Morgunblaðið - 16.04.2020, Side 44

Morgunblaðið - 16.04.2020, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 ✝ Kjartan LárusPálsson fædd- ist í Keflavík 6. október 1939. Hann lést á Landspít- alanum 3. apríl 2020. Foreldrar Páll Ebeneser Sigurðs- son og Ingibjörg Bergmann Ey- vindsson. Kjartan var elst- ur af þremur systkinum. Systir hans Herborg Bergmann Páls- dóttir og hálfbróðir Sigurður Páll Ebeneser Tómasson lifa bróður sinn. Þegar Kjartan var 6 ára fórst faðir hans á sjó. Skömmu síðar veiktist móðir hans og var lögð inn á Vífilsstaðaspítala. Kjartan flakkaði þá á milli ættingja fram yfir fermingu og má segja að hann hafi að mestu verið sjálfala. Hann sótti nám við Melaskólann í Reykjavík, en þegar skólaskyldunni lauk og Kjartan var 14 ára fékk hann vinnu á togara. 16 ára réð hann sig á norskt farskip og sigldi um Írlandi, Hollandi og Taílandi. Kjartan lét talsvert að sér kveða í golfíþróttinni, en hann fékk golfbakteríuna þegar hann tók fyrst þátt í firmamóti blaða- manna árið 1969. Hann var lið- stjóri unglingalandsliðs karla í golfi árið 1973 og á árunum 1979-1986 var hann einvaldur og liðstjóri karlalandsliðsins í golfi. Hann átti um tíma flestar „holur í höggi“ á Íslandi, alls 6 skipti, og á því sæti í frægð- arhöll Einherjaklúbbsins, þar sem hann jafnframt gegndi for- mennsku um árabil. Kjartan lætur eftir sig eig- inkonu, Jónínu Sigurlaugu Kristófersdóttur, börnin Dag- björtu Lilju Kjartansdóttur Bergmann og Jón Bergmann Kjartansson Ransu, barnabörn, Helga Gunnar Vignisson, Nönnu Láru Vignisdóttur, Sól- eyju Lúsíu Jónsdóttur, Ólaf Mikael Jónsson og Kjartan Gabríel Jónsson, barna- barnabörn: Jakob Skúla Helga- son, Brynjar Kára Helgason og Lárus Frey Helgason. Sökum samkomubanns verð- ur eingöngu nánasta fjölskylda Kjartans viðstödd útförina. Hins vegar verður henni streymt beint á netinu á slóðinni https:// livestream.com/accou/ 11153656/events/9078628/ player. Evrópu, Asíu og suður fyrir Afríku. Hann hætti öll- um siglingum tví- tugur að aldri til að stofna til fjöl- skyldu. Hann tók þá meirapróf og starfaði í nokkur ár sem stræt- isvagnabílstjóri og leigubílstjóri. Kjartan var mik- ill áhugamaður um íþróttir og snemma á sjöunda ártugnum hóf hann að skrifa íþróttafréttir fyrir Vísi undir skammstöf- uninni –klp-. Hann starfaði sem blaðamaður í tvo og hálfan ára- tug og skrifaði ýmist íþrótta- fréttir eða almennar fréttir fyr- ir Vísi, Tímann og DV. Kjartan var flakkari í eðli sínu og eftir að hann lét af blaðamennsku starfaði hann sem fararstjóri, fyrst samhliða blaðamennsku en svo fastréð hann sig í fararstjórn hjá Sam- vinnuferðum Landsýn og síðar hjá Úrvali Útsýn. Hann starfaði við fararstjórn aðallega á Spáni, Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja því það er svo margt sem hringsólar í huganum mín- um. Pabbi hefur oft farið í burtu enda fararstjóri en ekki svona endanlega eins og núna. Lífið hans var ekki auðvelt því pabbi hans drukknaði þegar hann var 6 ára og síðan varð mamma hans veik og gat ekki haft börnin sín. Ég heyrði svo fallega en sorg- lega sögu áðan frá frænku minni að ég upplifði pabba allt í einu sem lítinn strák. Hann var nýbú- inn að missa pabba sinn og fór að heimsækja föðursystur sína á Flateyri. Hann var með fótbolta sem pabbi hans hafði gefið hon- um og hafði því mikið tilfinninga- legt gildi. Hann sparkaði boltan- um óvart út í sjó og var alveg miður sín og fór að gráta. Vitandi hvað boltinn var mikilvægur fékk föðursystirin lánaðan árabát og réri eftir boltanum. Pabbi ól sig eiginlega upp sjálfur því hann skiptist á að búa hjá ættingjum hér og þar. Hann var aðeins 14 ára þegar hann fór á togara síðan á kaupskip og sigldi um heimsins höf. Planið var að verða skipstjóri og fékk hann möguleika að fara í Stýri- mannaskóla en vinnuslys breytti þeirri áætlun. Svo hitti hann mömmu og ég mætti í heiminn. Þar sem hann hafði ekki átt fjölskyldu lengi þá var þetta hlutverk honum dýr- mætt. Hann vann á tveimur stöðum til að sjá fyrir fjölskyldunni og tók svo ákvörðun að leigja mömmu sinni og sambýlismanni herbergi til að hafa mömmu sína hjá sér líka. Þetta auka álag var mikið fyrir mína móður og þau skildu. Síðar fékk pabbi berkla og mamma fór að fara með mig í heimsókn til hans og að lokum giftu þau sig í annað sinn og ég eignaðist lítinn bróður. Karlinn hafði gaman af því þegar ég var flutt af heiman og kom í heim- sókn að segja við gesti „Þetta er dóttir mín úr fyrra hjónabandi“ og fólkið rak upp stór augu og spurði „Er ekki Nanna mamma hennar?“ Jú svaraði sá gamli og þagði á meðan gestirnir klóruðu sér í hausnum yfir þessum skrítnu tengslum. Það er ótrúlegt hvað hann karl faðir minn náði að gera úr lífinu sínu með eigin baráttuvilja og dugnaði. Ég er virkilega stolt af honum og hvernig hann var þrátt fyrir erfitt uppeldi. Þvílík barnagæla og manngæska sem var undir þessu hrjúfa yfirborði. Snobb var ekki á hans borði því allir voru undir sama hatti hvort sem það voru forstjórar eða heimilislausir fíklar. Maður lærði mörg góð gildi sem eru gott veganesti að hafa í lífinu. Stattu með sjálfum þér, vertu þú sjálfur, vertu kurteis og þakk- látur við fólk sem kemur vel fram við þig. Þetta er aðeins brot af því sem situr í manni og hann yfirfærði einnig til minna barna. Auðvitað var hann ekki fullkominn, það er enginn en kostirnir voru margfalt fleiri en gallarnir. Hláturinn, húmorinn, skemmtilegu sögurnar, gjaf- mildin á sjálfan sig til okkar og gæskan er eitthvað sem ég kem til með að sakna alveg hrikalega mikið og ég veit að börnin mín koma til með að sakna hans mik- ið líka Elsku pabbi minn. þú varst hetja og ljós í lífinu. Ég veit að þínir góðu straumar halda áfram að vera til í kringum okkur að ei- lífu. Þín dóttir Dagbjört L. Kjart- ansdóttir Bergmann. Elsku bróðir, það er sjónar- sviptir að þér. Það má segja að við höfum átt langt líf hér á þess- ari jörð, en stutt kynni. Það var stórt skarð höggvið í líf okkar systkina þegar við vorum ung börn, þegar faðir okkar, Sigurður Páll Ebeneser Sigurðsson frá Skáladal á Hornströndum, fórst með mb. Geir frá Keflavík 12. febrúar 1946. Kjartan, eða Kiddi eins og hann var kallaður, var mjög fal- legt barn með þykkt svart hrokk- ið hár. Hann þótti líka mjög skemmtilegur, fyndinn og uppá- tækjasamur. Þriggja ára fór hann upp á sitt eindæmi út í búð, og þegar hann var spurður hvort hann væri einn á ferð og hvar hún mamma hans væri, þá svaraði hann: „Hún mamma, hún er svo löt að hún nennir ekki einu sinni niður tröppurnar.“ Hann var nú aðallega að fara í búðina til þess að fá aðdáun eins og hann var vanur. Húmorinn og tilsvörin hafa fleytt honum langt til þess að lifa af. Leiðir okkar Kidda skildi þeg- ar við vorum ung að árum. Móðir okkar, Ingibjörg Bergmann Ey- vindsdóttir frá Keflavík, veiktist um það leyti sem faðir okkar fórst, þá urðu þáttaskil í lífi okkar systkina. Hann ól sig eiginlega upp sjálfur, með aðsetur hjá móð- urömmu okkar, Dagbjörtu Berg- mann Jónsdóttur frá Hópi í Grindavík, og Eyvindi Bergmann frá Fuglavík á Suðurnesjum. Kiddi var mjög elskaður af þeim, en það var búið mjög þröngt í litla húsinu þeirra í Keflavík og síðar í Reykjavík, og Kiddi bróðir svaf víst mest á dýnu undir eldhús- borðinu. Ég var aftur á móti send vestur á Ísafjörð til langömmu, föðurömmu sem hét Herborg Ebeneser, frá Hesteyri og bjó á Sæbóli í Aðalvík á Hornströndum með langafa Árna Sigurðssyni stórbónda. Pabbi okkar ólst upp hjá þeim þar til þau fluttu til Ísa- fjarðar með síðustu ábúendum á Hornströndum. Síðar var ég sett í fóstur hjá hjónunum Gísla Jó- hannessyni, skipstjóra frá Gauks- stöðum í Garði, og Sigríði Skúla- dóttur í Vesturbæ Reykjavíkur. Það var lítið sem ekkert samband á milli fjölskyldna þannig að við Kiddi misstum því miður hvort af öðru þar til við höfðum bæði stofnað okkar fjölskyldur. Börnin okkar voru í góðu sambandi þeg- ar þau voru ung, þá hittust þau helst hjá ömmu sinni eða heima hjá Kidda og Nönnu. Kiddi var lánsamur að hitta sinn lífsförunaut mjög snemma, hana Nönnu, dásamlega mann- eskju og börnin þeirra og barna- börn eru öll yndisleg. Guð verndi þig og blessi, elsku bróðir minn. Ég sakna þín og á eftir að sakna þess að fá þig ekki í heimsókn fyrir jól með fallega skreytingu og jólakort frá ykkur Nönnu. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð, elsku Nanna mín og elsku Dabba og Nonni og fjöl- skyldur. Herborg María Pálsdóttir (Heddý). Við systkinin viljum með örfá- um orðum minnast Kidda móð- urbróður okkar. Kiddi frændi var yndislegur maður, skemmtilegur, hjálpsamur, áhugasamur, mikill húmoristi, ákveðinn og sterkur karakter. Við dáðumst að frænda fyrir hæfileikana og einnig hversu vinmargur og vinsæll hann var. Hann lá ekki á skoð- unum sínum og lét það flakka ef Kjartan Lárus Pálsson Elsku yndislega amma mín sagðist oft eiga átta og hálft barn af því að ég væri í raun barnið hennar og afa líka enda ólst ég að miklu leyti upp hjá þeim og flutti þangað aftur full- orðin með tvær litlar dætur. Ég og amma höfum alltaf átt náið, fallegt og traust samband og mikil væntumþykja ríkt okkar á milli. Við höfum líka gert hvor aðra vitlausa. Þannig er víst líf- ið. Væntumþykjan dvínaði þó ekki við það og kannski þvert á móti. Amma sýndi ótrúlegt um- burðarlyndi og þolinmæði þegar ég átti mín erfiðu og átakamiklu unglingsár. Í dag tekur það mig sárt að hafa ekki alltaf sýnt henni það umburðarlyndi og þolinmæði sem hún átti þó svo sannarlega skilið frá mér. Ég hef alltaf dáðst að henni og allir vinir mínir telja sig þekkja hana mjög vel – líka þeir sem hafa aldrei hitt hana. Ég segi nefni- lega sögur af henni. Margar sögur og ólíkar, fyndnar, fal- legar, rómantískar og drama- tískar. Hún átti nefnilega alveg ótrúlega ævi og það er fallegt og dýrmætt ferðalag að kynnast hennar sögu betur og betur og þar með henni sjálfri. Eftir því sem ég kynnist henni betur fyll- ist ég meiri aðdáun, virðingu og skilningi í hennar garð. Ég átti Jóhanna Unnur Giss- urardóttir Erlingson ✝ Jóhanna UnnurGissurardóttir Erlingson fæddist 16. janúar 1932. Hún lést 29. mars 2020. Útför Jóhönnu fór fram í kyrrþey en minning- arathöfn verður haldin þegar að- stæður leyfa. fallegt samtal við dýrmæta vinkonu um ömmu nýlega þar sem fram kom að amma var ein- stæðingur frá níu ára aldri, kynntist afa þegar þau voru bæði 16 ára og þau eignuðust fyrsta barnið þegar þau voru 17 ára. Hún fékk mjög tak- markaða menntun þó að hún hafi þráð það mjög og hafði augljósa hæfileika til. Hún samdi fallega texta og þýddi úr ensku og dönsku. Vinkona mín spurði mig hvernig kona með svona sögu hefði lært erlend tungumál. Ég svaraði því til að hún hefði bara kennt sér þau sjálf eins og svo margt annað. Enskuna lærði hún af Shake- speare en hún eyddi nánast aleigunni í safn af Shakespeare- verkum þegar hún var 16 ára því hún vildi læra ensku. Vin- konan spurði mig gáttuð hvort ég gerði mér grein fyrir því hversu ótrúleg saga þetta væri og hversu yfirburðagáfuð þessi kona hlyti að hafa verið. Skömmustulega neyddist ég til að viðurkenna að ég hefði í raun ekki gert mér fyllilega grein fyrir því. Ég sé það þó alltaf betur og betur hvernig hún og afi, nánast börn að aldri og án nokkurs baklands þegar þau stofna sína fjölskyldu, hljóta að hafa unnið óteljandi kraftaverk. Afkomendurnir, sem eru á sjötta tug, voru stolt þeirra og yndi og bera þessum krafta- verkum ýmis merki. Þau gáfu okkur ekki bara lífið sjálft held- ur ótalmargar undurfallegar gjafir. Ást á tónlist, tungumál- inu okkar, sögum og hefðum eru dæmi um slíkar gjafir og, ekki síst, ástin sem þau báru til okkar og hvort til annars. Amma kunni betur en nokkur að koma orðum að hlutunum og uppáhaldsljóðið mitt úr hennar smiðju er einmitt ástarjátningin sem hún samdi til afa. Loka- erindið er mér hugleikið núna og ég ylja mér við það að ást ömmu verði alltaf hér og verði alltaf mín og okkar. Elsku amma, hjartans engillinn minn. Þótt sökkvi lönd í sæ þótt hrynji fjöll og farist allt sem jarðneskt er þótt sortni himinn verður ást þín ávallt hér sem guðalogi hún um alla eilífð skín og verður mín. Ragna Bjarnadóttir. Mér er bæði ljúft og skylt að minnast ömmu minnar elsku- legrar, Jóhönnu G. Erlingson, í örfáum orðum. Og þegar þre- faldur afi á sextugsaldri kveður ömmu sína er þakklæti sann- arlega efst í huga. Einhvern tímann hélt ég því fram að vorvindar ár hvert þeyttu frjókornunum fyrst yfir Karfavoginn, enda barnalán fjölskyldunnar með eindæmum. Pabbi elstur átta systkina og ég fyrsta barnabarnið í nú gríð- arstórum og fjölbreyttum hópn- um. Amma var svo innilega stolt af afkomendum sínum enda vorum við öll umvafin hennar ást og hlýju. Það var dýrmætt að hafa átt Karfó sem fastan punkt í tilver- unni í öll þessi ár. Þetta athvarf fjölskyldunnar var akkerið, sökkullinn sem við öll sóttum í. En athvarfið var auðvitað ekki húsið eða staðurinn, athvarfið var amma. Að geta deilt með henni sigrum sem og ósigrum hefur reynst mér og að ég veit öllum í fjölskyldunni ómetan- legt. Í mínu söngbrölti var það regla að hringja í ömmu þegar nýtt spennandi atvinnutækifæri bauðst. Hún gladdist svo inni- lega þegar vel gekk, enda þekkti hún manna best at- vinnuóöryggið sem starfinu fylgir, og svo stappaði hún í mann stálinu þess á milli. Hún var klettur hún amma, ekkert minna. En við gátum líka karpað og deilt. Alveg er ég viss um að bera ábyrgð á talsverðum fjölda grárra hára á hennar höfði enda gat ég argast í henni út og suð- ur á mínum unglingsárum. Það hefur þurft stáltaugar að hafa húsið stútfullt af fólki, daginn út og inn, og þar að auki síröfl- andi unglinga í pilsfaldinum. En hún hafði lag á okkur, öllum. Minningarnar úr Karfavogin- um hrannast upp enda var líka mikið hlegið. Það var ekki lítið sem gekk á þegar fimm föð- ursystur voru að hafa sig til út á lífið á eina baðherbergi heim- ilisins, með ömmu fremsta í flokki. Maður lifandi það sem var gaman. Það er aumt fyrir okkur Berlínardeild fjölskyldunnar að komast hvorki lönd né strönd í núverandi ástandi. Ég veit að Fjölnir minn syngur Kvöld- stjörnuna yfir langömmu sinni á sinn einstaka hátt og þar hljóm- ar um leið kveðjan frá mér. Minningin lifir! Ólafur Kjartan. Í dag kveðjum við elsku lang- ömmu og langalangömmu Hönnu. Árið 2014, eftir að hafa búið erlendis í fjögur ár, flutt- um við aftur heim til Íslands. Eins og svo margir í fjölskyld- unni enduðum við í Karfavog- inum, þar sem langamma bjó á efri hæðinni og við litla fjöl- skyldan í kjallaranum. Þar tók hún á móti okkur með opnum örmum og vorum við þar í tæp- lega fimm ár. Það var ákaflega dýrmætur tími, ekki síst fyrir börnin okkar en þau eru víst ekki mörg sem fá að njóta jafn innilegra samvista við langa- langömmu sína eins og þau Bragi og Sigríður Salka fengu. Þau leituðu gjarnan upp á efri hæðina og þá heyrðist oft: „Ertu kominn engillinn minn?“ Hjá ömmu var alltaf tími fyr- ir spjall og heitt á könnunni, enda gerði hún að eigin sögn besta kaffi í heimi! Þá var alveg sérstaklega gaman að segja henni gleðifregnir, sama hvort þær væru stórar eða litlar, þar sem hún samgladdist alltaf svo innilega. Eftir sitja ótal góðar minn- ingar og sögur sem fyllt gætu heilu bækurnar án nokkurra vandkvæða. Efst í huga okkar er þakklæti fyrir að hafa fengið að eiga hana ömmu Hönnu. Fjölnir, Vala, Bragi og Sigríður Salka. Brostin vinar böndin blessuð minning lifir Kveðjustund okkar Jóhönnu var einlæg og kærleiksrík. Þremur dögum fyrir andlát hennar náðum við mjög innilegu samtali. Þar renndum við yfir lífshlaupið og einstaka snerti- fleti lífs okkar frá því er ég sá hana fyrst 13 ára stelpuskott hjá ömmu sinni Jóhönnu Linnet vorið 1945 og fram til þessa dags. Það var indælt að láta hugann reika saman og renna yfir ferilinn. Tal okkar barst að umbreytingu þeirri sem fram- undan væri. Hún sagðist hafa verið ferðbúin fyrir nokkru og að ferðin framundan væri fagn- aðarefni hvað sig snerti. Allt frá því er þau systkinin Ólöf, kona mín, og Jón eigin- maður Jóhönnu misstu föður sinn sr. Sigurð, óx upp órjúf- anlegur kærleikur og samstaða milli allra systkinanna. Þessi kærleikur og samhugur átti sér engin takmörk. Hann náði út yfir alla sjálfselsku og eigin- girni. Þar sem Ólöf var elst í systkinahópnum kom það í hennar hlut að vera sterkasta reipið innan systkinahópsins og að hjálpa til á tánings- og frum- býlingsárum systkinanna. Það var mér síðar mikil ánægja að fylgjast með uppvexti og gef- andi lífshlaupi fjöruga barna- hópsins þeirra Jóns og Jóhönnu en í þeim hópi var einnig að finna lífsþráðinn í hamingjuvef hjónabands okkar Ólafar. En hver var stóra gjöfin til okkar Ólafar? Hamingjusól sem veitti okkur vaxandi gleði og birtu sem hefur staðið í 60 ár. For- senda fyrir slíkri gjöf var ekki sjálfgefin en byggðist á þeirri næmu tilfinningu Jóhönnu og Jóns að bregðast við þegar þau vissu að okkur yrði ekki barna auðið. Með nokkurra mánaða fyrirvara sögðu þau frá barninu okkar sem von var á í ágúst- mánuði 1960. Þegar okkur barst upp í hendurnar nýfædd stúlka reis upp ársól hamingju okkar Ólafar. Þetta næstum fordæma- lausa kærleiksverk vil ég minn- ast á umfram allt annað þegar komið er að kveðjustund og þökkum fyrir liðna ævislóð og samferðaleið okkar Jóhönnu og fjölmennu fjölskyldu hennar. Það er ánægjuleg tilfinning að minnast þess að hafa staðið á hliðarlínunni eða í miðjum hópnum hjá fjölskyldu Jóhönnu og Jóns og jafnframt finna sig sem aðila að stórfjölskyldunni. Börnin þeirra hafa tileinkað mér þá elskulegu nafnbót fóstri eða Hjörtur pabbi. Kveðju- stundin er samofin innilegu þakklæti og virðingu fyrir ein- stakri persónu og kærleika sem einkenndi Jóhönnu alla tíð. Drottins hjálpar höndin heilög vaki yfir. Hjörtur Þórarinsson. Ég var unglingur þegar ég kynntist Jóhönnu G. Erlingson, þessari einstöku konu sem ég á svo margt að þakka. Árið 1963 var ég kominn í slagtog með elsta syni hennar, tónlistarsnill-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.