
menn veigra sér við að tilkynna smit
til að skaða ekki efnahag landa sinna,
ekki síst ferðaþjónustu. Þetta á sér-
staklega við um lönd sem búa ekki
við lýðræði og vön eru að fara með
allar viðkvæmar upplýsingar af ýtr-
ustu leynd.
Ljóst er að heilbrigðiskerfin í okk-
ar heimshluta þurfa fljótlega á veru-
lega auknum fjárveitingum að halda
til að geta veitt veirunni viðnám og
sjúklingum nauðsynlega þjónustu.
Sjúkrahús er sums staðar orðin yfir-
full og þörf á nýjum rýmum til að
taka við sjúklingum. Kínverjar
byggðu ný bráðabirgðasjúkrahús á
nokkrum dögum sem kunnugt er og
fluttu tugþúsundir heilbrigðisstarfs-
manna til Hubei-héraðs, þar sem
veiran uppgötvaðist, frá öðrum
landshlutum. Víða munu stjórnvöld
vera að íhuga að kalla aftur til starfa
tímabundið lækna og hjúkrunar-
fræðinga sem látið hafa af störfum
aldurs vegna.
Þá er víða óleyst það vandamál
hvernig fjármagna eigi vinnu-
fjarveru tugþúsunda manna sem eru
í sóttkvíum. Hér á landi hefur tekist
samkomulag um útfærslu en málið
er flóknara hjá milljónaþjóðunum.
Inn í það spilar hvernig ólík heil-
brigðiskerfi virka; milljónir manna í
Bandaríkjunum eru t.d. án sjúkra-
trygginga og ráða ekki við útgjöld
sem leiða af veikindum vegna veir-
unnar.
Economist segir að víða í iðnríkj-
um Vesturlanda sé verið að lækka
vexti og auka framboð lausafjár til
að bregðast við efnahagssamdrætt-
inum sem fylgir útbreiðslu kórónu-
veirunnar. Þetta breyti hins vegar
engu um útbreiðslu veirunnar sjálfr-
ar og áhrif hennar á fólk og atvinnu-
starfsemi. Betra sé að veita beina
fjárhagsstyrki til að halda hjólum at-
vinnulífsins gangandi með því að
niðurgreiða kostnað fólks af heil-
brigðisþjónustu og dvöl í sóttkví eins
og nokkur lönd séu þegar farin að
gera eða undirbúa. En stóra málið
núna sé alls staðar að hægja á út-
breiðslu veirunnar.
Veirutilfellin gætu
verið margfalt fleiri
AFP
Kórónuveiran Víða erlendis notar fólk andlitsgrímur á almannafæri til að fyrirbyggja smit af völdum veirunnar.
Sérstaklega er áberandi að fólk af asískum uppruna gerir þetta, enda vant að bera grímur gegn öðrum kvillum.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnúson
gudmundur@mbl.is
Síðdegis í gær voru ríflega eitthundrað þúsund manns víðsvegar um heim smituð afkórónuveirunni. Yfir 3.400
höfðu látist og um 56 þúsund náð
heilsu á ný. Tölur um fjölda smit-
aðra, látinna og þeirra sem náð hafa
heilsu á ný eru m.a. birtar daglega á
sérstakri vefsíðu Johns Hopkins-
háskólans í Baltimore í Bandaríkj-
unum eftir því sem þær berast frá
heilbrigðisyfirvöldum í ríkjum
heims. Ekki er útilokað – raunar
mjög líklegt – að raunverulegur
fjöldi smitaðra og látinna um allan
heim sé margfalt meiri en þar kemur
fram að því er segir í umfjöllun um
málið í nýjasta hefti vikuritsins The
Economist.
Í gær hafði kórónuveiran verið
staðfest í 85 löndum í öllum heims-
hlutum. Fyrir aðeins viku voru lönd-
in 50. Auk upprunalandsins Kína eru
það aðallega þrjú lönd sem flutt hafa
veiruna út til annarra landa, Íran,
Suður-Kórea og Ítalía. Flest tilfellin
sem greinst hafa hér á landi má
rekja til Ítalíu en nokkur til skíða-
staðar í Austurríki.
Í Bandaríkjunum voru í gær þekkt