Morgunblaðið - 07.03.2020, Side 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
✝ Gísli Kristjáns-son fæddist í
Eyrarsveit 21. jan-
úar 1928. Hann
lést á Jaðri, Ólafs-
vík, 28. febrúar
2020. Foreldrar
hans voru Kristján
Jónsson, bóndi í
Móubúð, f. 1.11.
1874, d. 16.2. 1967,
og Kristín Gísla-
dóttir, húsfreyja í
Móubúð, f. 6.7. 1890, d. 25.1.
1962.
Systkini hanns voru: Kristín,
f. 1905, d. 1908, Kristín Guð-
ríður, f. 1908, d. 1993, Guð-
ríður, f. 1911, d. 1992, Gísli, f.
1913, d. 1928, Guðrún Líndal, f.
1916, d. 2010, Jósefína, f. 1917,
d. 2004, Una, f. 1920, d. 1981,
Jón Kristjánsson, f. 1920, d.
1997, Hallgrímur Kristjánsson,
f. 1923, d. 1998, Kristján Krist-
jánsson, f. 1925, d. 2001, Ragn-
ar, f. 1929, d. 2014, Guðbjörg,
f. 1930, d. 2003, Arndís, f.
1937.
Gísli kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Lilju Finn-
bogadóttur húsmóður, f. 5.5.
1930 á Seyðisfirði, í Reykjavík
28.2. 1953. Foreldrar Lilju voru
Finnbogi Laxdal Sigurðsson,
Seyðisfirði, f. 1901, d. 1988, og
Kapitóla Sveinsdóttir, Seyð-
isfirði, f. 1907, d. 1976.
Gísli og Lilja eignuðust 5
börn:
Kristín, f. 1952, maki Ómar
Unnari Leifssyni, f. 1956.
Dætur þeirra Halldóra Kristín,
f. 1982. Rebekka, f. 1986 sam-
býlism. Patrick Roloff, f. 1984.
Börn þeirra Elisabeth Hall-
dóra, f. 2013, Leifur Hans, f.
2016. Fyrir átti Guðrún dótt-
urina Sigrún Kapitolu Guðrún-
ardóttur, f. 1977. Maður Sig-
rúnar Hugi Einarsson, f. 1965,
d. 2015, Börn þeirra Unnar
Freyr, f. 2003, Vigdís Dröfn, f.
2006, Kristján Darri, f. 2014.
Hafdís, f. 29. jan. 1959, gift
Einari Sveini Ólafssyni, f. 1957.
Börn þeirra: Sigurhanna
Ágústa, f. 1988, sambýlism.
Guðmundur Njáll Þórarsson, f.
1980. Synir þeirra Hallberg
Helgi, f. 2016, Einar Sveinn, f.
2019. Guðmudur Grétar, f.
1990.
Katrín, f. 11. nóv. 1963, gift
Jóhanni Rúnari Kristinssyni, f.
1957. Börn þeirra: Arnar Lax-
dal, f. 1981 giftur Bryndísi
Ástu Ágústdóttur, f. 1978. Börn
þeirra Jóhann Ágúst, f. 2005,
Evíta Eik, f. 2010. Ester Soffía,
f. 1982. Synir hennar: Dagur
Máni Daníelsson, f. 2003. Rún-
ar Ernir Daníelsson, f. 2005.
Friðþjófur Orri, f. 1987 sam-
býliskona Rakel Magnúsdóttir,
f. 1987. Börn þeirra Inga Dís, f.
2011, Steinar Orri, f. 2016.
Lilja Hrund, f. 1994 sambýlism.
Benedikt Gunnar Jensson, f.
1996. Fyrir átti Gísli Gylfa Þór,
f. 23.3. 1951.
Gísli fæddist í Móabúð,
Grundarfirði, sem þá var torf-
bær, þar sem hann ólst upp og
fór ungur að vinna heima við
með bræðrum sínum. Hann var
8 ára gamall þegar hann hóf
sjómennsku með föður sínum á
handfærum. Sautján ára gam-
all réðst hann á síldarbátinn
Olivette SH 3 sem gerður var
út frá Stykkishólmi. Hann flutti
síðan til Reykjavíkur þar sem
hann bjó hjá systur sinni og
starfaði við byggingarvinnu.
Á lífsleiðinni kynntist Gísli
öllum tegundum fiskifleyja, allt
frá árabátum til skuttogara.
Hann var um langt árabil, eða
frá 1947 ýmist á bátum, síðu-
togurum eða snurvoðarbátum,
lengst af sem skipstjóri og m.a.
í útgerð með Jóni bróður sínum
og fleirum um tíma. Létu þeir
m.a. smíða eikarbátinn Kristján
SH 6 í Stykkishólmi 1961 sem
þeir gerðu út til ársins 1965
þegar báturinn var seldur
norður í land.
Árið 1950 kynntist Gísli
eftirlifandi eiginkonu sinni,
Lilju Finnbogadóttur frá Seyð-
isfirði, og gengu þau í hjóna-
band 1953 þar sem dóttir
þeirra, Kristín, var skírð við
sama tilefni. Gísli og Lilja
fluttu ásamt Kristínu og Stur-
laugi, sem þá var fæddur, til
Grundarfjarðar 1955. Gísli og
Lilja ferðuðust mikið innanland
og erlendis. Hann var bridge-
spilari og golfbakteríuna fékk
hann eftir að hann hætti að
vinna. Í kjölfar heilsumissis
flutti Gísli ásamt eiginkonu
sinni á Dvalarheimilið Jaðar,
þar sem hann lést.
Gísli verður jarðsunginn frá
Grundarfjarðarkirkju í dag, 7.
mars 2020, og hefst athöfnin
klukkan 14.
Antonsson, f. 1953.
Börn þeirra: Guð-
björg, f. 1971, gift
Skúla Ingólfssyni,
f. 1966, Börn
þeirra: Kristján
Björn, f. 1991, Kol-
brún Lija, gift
Kristni Vignissyni,
f. 1992, sonur
þeirra Haukur, f.
2019. Gísli Sigur-
jón, f. 1974, sam-
býlisk. Eva Charlotte Ákes-
dotter SundQvist 1977. Börn
þeirra: Ásta Kristín Lovisa
Gísladóttir SundQvist, f. 2010,
Lilja Merit Gréta Gísladóttir
SundQvist, f. 2014, Leo Karl
Anton Gíslason SundQvist, f.
2014, Ómar Ingi, f. 1983.
Sturlaugur Laxdal, f. 1954,
giftur Helgu Þórný Alberts-
dóttur 1955. Börn þeirra: Sig-
urður Helgi, f. 1974, giftur
Ingibjörgu Guðmundsdóttur, f.
1974. Börn þeirra Jóhannes
Laxdal, f. 1997, Þórný Kristín,
f. 2004, Guðmundur Laxdal, f.
2010. Lilja Lind, f. 15. apríl
1977, gift Aðalgeir Jónassyni, f.
1975. Börn þeirra Helgi Lax-
dal, f. 1999, Finnbogi Laxdal, f.
2002, Jónas Laxdal, f. 2009.
Guðrún, f. 1980, gift Þresti
Snæ Eiðssyni, f. 1978. Börn
þeirra Albert Laxdal, f. 2003,
Helga Þórný, f. 2009, Rúna
Björg, f. 2012, Lilja María, f.
2016. Gísli Laxdal, f. 1986
Guðrún, f. 10. nóv. 1957, gift
Í dag verður þú kvaddur í
hinsta sinn. Það er sagt að maður
komi í manns stað en eitt er víst að
enginn kemur í þinn stað! Það átti
allt að vera í röð og reglu. Ég fékk
nýtt hjól og hjólið átti alltaf vera
inni í bílskúr þegar ég var ekki að
nota það svo að það myndi ekki
ryðga, enda notuðu börnin mín
það hjólið líka. Alltaf þegar þú
hringdir vildir þú tala við Jóa eða
strákana okkar til að fá fréttir af
fiskiríi því þú vissir að ég vissi
ekki hvað hver var að fiska. Þinn
áhugi á fiskifréttum var fram á
seinasta dag. Við fjölskyldan átt-
um góðar stundir með þér og
gaman var að setjast niður þegar
þú dast í gírinn og sagðir okkur
skemmtilegar sögur frá bæði nýj-
um og gömlum tímum. Þú hafðir
mikinn áhuga á ættfræðum og
vildir vita hverra manna allir
væru. Áttir auðvelt með að láta
okkur og börnin okkar dansa í
kringum þig, þú sendir okkur til
dæmis margsinnis í Víði að kaupa
saltkjöt og hangikjöt, þar sem þú
heyrðir í útvarpinu að hagstæð-
ustu kjörin væru í Víði og að sjálf-
sögðu gerðum við það og slegið
var til veislu á Háarifi 7. Allt
þurfti að gerast strax og allt í
hvelli. Þú og Jói rúntuðuð mikið
saman um allt Snæfellsnes, þú
fræddir hann um mið og örnefni.
Þið fóruð ykkar seinasta rúnt í lok
ársins 2019 inn í Móabúð. Þú varst
mikil aflakló, Jói minnist þess
þegar þið lögðuð saman haukalóð,
daginn eftir fara Jói og Friðþjófur
saman að vitja lóðarinnar og fá
þessa risalúðu að lúðan var það
stór að þeir siglduð að næsta bát
til að fá aðstoð við að ná lúðunni
um borð.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Katrín og Jóhann, Rifi.
Í dag kveðjum við Gísla
tengdaföður minn, mikinn mann
sem gat verið stórstígur í sam-
skiptum en hjálpsamur og með
gott hjarta. Hann var mann-
glöggur með eindæmum.
Þegar við Habba bjuggum í
bænum fórum við Gísli oft niður
að bryggju og rúntuðum um höfn-
ina í Hafnarfirði og Reykjavík
sem voru í þá daga ekki girtar af
til að fyrirbyggja almenna um-
ferð. Það kom oftar en ekki fyrir
er við ókum fram hjá mönnum
sem þar voru að hann sagði stopp-
aðu! Þessi var með mér á Neptún-
usi eða Úranusi eða Röðli. Sam-
band hans við þessa menn var
sterkt. Þeir höfðu verið með hon-
um á síðutogurunum, deildu sam-
an káetum allt upp í 20 mans,
höfðu barið saman ísinn af skip-
unum og stundum upp á líf eða
dauða. Gísla þótti vænt um sitt
fólk og fylgdist með sínu fólki.
Þegar ég kom á vertíð í
Grundarfjörð 1977 heyrði ég fljót-
lega af kalli sem héti Gísli Móa og
að hann ætti fjórar dætur og að
þær skyldi ég láta eiga sig. Kall-
inn hefði nefnilega komið eitt sinn
út með haglabyssu þegar einhver
piltanna í þorpinu hafði vogað sér
að nálgast þær. Ég hugsaði sam-
stundis að ég ætlaði sko ekki að
koma mér í slík vandræði. En ein-
hvern veginn æxlaðist það samt
svo að kvöld eitt hitti ég unga
stúlku sem bauð mér með sér
heim til að hlusta á plötur. Heim-
ilisfólk var allt farið að sofa og
þarna hlustuðum við á plötur og
spjölluðum. Það næsta sem ég
man er að það er hrópað þungri
karlmannsrödd: „Lilja, það sefur
strákur inni í stofu hjá henni
Höbbu!“ Ég hrökk dauðskelkaður
upp með andfælum og hugsaði
hvort það gæti verið að ég hefði
álpast heim til Gísla Móa. Hélt
niðri í mér andanum og lokaði
augum. Þá heyri ég létt fótatak og
blíða röddu segja: „Gísli minn,
hann er nú í fötunum svo þér er al-
veg óhætt að fara á sjóinn.“ Nú
hefði Gísli sagt: „Þú steinþegir yf-
ir þessu, Einar Sveinn!“
Nú skilur leiðir og samveru-
stundir með Gísla verða ekki fleiri
í þessari tilveru. En minningarnar
eru margar og þegar ég lít yfir
farinn veg fyllist ég þakklæti fyrir
tímann með góðum og hlýlegum
tengdaföður sem skildi eftir sig
gott dagsverk.
Einar Sveinn Ólafsson.
Elsku afi Gísli er fallinn frá.
Hann var mjög skemmtilegur
afi. Hann hafði mjög gaman af því
að stríða, hann var þekktur sem
skrýtni afinn í mínum vinkvenna-
hópi. Eitt skipti sem vinkona mín
kom og spurði eftir mér var hann
hjá okkur í Kópavogi. Hann kom
til dyra og horfði á vinkonu mína
sem spurði hvort ég væri heima?
Hann jánkaði því og lokaði svo á
hana. Hún beið í smá stund og
bankaði svo aftur. Hann opnaði og
hún spyr aftur: „er Ágústa
heima?“ Já, sagði hann og lokaði
aftur á hana. Hún stóð enn og ekk-
ert gerðist. Hún bankaði í þriðja
sinn og afi opnaði dyrnar. „Er
Ágústa heima? Má ég tala við
hana?“ „Já auðvitað, komdu inn
vina mín,“ svaraði hann og glotti.
Hann var engum líkur og mér
hefur alltaf fundist hann skemmti-
legur karl. Þegar ég svo kynntist
Guðmundi mínum þá var okkar
fyrsta umræða um afa, sem er
frekar fyndið. Afi var mjög hrifinn
af honum, enda sjómaður og tók
vel í húmorinn hans. Hann var
mikið fyrir börn og gaf sér tíma
fyrir þau. Alltaf þegar ég kom að
heimsækja hann á Jaðar þá spurði
hann um litlu strákana mína ef
þeir voru ekki með. Hann átti allt-
af gott í boxi á náttborðinu fyrir
börnin.
Afi var mikill peningakarl og
sparaði fram á síðasta dag. Hann
hafði mikinn áhuga á því sem mað-
ur var að gera í lífinu og hvort
maður væri nú ekki örugglega að
spara. Ég er búin að eyða miklum
tíma með honum síðustu 7 árin.
Eftir að hann veiktist þá tók ég
hann nokkrum sinnum heim til
ömmu í Grundarfjörðinn og þar
var eldað saltkjöt að hans ósk og
auðvitað borgaði hann fyrir það.
En ég átti að athuga með verðið á
því í Samkaupum og Bónus. Hvað
væri nú hagstæðast fyrir hann.
Eftir að hann fór inn í Ólafsvik á
dvalarheimilið þá fannst honum
mjög dýrt að fara í klippingu svo
hann samdi við mig um að ég
mundi klippa hann fyrir 1.000 kr.
og það áttu að líða 2 mánuðir á
milli. En við tókum nú samt alltaf
stöðuna þegar ég kom, hversu
mikið hreiður væri komið. Þegar
ég var að klippa hann þá byrjaði
hann að stríða mér eins og hann
hafði gaman af. Hann sagði að ég
væri svo snögg að þessu. Hann
væri að spá í að borga mér tíkall
fyrir mínútuna. Ég var alveg sam-
mála honum en ég sagðist þá
koma með plokkarann. Þá hlakk-
aði í honum.
Mér líður svo vel að hafa verið
til staðar fyrir hann. Ég er svo
þakklát fyrir allar þessar stundir
með honum og þær eru ómetan-
legar. Afi var maður sem var með
stóran kjaft en svo pínulítið hjarta.
Hann er einn stærsti karakter
sem ég hef kynnst. Það fallegasta
sem ég veit er hvað hann elskaði
ömmu mikið fram á síðasta dag.
Ég á eftir að sakna hans svo
mikið.
Ég er svo þakklát fyrir allar
minningarnar sem ég á til að miðla
strákunum mínum.
Blessuð sé minning afa Gísla.
Hann mun alltaf fylgja mér.
Sigurhanna Ágústa
Einarsdóttir.
Gísli Kristjánsson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Sálm. 86.11
biblian.is
Vísa mér veg þinn,
Drottinn, að ég
gangi í sannleika
þínum, gef mér
heilt hjarta, að ég
tigni nafn þitt.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og systir,
GUÐRÚN JAKOBSDÓTTIR
frá Hömrum,
síðast búsett á
Sólmundarhöfða 7, Akranesi,
lést þriðjudaginn 11. febrúar
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Hafsteinn Hallgrímsson
Jakob Sigurðsson Ólöf Bjarney Hauksdóttir
Sólveig Sigurðardóttir
Sigrún Sigurðardóttir Helgi Sigurbjörnsson
Aðalbjörg Alla Sigurðardóttir Elvar Grétarsson
Stefanía G. Sigurðardóttir Pétur Svanbergsson
Magnús Jakobsson
Katrín Jakobsdóttir
og fjölskyldur
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT INGIBJÖRG HANSEN,
andaðist á Borgarspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 17. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
fyrir yndislega umönnun sem og starfsfólkið á bráðamóttöku
Borgarspítalans.
Guðmundur Arnarsson
Ingibjörg Anna Arnarsdóttir Bjarni Brynjólfsson
Ragnhildur Elín Garðarsd.
Margrét Edda Lian Bjarnadóttir
Þorbjörg Anna Qing Bjarnadóttir
Arnar Þorri Óskarsson
Garðar Ernir Óskarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma, mágkona og tante,
GUÐLAUG HALSÖR SIGVARDSDÓTTIR,
Lalla,
Vesturgötu 38, Keflavík,
andaðist þriðjudaginn 3. mars í faðmi
fjölskyldunnar. Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 13. mars klukkan 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á SOS barnaþorpin.
Sigurður Ragnarsson
Kristín Linda Ragnarsdóttir Sveinbjörn Gizurarson
Guðný Ásta Ragnarsdóttir Guðjón Bragason
Davíð Örn Sveinbjörnsson Fjóla Dögg Halldórsdóttir
Benjamín R. Sveinbjörnsson
Guðlaug M. Sveinbjörnsd. Birkir Eyþór Ásgeirsson
Sunneva Kristín Guðjónsd.
Salómon Blær, Elísa Björt og Annika Bára Davíðsbörn
Elsa Halsør og fjölskylda
Anbjørg Halsør og fjölskylda
Elskulegur bróðir okkar,
SKÚLI MAGNÚSSON,
Bugðutanga 28,
Mosfellsbæ,
er látinn.
Útför hans fer fram frá Áskirkju,
Vesturbrún 30, föstudaginn 20. mars klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á líknarfélög.
Sigrún Valdimarsdóttir
Mikael Sigurðsson
Valgerður Magnúsdóttir
Auður Lekay
Erna Magnúsdóttir