Morgunblaðið - 07.03.2020, Side 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
✝ Aðalsteinn Þór-ólfsson fæddist
í Stóru-Tungu í
Bárðardal 31. maí
1928. Hann lést á
Skógarbrekku á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Húsavík 1. mars
2020. Foreldrar
hans voru Þórólfur
Jónsson, bóndi í
Stóru-Tungu, f. 4.
nóvember 1905, d. 16. maí 1991,
og Anna Guðrún Sveinsdóttir
húsmóðir, f. 2. september 1908,
d. 27. mars 2001. Aðalsteinn var
elstur sex systkina: Jón Sveinn,
f. 18. desember 1929, Þórdís
Vilborg, f. 4. mars 1932, d. 24.
ágúst 1984, Hrafnhildur, f. 15.
desember 1933, d. 31. júlí 2009,
Ragnheiður, f. 24. apríl 1936 og
Gunnar, f. 13. mars 1938.
Aðalsteinn
kvæntist 2. sept-
ember árið 1956
Guðrúnu Jónu
Jónmundsdóttur,
f. 6. febrúar 1934.
Börn þeirra eru: 1)
Anna Guðrún, f.
1956, gift Jósep
Magnússyni. 2)
Torfi, f. 1957,
kvæntur Unni
Kjartansdóttur. 3)
Þórólfur, f. 1959, kvæntur
Hólmfríði Sigurðardóttur. 4)
Jónmundur, f. 1960, kvæntur
Þórunni Kristinsdóttur. 5)
Trausti, f. 1961, kvæntur Unni
Guðjónsdóttur. 6) Dóra, f. 1963,
gift Bárði Rafnssyni. 7) Sveinn,
f. 1968, kvæntur Sif Jóhann-
esardóttur. Fyrir átti Guðrún
tvö börn. Þau eru: Halldór
Tjörvi Einarsson, f. 1952,
kvæntur Amalíu Rögnu Þor-
grímsdóttur og Gunnjóna Sig-
rún Hringsdóttir, f. 1954, gift
Jónasi Sigurðarsyni. Aðalsteinn
og Guðrún eiga 41 barnabarn
og 51 barnabarnabarn.
Aðalsteinn ólst upp í Stóru-
Tungu í Bárðardal. Hann gekk í
farskóla þar og veturinn 1946-
1947 í Laugaskóla í Reykjadal.
Hann útskrifaðist úr Bænda-
skólanum á Hólum árið 1950.
Hann tók meirapróf bifreiðar-
stjóra árið 1952. Hann hóf bú-
skap með foreldrum sínum 1956
og stofnaði nýbýli, Stóru-Tungu
2, árið 1958. Jafnframt bú-
rekstrinum keyrði hann mjólk-
urbíl í Bárðardal frá árinu 1954
til 1966. Hann sá um skóla-
akstur í Bárðardal frá 1974 til
1996. Árið 1996 hættu Aðal-
steinn og Guðrún búskap í
Stóru-Tungu og fluttu til Húsa-
víkur. Eftir að hjónin fluttust til
Húsavíkur var Aðalsteinn bað-
vörður í Íþróttahöllinni á Húsa-
vík í tvö ár.
Útför Aðalsteins fer fram frá
Húsavíkurkirkju í dag, 7. mars
2020, klukkan 11.
Elsku afi besti er farinn yfir í
sumarlandið. Ég sé afa fyrir
mér, loksins búinn að endur-
heimta pípuna sína góðu, í hópi
góðra manna. Kannski er Begga
frænka hjá honum, búin að gera
pönnukökur með rjómafroðu. Og
afi hefur að sjálfsögðu hæst
manna. Það fór aldrei framhjá
manni ef afi var í húsinu.
Mér var einu sinni sagt að afi
hefði passað mig stund úr degi
þegar ég var krakki, en það var
hálfómögulegt fyrir hann því
hann komst ekki að, svo mikið
talaði ég. Ætli ég hafi ekki fengið
það að einhverjum hluta frá hon-
um, að geta stundum ómögulega
þagnað.
Ég fór stundum að spila fé-
lagsvist með eldri borgurunum
heima og þar hittumst við afi.
Borðið sem afi sat við hverju
sinni var alltaf seinast til að
ljúka umferðinni og þar var að-
eins einu um að kenna, Aðal-
steinn þurfti að ræða málin vel
og rækilega og segja nokkra
brandara.
Afi var fyndinn og góður og
taldi sig vera svo lúmskan. Fyrir
mörgum árum hættu amma og
afi að reykja í sameiningu. Þrátt
fyrir að vera alveg steinhættur
að reykja mátti gjarnan finna afa
úti í bíl með pípuna, uppi í fjár-
húsum eða úti í bílskúr. Samt al-
veg steinhættur.
Afi var alltaf hreinskilinn við
alla, kannski stundum of hrein-
skilinn, en það var alltaf stutt í
brosið og hláturinn. Það sem lýs-
ir afa kannski best er að á síð-
ustu árum varð honum tíðrætt
um hversu gott líf hann hafði átt.
Hann var til í að gera þetta allt
aftur, nákvæmlega eins.
Við hittumst aftur seinna,
elsku afi, og gerum þetta
kannski bara aftur, nákvæmlega
eins.
Sonja Sif Þórólfsdóttir.
Aðalsteinn
Þórólfsson
✝ Erla KristínSvavarsdóttir
fæddist 2. septem-
ber 1957 í Reykja-
vík. Hún andaðist á
Landspítala Há-
skólasjúkrahúsi 21.
febrúar 2020.
Móðir Erlu Krist-
ínar var Ólína Jör-
undsdóttir, f. 18.
júní 1924, d. 20. júní
2005, faðir Svavar
Kristjónsson rafverktaki, f. 4.
júní 1927, d. 18. maí 2012.
Maki er Smári Ragnarsson, f.
13. febrúar 1954, foreldrar Bára
Sigríksdóttir og Ragnar Braga-
son.
Börn Erlu Kristínar og Smára
eru: Sveinn Ívar, f. 1986, Andri
Sævar, f. 1990, og Einar Sindri,
f. 1992.
Systkini Erlu Kristínar eru
Guðný, f. 17.
september 1950,
Jörundur, f. 25.
ágúst 1952, Lilja
Steinunn, f. 23. apríl
1960, Auður Ólína,
f. 13. desember
1962.
Erla Kristín ólst
upp í Reykjavík, bjó
fyrst í Sigluvogi,
síðan Eikjuvogi.
Hún gekk í Voga-
skóla, síðan Menntaskólann við
Sund. Erla menntaði sig sem
tölvunarfræðingur við HÍ og
vann við það í 25 ár. Seinna fór
hún í meistaranám í stærðfræði
og kennslufræði. Erla Kristín
vann síðustu árin sem stærð-
fræðikennari við Menntaskólann
við Sund.
Útför Erlu Kristínar fór fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Erla Kristín, systir mín, er
fallin frá langt fyrir aldur fram.
Ég minnist Stínu úr bernsku
sem frekar rólegs barns. Það fór
ekki mikið fyrir henni og allt
hennar fas einkenndist af hóg-
værð og kurteisi. Ekki lét hún þó
allt yfir sig ganga og stóð föst á
sínu þegar á reyndi. Þetta hefur
fylgt henni alla tíð. Hún hafði
þegar á unga aldri sterka rétt-
lætiskennd og minnti þannig
mjög á móður okkar, en sterk
réttlætiskennd var eitt af skap-
gerðareinkennum hennar.
Ung kynntist Stína honum
Smára og hóf búskap með hon-
um. Ekki veit ég hvað dró þau
saman. Það gæti hafa verið þessi
skemmtilega kímni sem ein-
kenndi þau bæði. Stína hafði gott
auga fyrir hinu sérkennilega og
skemmtilega í okkar fari og hafði
gaman af því að lauma að manni
einhverjum fyndnum athuga-
semdum um menn og málefni.
Hún var glaðvær og góður ein-
staklingur. Ég minnist hennar
með söknuði.
Kennsla varð aðalvettvangur
starfsferils Stínu síðustu árin.
Hún nýtti vel þau tækifæri til
endurmenntunar sem gáfust og
fór í fjölda ferða til útlanda í
þeim tilgangi, oft með syni sína
sem ferðafélaga. Ferðirnar urðu
því einnig þroskandi fyrir strák-
ana þeirra.
Stína var traustur, sanngjarn
og heiðarlegur einstaklingur.
Það er mikil eftirsjá að henni. Ég
vil þakka Stínu samfylgdina og
sendi Smára og sonum þeirra
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Jörundur.
Elsku hjartans mágkona Erla
Kristín, eða Stína eins og hún
var alltaf kölluð, tapaði stríðinu
við „krabbann“ eins og svo marg-
ir á undan henni.
Ég veit að drottinn tekur vel á
móti þér, elsku mágkona, því þar
átt þú svo sannarlega öruggt
sæti þ.e. í Paradís. Þar bíða þín
ættingjar sem taka á móti þér.
En eins og Vilhjálmur Vil-
hjálmsson syngur í laginu Sökn-
uður;
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan dag kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verða að
segja
að sumarið það líður allt of fljótt.
Það er víst það eina í lífinu
sem við eigum öruggt er að
deyja.
Mig langar að þakka þér fyrir
þær samverustundir sem við
fengum annars vegar á „Borgó“
svo á Landspítalanum við Hring-
braut. Þú varst auðsjáanlega illa
haldin af andnauð og verkjum,
áttir erfitt með að tal.
Eins og svo oft í þessu lífi er
maður horfir til baka sér maður
hversu illa við förum með þann
tíma sem við fáum hér á jörðu.
Auðvitað áttum við að hittast oft-
ar, vera saman og rækta sam-
bandið, leyfa börnunum okkar að
kynnast, tengjast og þannig gefa
þeim möguleika á að tengjast
nánum böndum.
Þegar við mætum erfiðleikum
eða sorg í lífinu er gott að hafa
öxl góðs vinar eða fjölskyldu til
að halla höfði sínu á.
Ég gerði mér enga grein fyrir
því þegar ég kvaddi þig á
fimmtudaginn 20. febrúar til að
fara heim vestur á Snæfellsnes
að við myndum ekki hittast aftur
á næsta mánudag.
Nú sit ég og hlusta á Abba og
hugsa til þín, Smára og drengj-
anna ykkar. Þú varst gæfukona
að kynnast Smára. Þið eignuðust
þrjá myndarpilta, Svein Ívar,
Andra Sævar og Einar Sindra.
Þið Smári stóðuð þétt saman í líf-
inu og komuð þeim manns og all-
ir eru þeir vel menntaðir.
Ég hygg að þú hafir ekki alltaf
átt áfallalausa æsku. Þú varst í
miðjunni af 5 systkinum, áttir oft
í stríði við yngri systur sem voru
fyrirferðarmiklar og tóku meira
pláss í fjölskyldulífinu en nokk-
urn tíma þú, sem varst frekar ró-
leg eftir því sem mér er sagt.
Stína, þú varst heiðarlegasta
manneskja sem ég hef kynnst.
Barst höfuðið hátt og stóðst á
þínu, samt alltaf ljúf og indæl.
Smári og synir ykkar eru svo
sannarlega gott dæmi um góða
vináttu og samvinnu.
Elsku Stína ég geri mitt best í
því að halda það loforð sem þú
baðst mig um síðast þegar við
hittumst.
Elsku Smári, Sveinn Ívar,
Andri Sævar og Einar Sindri, ég
bið að góður guð styrki ykkur í
sorg ykkar og missi. Ég vona að
þið leyfið okkur Jörundi að taka
á móti ykkur í sveitinni því þar
er gott að fyllast orku og hvíla
hugann.
Sif Matthíasdóttir.
Fyrir fimm árum þegar okkur
vantaði stærðfræðikennara við
Menntaskólann við Sund slóst
Erla Kristín í hópinn okkar. Vel
menntuð, hrein og bein, hógvær,
róleg og fagleg í öllu sem hún tók
sér fyrir hendur og lét ekkert slá
sig út af laginu. Í fyrsta sinn þeg-
ar við hittumst og ræddum
möguleikann á því að hún kæmi
til starfa hjá okkur varð mér
ljóst að þarna færi manneskja
sem hvorki myndi láta gleði og
ærsl æskunnar né mikið álag í
vinnunni raska ró sinni.
Erla var farsæl í starfi og hún
var góður vinnufélagi. Undir
yfirborði rólyndis og yfirvegunar
kraumaði oft kímni og gleði yfir
hinu sérkennilega og fyndna í líf-
inu. Þessi eiginleiki hennar að
sjá hið broslega gerði það að
verkum að samskiptin við Erlu
Kristínu voru oft afar skemmti-
leg. Erla Kristín var ekki mikið
að berja sér á brjóst. Hún var
frekar til hlés með sína líðan og
þegar veikindin komu held ég að
hvorki ég né margir aðrir af
hennar nánasta samstarfsfólki
hafi áttað sig á alvarleika veik-
inda hennar. Afl hins illvíga sjúk-
dóms var meira en nokkurn
grunaði og allt í einu er Erla
Kristín farin í ferðalagið langa.
Áfall okkar sem störfuðum með
henni er mikið en þó hjóm eitt
þegar hugsað er til hins mikla
missis sem fjölskylda hennar
hefur orðið fyrir. Nú þegar við
kveðjum Erlu Kristínu er hugur
minn hjá hennar nánustu fjöl-
skyldu, Sigríki Smára og sonun-
um þremur. Megi minningarnar
lina þjáningar þeirra.
Már Vilhjálmsson.
Erla Kristín
Svavarsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinar
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
SIGRÍÐAR BENNÝJAR EIRÍKSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Mánateigs á Hrafnistu fyrir
umhyggju og hlýju í garð Sigríðar.
Eiríkur Gunnarsson Valgerður Stefánsdóttir
Trausti Gunnarsson Berglind Rut Sveinsdóttir
Hildur Gunnarsdóttir Guðjón Pétur Ólafsson
Ragnheiður Gunnarsdóttir Bjarni Snæbjörnsson
Unnur Gunnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýjar kveðjur við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÓLAFAR INGIBJARGAR
HARALDSDÓTTUR,
Laugardælum.
Hjartans þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á
Ljósheimum/Fossheimum fyrir hlýju og góða umönnun.
Sigríður Þórarinsdóttir Óli Sverrir Sigurjónsson
Haraldur Þórarinsson Þórey Axelsdóttir
Kristín Þórarinsdóttir Garðar Sverrisson
Ólafur Þór Þórarinsson Malin Widarson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
RAGNHEIÐAR HILDIGERÐAR
HANNESDÓTTUR
frá Litla-Vatnshorni, Haukadal,
síðast Sléttuvegi 21, Reykjavík.
Jafnframt sendum við innilegar þakkir til alls starfsfólksins á
deild A-2 á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut
fyrir frábæra umönnun.
Trausti Víglundsson Kristín Bertha Harðardóttir
Guðrún Stefanía Víglundsd. Heiðar Gíslason
Ásgeir Sævar Víglundsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Þökkum innilega og af heilum hug þá
virðingu og ótrúlega miklu væntumþykju
sem okkar ástkæra syni og bróður,
SIGURÐI DARRA BJÖRNSSYNI,
Erluási 31,
og fjölskyldu hans hefur verið sýnd við
sviplegt fráfall hans af stórum hópi fólks.
Sérstaklega er björgunarsveitum og viðbragðsaðilum þökkuð
veitt aðstoð.
Megi guð fylgja ykkur.
Rannveig Sigurðardóttir Björn Arnar Magnússon
Salvör Svanhvít Hinrika Salka
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
KNÚTS BJARNASONAR,
Kirkjuvöllum 5, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
hjúkrunarheimilsins Skógarbæjar fyrir góða umönnun.
Bryndís Stefánsdóttir
Stefanía Knútsdóttir Ólafur Helgi Árnason
Knútur Knútsson Elena Orlova
Bjarni Knútsson Pálmey Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
ÞÓREY ÖNUNDARDÓTTIR
frá Neskaupstað,
Klapparstíg 1, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn
9. mars klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkað.
Baldur Bjarnason
Ásdís Rósa Baldursdóttir Kristján Gíslason
Guðrún Baldursdóttir Gísli Sverrir Árnason
Björg Baldursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn