Morgunblaðið - 16.04.2020, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 6. A P R Í L 2 0 2 0
Stofnað 1913 89. tölublað 108. árgangur
ÓTTAST EKKI
INNILOKUNINA
Á SPÁNI VASKIR VERZLINGAR
TÓNLEIKAR
HELSTA
LIFIBRAUÐIÐ
DAGLEGT LÍF 12 HELGI BJÖRNS 25ÓTTAR NORÐFJÖRÐ 56
ALLT TIL ALLS Í NÆSTU NETTÓ!
Blandaðar
lambalærissneiðar
1.559KR/KG
ÁÐUR: 2.599 KR/KG
Laxaflök
Beinlaus með roð
1.889
ÁÐUR: 2.699 KR/KG
-40% i
KR/KG
-30% -50%
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 16. - 19. apríl
Lime
270KR/KG
ÁÐUR: 539 KR/KG
Sítrónur
165KR/KG
ÁÐUR: 329 KR/KG
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Sennilega nemur vikulegt tjón af
völdum kórónuveirunnar um 15 millj-
örðum króna fyrir íslenskt þjóðarbú.
Þetta er mat Kristrúnar Frostadótt-
ur, aðalhagfræðings Kviku banka.
Segir hún að samdráttur hagkerfisins
meðan á samkomubanni stendur jafn-
gildi 20-25% en að það komi harðast
fram í höggi á ferðaþjónustuna en
einnig miklum samdrætti eftirspurn-
ar á fjölmörgum öðrum sviðum efna-
hagslífsins.
„Það er ekki ósennilegt að sam-
dráttur landsframleiðslunnar á þessu
ári muni nema 8-10%. Það er svipaður
samdráttur og gert er ráð fyrir í Evr-
ópu, í Bandaríkjunum er rætt um 6%.
Sú staðreynd að íslenskt hagkerfi er
mjög háð tekjum af ferðaþjónustu
þýðir að við gætum verið í efri end-
anum á þessu bili. Þá mun það einnig
hafa mikil áhrif hversu lengi áhrifa
veirunnar gætir og ef framlengja þarf
samkomubannið eða setja það á í ein-
hverri mynd aftur, þegar líður á árið,
geta áhrifin hæglega orðið meiri.“
Kristrún segir ástandið nú án for-
dæma og hæpið að hefðbundin hags-
tjórnartæki komi að nægilegu gagni
til að varðveita þrótt hagkerfisins. Þá
kunni það að reynast skeinuhætt að
breyta bankakerfinu í einskonar
hamfarasjóð sem láni fyrst og fremst
til fyrirtækja til að brúa algjört hrun í
tekjum.
„Það gæti veikt kerfið sem er ekki
byggt upp til að mæta áföllum sem
þessum. Ef þróttur kerfisins er nýtt-
ur til að bæta tekjutap fyrirtækja
verður svigrúmið til að lána til fjár-
festinga mun minna og viðspyrnu-
kraftur kerfisins því veikari en ella,“
segir Kristrún.
Um 15 milljarða tjón á viku
Varasamt að nýta bankakerfið sem einskonar hamfarasjóð að mati hagfræðings
MKórónuveiran »4, 6, 10, 28-32
Nokkrir af fremstu óperusöngvurum landsins komu
saman fyrir utan heimili Vigdísar Finnbogadóttur, fyrr-
verandi forseta Íslands, við Aragötu í Reykjavík í gær og
sungu fyrir hana í tilefni af 90 ára afmæli hennar. Með
þessu vildu söngvararnir þakka Vigdísi fyrir stuðning
hennar við sönglistina og störf fyrir þjóðina.
Vigdísar var víða getið í gær í tilefni afmælisins,
svo sem í blöðum og ljósvaka, þar sem fjallað var um
líf hennar og störf. Þá voru myndir og minningar
fólksins í landinu tengdar hinum ástsæla forseta áber-
andi á síðum samfélagsfélagsmiðla, auk þess sem veitt
voru verðlaun í hennar nafni í fyrsta sinn. »8
Morgunblaðið/Eggert
Sungu fyrir Vigdísi níræða í gær
Fyrrverandi
framkvæmda-
stjóri Eyþings
fékk tæplega 15
milljónir kr. í
bætur fyrir það
sem hann taldi
ólögmæta upp-
sögn, þegar gerð
var dómsátt í
máli hans. Í heild
kostaði upp-
sögnin sveitarfélögin nokkuð á
fjórða tug milljóna. Eyþing óskaði
eftir að trúnaður ríkti um útgjöldin
og ákvarðanir yrðu færðar í trún-
aðarmálabækur sveitarstjórna. »24
Uppsögn kostaði á
fjórða tug milljóna
Pétur Þór
Jónasson