Morgunblaðið - 07.03.2020, Qupperneq 46
46 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
60 ára Kristján er Gafl-
ari en býr á Akureyri.
Hann lærði vélvirkjun í
Iðnskólanum í Hafnar-
firði og hjá Stálvík og 1.
stigs vélstjóra í Fram-
haldsskólanum á Húsa-
vík. Kristján er fram-
kvæmdastjóri Gúmmíbátaþjónustu
Norðurlands.
Maki: Borghildur Kjartansdóttir, f. 1960,
starfsmaður Sjúkrahússins á Akureyri.
Börn: Kristel, f. 1979, Daði, f. 1984, Bjarki,
f. 1990, Fanney, f. 1991, og Laufey, f. 1995.
Barnabörnin eru orðin 8.
Foreldrar: Kristján Þórðarson, f. 1928, d.
2006, skrifstofustj. slökkviliðsins á Kefla-
víkurflugvelli, og Sigrún Sigurðardóttir, f.
1935, tækniteiknari, fv. skrifstofukona og
vann við saumakennslu, bús. í Hafnarfirði.
Kristján Kristjánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er skynsamlegt að láta nýtt
fólk sanna sig áður en þú gerir upp hug
þinn. Leyfðu þér að njóta lífsins betur,
slepptu áhyggjunum.
20. apríl - 20. maí
Naut Sýndu sérstaka varúð í umferðinni.
Njóttu þess að geta slakað á og horft yfir
gott dagsverk.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú kynnist manneskju sem á eft-
ir að hafa mikil áhrif á líf þitt. Stuðningur
frá vinum skilar sér oft í betri heilsu. Þú
missir andlitið í kvöld.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er of seint að byrgja brunninn,
þegar barnið er fallið ofan í hann. Gefðu
þér tíma til að kynnast nýjum fjölskyldu-
meðlim, það á eftir að borga sig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vertu bara nógu ákveðin/n í því sem
þú tekur þér fyrir hendur og láttu ekki slá
vopnin úr höndum þínum. Þú dregur and-
ann léttar eftir samtal við vin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einhver kemur þér skemmtilega á
óvart í dag. Kannski ert þú of fljótfær og
gerir eitthvað vanhugsað. Einhver rennir
til þín hýru auga.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að endurskoða lífsviðhorf
þitt. Láttu öfund annarra ekki draga þig
niður heldur láttu sem ekkert sé.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Svo virðist sem þú hafir ekki
komið öllum þínum persónulegu málum í
höfn. Hugsaðu þig því tvisvar um áður en
þú sendir skilaboð til aðila sem þú þekkir
ekkert.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það hefur ekkert upp á sig að
predika yfir fólki ef það er staðráðið í að
fara sína leið. Þú færð tækifæri til að gera
upp gamalt deilumál.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ekki nóg að hafa svörin
á reiðum höndum ef maður getur ekki
unnið rétt úr þeim. Vertu óhrædd/ur við
að segja þeim sem þú hittir daglega að
þeir skipti þig máli.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hvíldu þig og endurnærðu
líkama og sál. Láttu hverjum degi nægja
sína þjáningu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekkert rangt við það að
hugsa fyrst og fremst um eigið skinn.
Láttu ekki misvísandi fréttir trufla þig.
fjölda stjórnunarnámskeiða hjá
hinum ýmsu fræðslusetrum.“
Kristín starfaði á Landspítalanum
við Hringbraut frá 1982. „Á skurð-
stofunum störfuðu sex sjúkraliðar við
skurðhjúkrun við góðan orðstír, eða
þar til hjúkrunarfræðingarnir fengu
þá hugmynd að sjúkraliðar ættu alls
ekki að starfa við skurðhjúkrun. Þá
hófst gríðarlegt einelti í garð sjúkra-
liðanna og mín sérstaklega en ég var
þá aðaltrúnaðarmaður sjúkraliða á
sjúkrahúsinu. Á endanum flæmdist
ég úr starfi og fór að starfa á dauð-
hreinsideild, þ.e. deild sem sér um að
dauðhreinsa áhöld og tæki fyrir
skurðaðgerðir. Erfiðleikarnir sem af
þessu leiddi fyrir sjúkrahúsið urðu til
þess að mér var boðið að hafa frjálsan
starfstíma og sinna Sjúkraliðafélagi
Íslands (SLFÍ) sem ég var formaður
fyrir og sem þá var að feta sín fyrstu
skref sem stéttarfélag, á 50%
óskertum launum á móti launum hjá
félaginu.“
K
ristín Áslaug Guð-
mundsdóttir er fædd 7.
mars 1950 á Sund-
laugavegi 8 í Reykja-
vík, en þar leigðu for-
eldrar hennar kjallaraíbúð hjá föður-
systur hennar. „Ég var þriðja barn
foreldra minna en systir mín, Kristín
Áslaug sem fæddist 1947 dó af völd-
um heilahimnubólgu aðeins ársgömul
og ég erfði nafnið hennar.“ Þriggja
ára flutti hún með foreldrum sínum
og systrum að Mið-Grund austur
undir Eyjafjöllum. Þar ólst hún upp
þar til hún flutti að heiman til
Reykjavíkur og fór að búa með eig-
inmanni sínum, Diðriki Ísleifssyni,
aðeins 17 ára gömul.
„Í sveitinni ólst ég upp við allslags
störf líkt og venjan var í þá daga.
Þegar ég var aðeins 12 ára gömul
missti ég föður minn og stóð þá móð-
irin ein uppi með allan barnaskarann,
aðeins 38 ára gömul. Í heimili voru
einnig móðurafi minn og systur-
sonurinn Hróbjartur Jón Gunnlaugs-
son þá 15 ára en hann hafði alist upp
þar frá því hann missti móður sína sjö
ára gamall. Það var í mörg horn að
líta hjá ekkjunni ungu því hún tók þá
ákvörðun að halda saman fjölskyld-
unni og búa áfram með kýr og
kindur.“
Kristín gekk í barnaskólann á
Seljalandi og tók þaðan fullnaðarpróf.
„Ég hafði mikinn áhuga á að komast í
heimavistarskólann í Skógum en átti
ekki heimangengt þar sem móðir mín
hafði ekki efni á að greiða náms-
gjöldin og heimavistina.“ Eftir að
Kristín og Diðrik höfðu eignast börn-
in ákváðu þau að flytja til Svíþjóðar
þar sem Diðrik hafði fengið starf við
bílamálun en hann hafði útskrifast
sem bílamálari nokkru fyrr. Í Svíþjóð
bjuggu þau í þrjú ár og þar starfaði
Kristín fyrst á hjúkrunarheimili og
síðan á geðsjúkrahúsi.
Eftir að heim kom ákvað hún að
fara í sjúkraliðanám og útskrifaðist
frá Sjúkraliðaskólanum 1982. Síðar
eða árið 2003 fór hún í sérnám
sjúkraliða í hjúkrun aldraðra og lauk
námi í rekstrar- og viðskiptafræðum
frá Háskólanum á Akureyri 2005.
„Ég sótti einnig fjölda námskeiða
sem ætluð eru sjúkraliðum og sat
Stjórnunarstörf
Kristín var aðaltrúnaðarmaður
sjúkraliða á Landspítala 1983-1999,
formaður fagfélags SLFÍ 1986-1992,
formaður stéttarfélags SLFÍ 1992,
stjórnarmaður EPN – Evrópusam-
bands sjúkraliða og forseti samtak-
anna 1990-1994. Kristín var formaður
samninganefndar Sjúkraliðafélagsins
frá upphafi, hún var skipuð af
menntamálaráðherra til setu í nefnd
um starfsmenntun á framhalds-
skólastigi, skipuð af heilbrigðis-
ráðherra til setu í nefnd um endur-
skoðun á lögum um helbrigðis-
þjónustu, skipuð í nefndir af heil-
brigðisráðherra um málefni er varða
sjúkraliða, skipuð í nefndir af land-
læknisembætti um mál er varða
hjúkrunarþætti heilbrigðismála. Hún
var fulltrúi BSRB í heilbrigðisnefnd
Evrópusamtaka starfsfólks í
almannaþjónustu og sat í rann-
sóknarteymi Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss um verkferla hjúkrunar-
stétta.
Kristín sat sem fulltrúi í stjórn
BSRB, Bandalags starfsmanna ríkis
og bæjar, fyrst fyrir Starfsmanna-
félag ríkisstofnana og frá árinu 1992
sat hún í stjórn fyrir Sjúkraliðafélag
Íslands. „Í bandalaginu er unnið að
margvíslegum málum sem snerta
verkalýðshreyfinguna í heild. Á borði
BSRB er unnið að þeim málum sem
teljast snerta öll félög jafnt á ein-
hvern hátt. Má þar nefna samninga
um réttindi félagsmanna, túlkun á
hinum ýmsu málum, bandalagið rek-
ur sameiginlega hagdeild, er með lög-
fræðiaðstoð til aðildarfélaganna, sam-
eiginlegt starfsmenntasetur og
þannig mætti lengi telja.“ Kristín
hætti að starfa sem formaður Sjúkra-
liðafélagsins í maí árið 2018 og lauk
þar með öllum afskiptum hennar af
verkalýðsmálum.
„Í dag nýt ég þess að ferðast og
hugsa um barnabörnin og barna-
barnabörnin.“
Fjölskylda
Eiginmaður Kristínar er Diðrik Ís-
leifssson, f. 17.1. 1946, bílamálari og
trésmiður. Þau eru búsett í Tjarna-
byggð í Árborg. Foreldrar Diðriks
Kristín Á. Guðmundsdóttir, sjúkraliði og fv. formaður Sjúkraliðafélags Íslands – 70 ára
Í forsvari fyrir sjúkraliða í 30 ár
Formaðurinn Kristín árið 2011.
Hjónin Kristín og Diðrik fóru að búa saman þegar hún var 17 ára.
50 ára Svanberg er
fæddur á Fáskrúðs-
firði og ólst þar upp
en býr í Seljahverfinu í
Reykjavík. Hann er
kerfisfræðingur að
mennt frá Tölvu- og
verkfræðiþjónustunni
og er kerfisstjóri hjá Borgun.
Maki: Íris Hrund Halldórsdóttir, f. 1975,
aðjunkt í land- og ferðamálafræði við
Háskóla Íslands.
Börn: Guðmundur Ásgeir, f. 2010, og
Ester Sylvía, f. 2014.
Foreldrar: Guðni Gestsson, f. 1937, fyrr-
verandi sjómaður, búsettur á Fáskrúðs-
firði, og Halla Sylvía Svanbergsdóttir
Hjelm, f. 1937, d. 1989, húsmóðir á
Fáskrúðsfirði.
Svanberg Hjelm
Guðnason
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is