Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Leikurinn lá fyrir Helga og hann fór í Leiklistarskóla Íslands, hvaðan hann útskrifaðist 1983. Sama sumar byrjaði hann að syngja með hljóm- sveitinni Grafík samhliða því að hann sinnti leiklistinni. „Ég var í fjögur ár í leiklistarskólanum og þá mátti ég ekki syngja með hljómsveitum sam- kvæmt reglum skólans, var í sam- komubanni fyrir utan verkefni sem tengdust náminu. Á þessum tíma fékk ég tilboð um að syngja með hljómsveitum en gat ekki þekkst þau.“ Strax eftir útskrift byrjaði Helgi að leika í leikhúsum á veturna og kvikmyndum á sumrin. „Ég vann í leikhúsunum, meðal annars hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar og í Þjóðleikhúsinu, í tíu ár og eftir því sem á leið var ákveðin togstreita á milli tónlistarlífsins og leikhússins. Tækifærin urðu æ meiri með hljómsveitinni SSSól og svo fór að ég setti leikhúsið svolítið á hill- una.“ Með marga hatta En Helgi lét til sín taka á fleiri sviðum, meðal annars í rekstri skemmtistaðar við Lækjartorg í Reykjavík um miðjan tíunda áratug- inn. Hann segir að álagið með hljóm- sveitinni hafi verið mjög mikið. Hún hafi komið fram öll fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld í um sjö ár og það hafi tekið sinn toll. „Ég var orðinn svolítið þreyttur á þessu og mig langaði til þess að breyta til,“ segir hann um skemmti- staðinn Astro sem varð til við sam- runa tveggja staða hlið við hlið, Pisa og Berlínar, 1995. „Ég setti hljóm- sveitina í frí og þegar mér bauðst að reka annan staðinn fékk ég þá hug- mynd að slá þeim saman og útbúa nýjan stað. Þetta var mjög skemmti- legt verkefni, mikil sköpun. Ég fékk Hall Helgason með mér og síðan Pál Hjaltason arkitekt og Sigga Hall í eldhúsið. Astró sló strax í gegn og þessi tími er mjög eftirminnilegur.“ Skömmu síðar fluttu Helgi og Vil- borg Halldórsdóttir, eiginkona hans, til Ítalíu með fjölskylduna og hann seldi sinn hlut í Astró. Þegar þau komu aftur heim tók hann upp þráð- inn þar sem frá var horfið, lék meðal annars í Rocky Horror, fyrsta verk- inu sem var sett upp í Loftkast- alanum, og fór á fullt í tónlistina. „Ég tók líka smá hliðarskref og vann fyr- ir eigendur sjónvarpsstöðvarinnar Skjás eins, þegar hún var sett á lagg- irnar,“ bendir hann á. „Það var mikil upplifun en síðan fórum við í víking til Berlínar, þar sem við opnuðum leikhús 2006. „Það er efni í heila bók að segja frá því rosalega ævintýri.“ Í kjölfarið hófst nýr kafli. „Þá byrjaði ég með þetta reiðmanna- ævintýri,“ segir Helgi, en fyrsta plata Helga og Reiðmanna vindanna, Ríðum sem fjandinn, kom út sumarið 2008 og seldist í um 7.000 eintökum. „Hún sló heldur betur í gegn,“ rifjar Helgi upp, en síðan fylgdu nokkrar frábærar plötur með þeim á næstu árum. Breytt landslag Landslag tónlistarmanna hefur breyst undanfarin misseri. Plötur eru varla gefnar út lengur heldur er öllu efni streymt á netið. Afkoman byggist fyrst og fremst á tónleikum. „Þetta snýst fyrst og fremst um lif- andi spilamennsku, skemmtanir eins og til dæmis árshátíðir og afmæli fyrir utan sérstaka tónleika,“ áréttar Helgi. Tónleikar eru helsta lifibrauð tón- listarfólks og Helgi segir að þeir hafi að mörgu leyti tekið við af böllum. „Þó fólk sé fimmtugt, sextugt eða eldra er það enn í stuði og drífur sig á tónleika, þar sem það skemmtir sér. Það er auðvitað frábært. Það eru því mikil viðbrigði fyrir alla þegar allt er slegið af. Það er mjög sérstakt og skrýtið og ástandið er sérstaklega erfitt fyrir tónlistarmenn sem lifa af tónlistinni án þess að vera með fastar og fyrirfram ákveðnar tekjur. Fót- unum er kippt undan þeim og finna þarf einhverja lausn gagnvart þess- um listamönnum sem á svipstundu hafa enga vinnu og eiga enga mögu- leika á að sækja sér opinberan stuðn- ing.“ Ævintýraheimur á heim ofan  Ísfirðingurinn Helgi Björns söngvari eitt helsta sameiningartáknið í samkomubanninu Ljósmyndir/Mummi Lú Syngjum og dönsum Söngvararnir Helgi Björns og Sigga Beinteins fóru á kostum síðastliðið laugardagskvöld og náðu vel saman. Stuð Veiran gleymist á meðan Helgi Björns skemmtir. VIÐTAL Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sjónvarpsþátturinn Heima með Helga var með 70% áhorfshlutdeild á myndlyklakerfi Símans síðastliðið laugardagskvöld. „Þetta er mesta áhorf sem hefur mælst á dagskrárlið síðan Sjónvarp Símans varð til árið 2016,“ segir Kári Jónsson, sérfræð- ingur í fjölmiðlamælingum hjá Sjón- varpi Símans. Ísfirðingurinn Helgi Björnsson sá þetta ekki fyrir, þegar hann var í fót- bolta alla daga frá morgni til kvölds á sjöunda áratug liðinnar aldar, hugsanlega með þann draum í brjósti að verða afreksmaður í grein- inni eins og pabbinn, Björn Helga- son. „Þegar ég var í 5. flokki spiluðum við til úrslita í Ís- landsmótinu,“ rifjar hann upp, en á með- al samherja hans voru meðal annars Ómar Torfa- son, Jón Oddsson og Magni Guð- mundsson, sem áttu eftir að láta að sér kveða með stórliðum í Reykja- vík. „Leiksvæðið, sem ég hafði til um- ráða sem strákur, var líka alveg magnað,“ segir Helgi og dásamar frjálsræðið sem ríkti. Börn hafi mátt valsa um atvinnusvæði að vild og ekki hafi verið amalegt að vera niðri á bryggju og fylgjast með löndun. „Hrefnan var skorin á vörubílspall- inum fyrir framan mann og maður gekk sæll í burtu eftir að hafa keypt tvö kíló á bryggjusporðinum fyrir mömmu.“ Hann segir líka eftir- minnilegt að hafa unnið við að reka fé, sem kom með bátum innan úr Djúpi, inn í sláturhús. „Lífið var allt í kringum mann,“ heldur hann áfram og minnist margra góðra og áhyggjulausra stunda. „Ég var far- inn að róa út á Poll á sumrin og stunda jakahlaup þar á veturna sem polli. Engum dytti í huga að leyfa börnum þetta núna.“ Byrjaði að skemmta í barnaskóla Helgi segir að strax í barnaskóla hafi hann ásamt öðrum verið valinn til að skemmta á skólaskemmtunum og sérstökum hátíðum, eins og sum- ardaginn fyrsta og 17. júní. Hann hafi síðan byrjað í skólahljómsveit í gangfræðaskóla. „Þegar við Hörður Ingólfsson vorum um 13 ára byrj- uðum við að semja lög og fluttum þau. Það þótti merkilegt að svona ungir strákar frumflyttu eigin lög á skólaskemmtunum.“ MHelgi allar helgar »Baksíða Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: Mán-fös: 12-18. Lau: 12-15. Alltaf opið í netverslun. VELKOMIN í NÝJA NETVERSLUN FRÍ HEIMSENDING! www.spennandi-fashion.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.