Morgunblaðið - 07.03.2020, Qupperneq 56
Kór Breiðholtskirkju flytur fimm
mótettur eftir Giovanni Pierluigi da
Palestrina úr flokknum Canticum
Canticorum og verk eftir Hreiðar
Inga Þorsteinsson á tónleikum í
Breiðholtskirkju í dag kl. 15.15 en
tónleikarnir eru liður í tónleika-
syrpunni 15:15 í Breiðholtskirkju.
Stjórnandi kórsins er Örn
Magnússon.
Fimm mótettur
Palestrina í 15:15
LAUGARDAGUR 7. MARS 67. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Bikarúrslitaleikirnir í handbolt-
anum fara fram í Laugardalshöll-
inni í dag. Framkonur eru afar
sigurstranglegar í viðureign sinni
við KA/Þór sem hefst kl. 13.30 en
erfiðara er að spá um slag karla-
liða ÍBV og Stjörnunnar sem hefst
klukkan 16. Þar eigast við tvö lið
sem hafa sótt sig mjög eftir því
sem liðið hefur á veturinn. »49
Bikarúrslitaleikirnir
í Laugardalshöllinni
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Tíminn hefur liðið eins og blossi,“
segir Svava Andrea Jensen-Brand,
sem er 100 ára í dag. Hún hefur búið
á Droplaugarstöðum undanfarin þrjú
ár en hélt áður eigið heimili.
Vesturfarar og afkomendur þeirra
eru ofarlega í huga margra en fregnir
af austurförum hafa verið í mun
minni mæli. Svava er í síðarnefnda
hópnum. Hún fæddist í Wynyard í
Saskatchewan í Kanada, flutti fimm
ára með foreldrum sínum, Þórarni Ís-
feld, trésmið af dönskum ættum frá
Eskifirði, sem tók upp nafnið Thor
Jensen Brand í Kanada, og ljós-
móðurinni og kennaranum Elísabetu
Helgadóttur af íslenskum ættum frá
Winnipeg, til Winnipeg og þaðan til
Íslands um 11 árum síðar. Eftir
heimkomuna varð faðir hennar þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum.
„Ég var 16 ára og hafði ekkert um
flutninginn til Íslands að segja,“ segir
Svava, en eldri bróðir hennar var
Helgi Carl, forstjóri hjá varnarliðinu
á Keflavíkurflugvelli. „Pabbi var
strangur maður og maður daufheyrð-
ist ekki við óskum frá honum heldur
tók vel eftir því sem hann sagði.“
Enskan kom sér vel
Svava hefur fimm sinnum farið
vestur, fyrst í ljósmyndanám í New
York 1945 og síðan í heimsóknir.
„Það var töluvert af Íslendingum í
Wynyard en ég man eiginlega ekkert
eftir mér fyrr en í Winnipeg, þar sem
við áttum auðvitað heima í Vestur-
bænum eins og allir góðir Íslend-
ingar. En þeir eru allir þarna fyrir
ofan,“ segir hún og baðar höndum til
lofts.
Eiginmaður Svövu var Haukur
Jósefsson, deildarstjóri hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga, og
eignuðust þau þrjú börn og eru tvö
þeirra á lífi. Hún starfaði meðal ann-
ars á skrifstofu SÍS, skaðabótaskrif-
stofu Varnarliðsins og síðast hjá
samninganefnd utanríkisviðskipta. Í
þessum störfum kom enskukunnátta
hennar vel.
Afmælisbarnið las mikið, bæði
bækur og blöð, ekki síst á ensku, en
hefur dregið úr því. Svava var áskrif-
andi að Morgunblaðinu en eigin-
maðurinn keypti Tímann. Spurð
hvort hún lesi enn setur hún upp svip:
„Moggann! Ég hefði nú haldið það.“
Hún fylgist vel með og líst ekki vel á
ástandið í heiminum. „Á manni að
lítast á það þegar menn eru að berj-
ast hver í sínu horni?“
Svava þakkar góða heilsu ekki síst
tíðum og reglulegum gönguferðum,
en hún var virkur félagi í Ferðafélagi
Íslands á árum áður. „Ég fór gang-
andi allra minna ferða. Maðurinn
minn var dauðfeginn, því hann fór
ekkert nema á bílnum. Hann var svo
háður þessu tæki að það hálfa væri
nóg.“
Í tilefni tímamótanna verður
afmæliskaffi á Droplaugarstöðum.
„Við deilum köku, það verður ekki
flóknara en það,“ segir Svava. „Svo
förum við út að borða,“ segir Þórunn,
dóttir hennar, „Það passar ekki sama
daginn,“ svarar móðirin. „Jú, þetta er
allt skipulagt.“ Svava játar sig sigr-
aða: „Hallelúja.“
Óþarfi að hafa tvær
veislur sama daginn
Morgunblaðið/Eggert
Á Droplaugarstöðum Svava segir að tíminn líði hratt, eins og blossi.
Svava Andrea Jensen-Brand er 100 ára og fagnar tímamótunum
Sjálfsmynd Svava í ljósmyndaskólanum í New York.
Tónleikar verða haldnir á morgun
kl. 12.15 í Hannesarholti og verða
þeir helgaðir gyðingatónskáldum
sem voru bönnuð, hrakin burt eða
send í fangabúðir af nasistum.
Ágúst Ólafsson barítón, Sigríður
Ósk Kristjánsdóttur mezzósópran
og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleik-
ari flytja söngljóð eftir Eisler, Korn-
gold og Mahler auk útsetninga
Ferdinand Reuter á gyðingaþjóð-
lögum sem þau Engel Lund
söfnuðu. Einnig verða
flutt lög eftir Victor Ur-
bancic sem flúði ógnar-
stjórn nasista og sett-
ist að á Íslandi.
Flytjendur munu
einnig segja frá lífi
tónskáldanna og
tónlist.
Hádegistónleikar
í Hannesarholti
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík
S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Nú fástS s vinnuföt í
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum