Morgunblaðið - 07.03.2020, Side 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2020
Mikill æsingur greip um sig
í körfuboltasamfélaginu í vikunni
þegar Brynjar Þór Björnsson,
leikmaður Íslandsmeistara KR,
tilkynnti að hann ætlaði ekki að
spila leik með liðinu vegna ótta
við útbreiðslu kórónuveirunnar.
Skoraði hann jafnframt á
íþróttahreyfingar um allt land að
stöðva hópsamkomur á meðan
óvissuástand er í samfélaginu.
Eins og við mátti búast voru við-
brögðin mörg og misjöfn.
Hrósyrði fékk Brynjar frá
mörgum áhyggjufullum þegnum.
Þökkuðu honum fyrir að ganga
fram með ábyrgum hætti og taka
af skarið þegar aðrir kannski
þora ekki. Brynjar, og margir
aðrir, óttast að yfirvöld hafi sofn-
að á verðinum og taka því málin í
eigin hendur, afboða sig og sína
á hópsamkomur.
Gagnrýni á ákvörðun Brynjars
vantaði þó ekki heldur. KR-ingar
voru nú bara svekktir yfir því að
samningsbundinn starfsmaður
þeirra ætlaði að skrópa í
vinnunni án þess að hafa svo
mikið sem varað þá við. For-
maður KKÍ hvatti fólk til að halda
ró sinni og fylgja fyrirmælum
yfirvalda, sem enn hafa ekki sett
á samkomubann hér á landi.
Ég er á báðum áttum. Ég
skil ákvörðun Brynjars, og ef
sannfæring hans er óbifanleg í
þessum efnum er ekki annað
hægt en að bera virðingu fyrir
henni. En auðvitað skil ég líka af-
stöðu körfuboltasambandsins og
yfirvalda sem vilja ekki breyta
óvissuástandi í ofsahræðslu og
múgæsing.
Höfum aðgát og fylgjumst
vel með. Það er skiljanlegt að
fólk sé hrætt þegar heimsfar-
aldur gæti verið undir. Við kom-
umst þó stutt ef ofsahræðsla og
óðagot ræður ríkjum.
BAKVÖRÐUR
Kristófer
Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
BIKARÚRSLIT
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Handboltinn á sviðið þessa dagana
enda bikardagar í Laugardalshöll-
inni sem ná hámarki sínu í dag þegar
úrslitaleikir Coca Cola-bikarsins
fara fram. Klukkan 13.30 hefst úr-
slitaviðureign kvenna en þar mætast
Fram og KA/Þór. Karlarnir stíga
svo á stokk klukkan 16 þegar ÍBV
etur kappi við Stjörnuna.
Ætti bara að fara á einn veg
Kvennalið Fram hefur verið eitt
það sterkasta í handboltanum und-
anfarin ár en varð þó að horfa á eftir
öllum stóru titlinum til Reykjavík-
urnágrannana í Val á síðustu leiktíð.
Safamýrarliðið hefur þó stigið fyrsta
skrefið í að snúa blaðinu við en
Framarar skelltu Völsurum í undan-
úrslitum með sex mörkum. Fram-
arar hafa alla tíð verið eitt af
fremstu liðum bikarkeppninnar og
leika til úrslita í 21. sinn í keppni
sem fer fram í 45. skiptið. Fram hef-
ur orðið bikarmeistari 15 sinnum,
síðast 2018. Það er þó ekki sagan
sem gerir Framarar sigurstrang-
legri í dag, heldur gengi liðsins í vet-
ur. Fram er efst á Íslandsmótinu
með 17 sigra og eitt tap en liðið hef-
ur unnið 17 leiki í röð í bæði deild og
bikar. Þrír af þessum sigrum komu
gegn KA/Þór og er markatalan sam-
anlögð 124:71. Framarar eru ógn-
vekjandi í vörn og hafa skorað næst-
um hundrað fleiri mörk en næstu lið
á tímabilinu. Það er því kannski ekki
að undra að í augum margra hafi
hinn eiginlegi bikarúrslitaleikur ver-
ið undanúrslitaleikur Reykjavíkur-
liðanna.
Bikarsaga norðankvenna er öðru-
vísi. Þór á Akureyri lék til úrslita
fyrir 40 árum, og tapaði þá gegn
Fram, en sameiginlegt lið KA/Þórs
leikur í dag til úrslita í fyrsta sinn.
Liðið komst í undanúrslit fyrir
tveimur árum, þá fyrstudeildarlið,
og tapaði naumlega gegn Haukum.
Annað var þó upp á teningnum í
þetta skiptið, lið KA/Þórs og Haukar
eru hnífjöfn í Olísdeildinni og undan-
úrslitaleikurinn eftir því. Martha
Hermannsdóttir, sem er á sínum
þriðja áratug í meistaraflokki, fór
fyrir liði sínu og skoraði mörkin sem
skiptu máli gegn Haukum, eins og
svo oft í vetur. Það mun því mæða
mikið á henni í dag en Norðankonur
geta mætt pressulausar til leiks. Ef
þær tapa, eins og flestir búast við,
verður þeim engu að síður fagnað
fyrir þann árangur að komast þetta
langt og ef þær gera hið ómögulega,
væri það ekki eitthvað?
Liðin sem eru á flugi
Það er töluvert erfiðara að rýna í
viðureign ÍBV og Stjörnunnar karla-
megin. Eyjamenn eru á gríðarlegri
siglingu, hafa unnið síðustu sex leiki
sína í deild og bikar, og alltaf fylgir
þeim sérstök stemning á stærsta
sviðinu. ÍBV er að fara leika til úr-
slita í þriðja sinn á fimm árum og
ljóst að liðið kann almennt vel við sig
í Laugardalshöllinni, enda kannski
ekki nema von; yfirleitt eru um 70%
stuðningsmanna á þeirra bandi.
Hornamaðurinn Theódór Sigur-
björnsson, sem hefur verið að glíma
við erfið meiðsli í vetur, skoraði níu
mörk í undanúrslitunum gegn
Haukum og var hreinlega óstöðv-
andi. Sá leikur einkenndist af mikilli
hörku og baráttu, eins og vill oft
verða í mikilvægum leikjum, og
Eyjamenn skorast sjaldan undan
slíku. Það er alveg ljóst að þeir koma
fljúgandi inn í þennan úrslitaleik.
Taflan á Íslandsmótinu segir okk-
ur að bæði ÍBV og Stjarnan séu að
eiga nokkuð miðlungs tímabil, en
taflan segir ekki alltaf alla söguna.
Eyjamenn eru ekki einir um það að
vera á siglingu eftir erfiða byrjun á
vetri. Stjarnan er búin að vinna
fimm af síðustu sjö leikjum og rót-
burstaði Íslandsmeistara Selfoss
eftirminnilega með þrettán marka
mun í bikarnum. Garðbæingar höfðu
svo betur gegn Aftureldingu í und-
anúrslitunum á fimmtudaginn og
sýndu þar mikinn karakter. Mosfell-
ingar ruku í forystu snemma og
héldu henni fram á lokamínúturnar,
vel studdir af stuðningssveit sinni.
Stjörnumenn biðu hins vegar tæki-
færis, neituðu að missa andstæð-
ingana langt frá sér og sneru svo
taflinu við í blálokin. Stjarnan varð
síðast bikarmeistari 2007 og það er
komið hungur í Garðabæinn. Byrjun
beggja liða í vetur olli vonbrigðum,
en bæði eru þau farin að spila sinn
besta handbolta og nú komin í bikar-
úrslit. Þá má búast við svakalegum
leik.
Bikarhelgin nær hámarki
Óstöðvandi Framarar gríðarlega sigurstranglegir gegn KA/Þór Erfitt að
rýna í leik ÍBV og Stjörnunnar enda bæði lið á mikilli siglingu eftir erfiða byrjun
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Karlar Ari Magnús Þorgeirsson úr Stjörnunni og Hákon
Daði Styrmisson úr ÍBV mætast í Höllinni í dag.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Konur Katrín Vilhjálmsdóttir úr KA/Þór og Hildur Þor-
geirsdóttir úr Fram mætast í Höllinni í dag.
Sveinbjörn Iura, júdókappi úr Ár-
manni, er einn þeirra Íslendinga sem
eiga möguleika á að komast á Ólymp-
íuleikana í Tókýó í sumar. Ætlaði
hann að keppa á móti í Rabat í Mar-
okkó um næstu helgi, til að auka
möguleika sína á að vinna sér inn sæti
á leikunum. Mótinu hefur hins vegar
verið aflýst vegna kórónuveirunnar.
„Ég var í raun að fara yfir flug til
Marokkó og fékk þau skilaboð að
mótinu hefði verið aflýst. Þetta skap-
ar stórt vandamál fyrir mig sem er að
eltast við að ná sæti inn á Ólympíu-
leika,“ sagði Sveinbjörn við Klefann.
Leiðin á Ólympíu-
leikana þrengist
Ippon Sveinbjörn Iura keppir ekki í
Marokkó vegna kórónuveirunnar.
Þó að Roy Hodgson verði 73 ára
gamall í sumar er hann búinn að
skrifa undir nýjan samning sem
knattspyrnustjóri enska úrvals-
deildarfélagsins Crystal Palace.
Hodgson tók við Palace í september
2017, eftir að hafa tekið 14 mánaða
frí í kjölfar taps enska landsliðsins
gegn Íslandi á EM í Frakklandi, og
hefur stýrt liðinu síðan. Nýi samn-
ingurinn er til eins árs, eða vorsins
2021. Hodgson, sem hefur þjálfað
samfleytt frá 1976, er með liðið í 12.
sæti og nær því að slást um Evrópu-
sæti en að lenda í fallslag í vor.
Hodgson hvergi
nærri hættur
AFP
Framlengdi Roy Hodgson heldur
áfram með Crystal Palace.
Dominos-deild karla
Þór Ak. – Valur ..................................... 79:87
KR – Stjarnan....................................... 79:77
Staðan:
Stjarnan 20 16 4 1821:1660 32
Keflavík 20 15 5 1802:1612 30
Tindastóll 20 13 7 1730:1651 26
KR 20 13 7 1717:1661 26
Njarðvík 20 12 8 1715:1572 24
Haukar 20 11 9 1751:1705 22
ÍR 20 11 9 1706:1784 22
Grindavik 20 8 12 1698:1750 16
Þór Þ. 20 7 13 1615:1669 14
Valur 20 7 13 1617:1722 14
Þór Ak. 20 5 15 1719:1911 10
Fjölnir 20 2 18 1671:1865 4
1. deild karla
Álftanes – Breiðablik ......................... 79:121
Vestri – Sindri....................................... 91:85
Staðan:
Höttur 21 19 2 1827:1548 38
Hamar 20 17 3 1951:1738 34
Breiðablik 21 17 4 2099:1757 34
Vestri 20 13 7 1778:1616 26
Álftanes 21 10 11 1781:1865 20
Selfoss 20 8 12 1545:1607 16
Skallagrimur 21 3 18 1696:1972 6
Sindri 18 2 16 1455:1669 4
Snæfell 20 2 18 1585:1945 4
Evrópudeildin
Baskonia – Alba Berlín ....................... 73:72
Martin Hermannsson skoraði 5 stig, tók
3 fráköst og gaf 6 stoðsendingar hjá Alba
Berlín.
Svíþjóð
Borås – Jämtland............................... 102:93
Elvar Már Friðriksson skoraði 27 stig,
tók 1 frákast og gaf 4 stoðsendingar á 20
mínútum hjá Borås.
NBA-deildin
Charlotte – Denver........................... 112:114
Houston – L.A. Clippers.................. 105:120
Sacramento – Philadelphia.............. 108:125
Golden State – Toronto.................... 113:121
Fjórir íslenskir kylfingar komust í gær í gegnum nið-
urskurðinn á ECCO Tour Spanish Masters-mótinu í
Katalóníu. Mótið er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.
Bjarki Pétursson lék fyrstu tvo hringina á samanlagt
fjórum höggum undir pari og er í mikilli toppbaráttu. Er
hann aðeins tveimur höggum frá efstu mönnum og í
fjórða sæti.
Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús
eru jafnir í 23. sæti á pari og Rúnar Arnórsson rétt slapp
í gegnum niðurskurðinn á tveimur höggum yfir pari. Ís-
landsmeistarinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson er hins
vegar úr leik en hann lék hringina tvo á þremur höggum
yfir pari og var einu höggi frá niðurskurðinum. Ragnar Garðarsson er
einnig úr leik en hann lék á samanlagt fjórtán höggum yfir pari eftir afleit-
an annan hring. Þriðji og síðasti hringur mótsins verður leikinn í dag.
Rúnar er efstur íslensku kylfinganna á stigalista mótaraðarinnar, en
hann er í 39. sæti með 484 stig. Á eftir honum kemur Bjarki í 42. sæti með
484 stig. Eru þeir einu Íslendingarnir í 70 efstu sætum listans.
Bjarki í harðri toppbaráttu
Bjarki
Pétursson
Sex leikmenn hafa verið tilnefndir sem leikmaður febr-
úarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Bruno
Fernandes hjá Manchester United, Pierre-Emerick
Aubameyang, leikmaður Arsenal, Dominic Calvert-
Lewin úr Everton, Marcos Alonso, leikmaður Chelsea,
Matt Doherty hjá Wolves og Nick Pope, markvörður
Burnley. Fernandes skoraði eitt og lagði upp tvö mörk í
mánuðinum og þeir Aubameyang og Alonso skoruðu
þrjú mörk hvor. Calvert Lewin skoraði tvö á meðan
varnarmaðurinn Doherty og markvörðurinn Pope héldu
þrisvar hreinu.
Ole Gunnar Solskjær, Mikel Arteta, Sean Dyche og
Chris Wilder eru tilnefndir sem stjóri mánaðarins. Solskjær stýrði Man-
chester United til sigurs í tveimur leikjum og vann liðið m.a. 2:0-sigur á
Chelsea. Mikel Arteta og lærisveinar hans hjá Arsenal náðu í sjö stig af níu
mögulegum, eins og Chris Wilder og leikmennirnir hans hjá Sheffield Unit-
ed. Þá fór Burnley ósigrað í gegnum febrúarmánuð undir stjórn Sean
Dyche. Verða sigurvegararnir tilkynntir á mánudag.
United gæti unnið tvöfalt
Bruno
Fernandes