Morgunblaðið - 16.04.2020, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 16.04.2020, Qupperneq 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 ✝ Sr. Einar GuðniJónsson, fyrr- verandi sókn- arprestur á Kálfa- fellsstað, fæddist á Kálfafellsstað í Borgarhafn- arhreppi, Austur- Skaftafellssýslu hinn 13. apríl 1941. Hann lést á Land- spítalanum, Landa- koti, hinn 4. apríl 2020. Foreldrar hans voru hjónin sr. Jón Pétursson, sókn- arprestur og prófastur á Kálfa- fellsstað, og frú Þóra Ein- arsdóttir, húsfreyja og síðar formaður og framkvæmdastjóri fangahjálparinnar Verndar í Reykjavík og stofnandi Ind- versku barnahjálparinnar. Systkini hans eldri eru þau Pét- ur viðskiptafræðingur og fyrr- verandi borgarfulltrúi og Helga Jarþrúður snyrtifræðingur. Eftirlifandi eiginkona sr. Ein- ars er frú Sigrún Guðbjörg Björnsdóttir, kennari. Börn lands og deildarfulltrúi hjá Fé- lagsmálastofnun höfuðborg- arinnar árin 1970-1972. Sr. Einar vígðist til Söðuls- holtsprestakalls (áður Mikla- holtsprestakall) á Snæfellsnesi hinn 11. júní 1972. Árið 1982 var hann skipaður sóknarprestur í Árnesprestakalli á Ströndum; sleppti þar brauði 1989 og tók við prestsþjónustu á fæðing- arstað sínum, sem faðir hans, sr. Jón Pétursson, og afi hans, sr. Pétur Jónsson, höfðu setið sam- anlagt í 52 ár. Sr. Einar lét af embætti fyrir aldurs sakir árið 2011, er hann stóð á sjötugu. Hafði hann þá verið prestur í 39 ár, þar af 22 á Kálfafellsstað. Á ferli sínum stundaði hann kennslustörf við Laugagerðis-, Finnbogastaða- og Hrollaugs- staðaskóla og sinnti bæði bók- legri fræðslu og tilsögn í tónlist. Hann var félagi í Karlakórnum Jökli á Höfn og í Samkór Aust- ur-Skaftfellinga. Útför sr. Einars frá Fossvogs- kapellu verður gerð í dag, 16. apríl 2020, í kyrrþey. hennar og stjúp- synir sr. Einars eru Bjarki, Brjánn og Kristján Björn. Fyrri eiginkona sr. Einars var Jór- unn Guðrún Odds- dóttir, þau skildu, hún andaðist árið 2018. Kjörsonur þeirra er Sigurkarl Einarsson. Sr. Einar lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1961 og guðfræðiprófi frá Háskóla Ís- lands 1969 með hárri 1. ein- kunn. Síðar öðlaðist hann kennsluréttindi á framhalds- skólastigi, stundaði nám í kirkjusögu við Kaupmannahafn- arháskóla 1975-1976 og í sál- gæslu við Háskóla Íslands 1998- 1999. Þá var hann og við nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Á háskólaárum sínum starfaði hann í lögreglunni á sumrin og lék á píanó með ýmsum dans- hljómsveitum. Hann var um hríð starfsmaður Landsbanka Ís- Við hjónin kynntumst Einari þegar Sigrún systir Bjargar og Einar höfðu ákveðið að rugla sam- an reytum. Þau höfðu verið í sama árgangi í menntaskóla í fjögur ár og rúmum aldarfjórðungi seinna náðu þau saman fjölskyldum beggja til ánægju. Þau áttu margt sameiginlegt og höfðu þau bæði gaman af að ferðast bæði innan lands og utan. Þau voru mjög fróð um sögu landsins, þekktu ógrynni örnefna og komu víða við á ferð- um innanlands því Einar átti sam- starfsbræður og ættingja um allt land sem þurfti jú að heimsækja. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau í Árnesi í Trékyllisvík þar sem Ein- ar var prestur. Einar var ekki að- eins prestur í Árnesi, hann var einnig orgelleikari og spilaði á orgelið þegar við átti þegar hann var að messa. Þegar prestakallið á Kálfafellsstað í Austur-Skafta- fellssýslu losnaði langaði Einar á sínar bernskuslóðir og fékk veit- ingu fyrir prestakallinu þar sem faðir hans og afi höfðu áður verið prestar. Þetta prestakall náði yfir Öræfin, Suðursveit og Mýrarnar. Hann hugsaði vel um þau prests- setur sem honum var trúað fyrir, sífellt að laga það sem miður fór. Í tíð Einars á Kálfafellsstað var byggt lítið safnaðarheimili hjá kirkjunni. Einar teiknaði myndir af bæjunum í Suðursveit og hanga þær inni í safnaðarheimilinu og eru þær staðarprýði. Einar fékk margt í vöggugjöf, góðar gáfur, tónlistarhæfileika og svo var hann mjög vel drátthagur. Hann var feikilega góður tónlistarmaður og gat spilað á píanó og harmonikku hvaða lag sem var án þess að lesa nótur. Hann notaðist bara við þær þegar hann var að æfa söng. Þeg- ar hann varð sextugur hittumst við fjögur á hótelinu í Freysnesi til að halda upp á þennan áfanga. Eftir kvöldmatinn settist Einar við píanóið og spilaði hvert lagið á fætur öðru. Hann hafði líka mjög gaman af því að djassa lögin. Þarna voru staddir nokkrir er- lendir ferðamenn og voru þeir óskaplega ánægðir með þessa skemmtun sem þeir fengu og spurðu okkur hvort þetta væri ekki þekktur djasspíanóleikari. Hann söng með Karlakórnum Jökli á Höfn, Söngfjelagi Suður- sveitar og nágrennis og svo Söng- félagi Skaftfellinga eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur. Þá tók að sér að stjórna almennum söng á hjúkrunarheimilinu Eir einu sinni í viku og spilaði hann á harmonikkuna, texta laganna var varpað upp á vegg og heimilisfólk tók vel undir. Sigrún fór alltaf með honum á þessar söngstundir á Eir. Einar var stoltur maður, hann var stoltur af sínu fólki og forfeðrum og var vel að sér í ætt- fræði. Eitt áhugamála hans var lestur og var hann tíður gestur á bókasöfnum eftir að hann flutti í bæinn en hann hirti minna um að eignast bækur. Fyrir rúmu ári fór heilsu hans að hraka og í lok þorra var hann lagður inn á Landakot. Síðast þegar við ræddum við hann í síma var hann með áætlanir um það sem hann ætlaði að gera þeg- ar hann útskrifaðist en af þeim áætlunum verður ekki. Við send- um Sigrúnu, sonunum, systkinum Einars og fjölskyldum þeirra okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Einars Guðna Jónssonar. Björg og Kjartan. Langafi sr. Einars var Jón há- yfirdómari, sonur þess góðfræga prófasts sr. Péturs á Víðivöllum Péturssonar og konu hans frú Þóru Brynjólfsdóttur gullsmiðs Halldórssonar biskups á Hólum Brynjólfssonar. Kona háyfirdóm- arans var Jóhanna Soffía Boga- dóttir stúdents og fræðimanns á Staðarfelli höfundar Sýslumanna- æva ættföður Staðarfellsættar. Háyfirdómarinn var bróðir Brynjólfs Fjölnismanns og Péturs biskups en faðir sr. Péturs á Kálfafellsstað föður sr. Jóns, föð- ur sr. Einars. Frú Þóra móðir sr. Einars var dóttir Einars verkstjóra Jónsson- ar á Akranesi og Guðbjargar Kristjánsdóttur frá Bár í Eyrar- sveit. Jón föðurafi frú Þóru var bróðir sr. Hjörleifs á Undornfelli Einarssonar föður Einars H. Kvaran rithöfundar. Móðir Jóns var Þóra Jónsdóttir Schjöld bónda á Kórreksstöðum Þor- steinssonar ættföður Vefaraætt- arinnar sem rakin verður til sr. Hjörleifs prófasts Þórðarsonar á Valþjófsstað. Sú hneigð í fari sr. Einars og gætti frá unglingsárum var löng- un til að leika á hljóðfæri, teikna og mála. Hann var í prédikun sinni ljós og gagnorður án orða- prjáls og tilgerðar. Meðfram stundaði hann kennslustörf og var ástsæll meðal nemenda svo ríku- lega sem hann var búinn spaug- greind og fullkomlega laus við smámunasemi. Það er varla að taka of djúpt í árinni þótt sagt sé, að alla ævi hafi músík verið líf hans og yndi. Ung- ur lærði hann á píanó og efldi með sér tónlistarskyn. Bar frá hve leikinn hann var að spila eftir eyr- anu sem kallað er; þar voru ekki á ferð nein vinnukonugrip eða klökkir hljómar heldur ævinlega þeir kórréttu. Var unun að horfa á sr. Einar við hljóðfærið; hann hafði slíka ánægju af íþróttinni að hann brosti með öllu andlitinu. Sr. Einar hélt fast við þann sið gömlu prestanna að taka hús hver á öðrum þegar þeir voru á ferð- inni, þiggja beina, dveljast nætur- sakir. Þau frú Sigrún voru líka að sínu leyti viðbrigða gestrisin. Hann var ekki skrafinn og fyrir- leit slúður. En hann var eldfljótur að taka við sér í ávarpi og var þó stundum hlustandi að hófi; ef til vill var hann uppgefinn á tali í fólki og kann að hafa verið orsök þess að það fór stundum að ymja í honum á meðan misvitrir viðmæl- endur létu dæluna ganga. Frændrækinn var sr. Einar og svo frábærlega sinnti hann frú Betu móðursystur sinni að sjald- gæft er; óþreytandi að vitja henn- ar og voru þeir dagar færri að hann næði ekki fundi þeirra sr. Fjalars eða hefði tal af öðru hvoru þeirra hjóna og ekki síður eftir að frú Beta lagðist veik á spítala. Þótt sr. Einar nyti sín uppi á pallinum var hann frábitinn því að trana sér fram. Oft fór hann með latneskt máltæki við mig: Bene vixit, qui bene latuit (sá lifði vel sem leyndist). Hann var ljúfmenni og ég hygg að hann hafi „viljað að allir færu fegnir af hans fundi“ eins og Eysteinn konungur forð- um. Hafi hann þökk og veri kært kvaddur. Ástvinum innileg sam- úð. Guð blessi minningu góðs drengs. Gunnar Björnsson, pastor emeritus. Látinn er í Reykjavík sr. Einar G. Jónsson, f. 13. apríl 1941, sonur hjónanna sr. Jóns Péturssonar á Kálfafellsstað í Suðursveit, A- Skaft., og Þóru Einarsdóttur. Foreldrar sr. Jóns voru fyrri prestshjón á Kálfafellsstað, sr. Pétur Jónsson og Helga Skúla- dóttir. Þegar sr. Jón lét af embætti og fluttist til Reykjavíkur 1944 tók fjölskyldan sér bólfestu á Laufás- vegi 79 þar sem hún átti eftir að búa næstu áratugi. Prestsfjölskyldan bjó á efri hæð hússins en á neðri hæðinni bjuggu þau Jarþrúður, systir sr. Jóns, og eiginmaður hennar, Sigfús John- sen, fv. bæjarfógeti í Vestmanna- eyjum. Ég var þarna tíður gestur á námsárum okkar Einars og aldrei skorti umræðuefni, en við hneigðumst báðir til róttækni, bókmennta og lista. Oft var glatt á hjalla og á ég margar góðar minn- ingar frá þeim áhyggjulausu æskudögum. Það var óvænt ánægja er ég gerðist heimagangur á Laufás- vegi 79 að kynnast hinum gömlu embættismönnum Jóni prófasti og Sigfúsi fógeta og hlusta á þá miðla okkur skólapiltunum af fróðleik sínum og lífsreynslu. Þeir voru ógleymanlegir menn, hvor með sínum hætti, merkir fulltrúar aldamótakynslóðarinnar. Þóra, móðir Einars, varð síðar lands- þekkt fyrir félagsmálastörf sín, einkum réttindabaráttu kvenna og málefni fanga. Leiðir okkar Einars lágu fyrst saman í Gagnfræðaskóla Austur- bæjar, en eftir það tók landsprófið í Vonarstræti við og síðar Menntaskólinn í Reykjavík þaðan sem við lukum stúdentsprófi 1961. Þá var vor í lofti og björt og fögur framtíð blasti við, full af fyrirheit- um. Ég innritaðist í lagadeild en Einar fetaði í fótspor föður síns og afa og lauk embættisprófi frá guð- fræðideild Háskóla Íslands 1969. Síðar dvaldist hann um skeið við framhaldsnám í Kaupmannahöfn og Danmörk var honum kær, enda átti hann þar frændfólk sem hann lét sér annt um og heimsótti oft. Sr. Einar vígðist til Söðuls- holtsprestakalls í Snæfellsnes- sprófastsdæmi 1972 en tók við Árnesprestakalli á Ströndum 1982. Þar þjónaði hann til 1989 er hann gerðist sóknarprestur á Kálfafellsstað, fæðingarstað sín- um. Við embættislok hans var prestakallið lagt niður. Auk prestsstarfanna var Einar félags- málafrömuður og barnakennari í sóknum sínum. Hann gat sér hvarvetna gott orð vegna vinsam- legrar framgöngu og hæfni til prestsstarfa. Einar fékk snemma áhuga á tónlist, lærði á píanó og lék í dans- hljómsveitum, auk þess sem hann var drátthagur vel, teiknaði og málaði. Hann átti líka auðvelt með að koma fyrir sig orði, eins og best kom í ljós í ræðugerð hans síðar á ævinni. Hann var áhugasamur um búskap og rak um tíma sauðfjár- bú í Söðulsholti. Einar varð þeirr- ar gæfu aðnjótandi að kvænast mætri konu, Sigrúnu G. Björns- dóttur, sem lifir mann sinn. Enda þótt Einar byggi lengst af úti á landi en ég í Reykjavík rofnaði vinátta okkar aldrei og ræddum við síðast saman aðeins nokkrum dögum áður en hann lést. Var þá mjög af honum dregið og ljóst hvert stefndi. Ég kveð Einar vin minn með trega og eftirsjá. Hann skilur eftir sig skarð sem seint verður fyllt. Blessuð sé minning hans. Guðjón Albertsson. Það voru engin bönd í fyrstu milli mín og séra Einars Jónsson- ar, prests í Söðulsholti, síðar í Ár- nesi og loks á fæðingarstað hans, Kálfafellsstað, önnur en þau að í kirkjubókum prófastsins var hann fráfarandi og ég viðtakandi prestur í Söðulsholti á Snæfells- nesi fyrir margt löngu. Og kannski sá hann í þessum unga guðfræðingi sjálfan sig í sömu sporum að koma, en nú var hann að fara. Hann hafði verið þar prestur í áratug þegar hann ákvað að sækja um norður í Árnesi. En eftir því sem hvert árið leið þá kom skýrar í ljós sá þráður sem var okkur sameiginlegur, og það var prestsþjónustan við Snæ- fellinga. Sóknarbörnin prýðisfólk, gott fólk í raun eins og allir eru þegar öllu er á botninn hvolft. Þessu fólki reyndist hann ætíð trygglyndur. Það var ætíð traustvekjandi ró- lyndissvipur yfir honum og nettur strókurinn upp úr pípunni árétt- aði þá tilfinningu. En þrátt fyrir rólyndisfasið hafði hann oftast hratt á hæli sem gaf til kynna ein- hverja innri ólgu. Það var alltaf eitthvert erindi sem hann var að reka og ekki haft orð á því enda það hans mál. Kannski var það bara þetta erindi sem við teljum okkur öll þurfa að reka, að lifa. Hann var maður hins fámenna samtals og þar var hann glaður og naut sín – eða þá hann sat og sagði fátt, kumraði í honum og ef öld- ungis sammála öðrum þá upp- ljómaðist langt og grannt andlit hans og hlý orð fylgdu. En hann var líka listamaður og naut sín við hljóðfærið. Síðast sá ég hann í stofunni á Þverá í Eyjahreppi fyr- ir tveimur árum. Hamingjusamur maður með harmonikku í fanginu. En lífið býður okkur mannfólk- inu oft upp á ýmsar óvæntar krækjur og ný kynni. Atvikin hög- uðu því svo að viðtakandi séra Einars í Söðulsholti þjónaði Snæ- fellingum í rúman áratug og hvarf svo að öðru embætti kirkjunnar sem var fangaþjónusta. Ekki var hinn gamli viðtakandi Söðulsholts búinn að vera lengi í þjónustu kirkjunnar við fanga þá þeirri spurningu fór að skjóta upp: Þekktir þú ekki Þóru Ein- arsdóttur í Vernd? Og einhverjir sem voru ættfróðir sögðu: Hún var jú móðir hans séra Einars. Tókst þú ekki við af honum fyrir vestan? Næsta verkefni var að lesa minningar Þóru í Vernd. Þar er merk saga rakin, saga sérstakrar atorku- og hugsjónakonu sem var potturinn og pannan á bak við fangahjálpina Vernd. Prestskona í sveit með miklar mannúðarhug- sjónir sem sveitin fagra fyrir aust- an, sjálf Suðursveitin og Kálfa- fellsstaður, var of lítill vettvangur fyrir því að hún var stórhuga kona. Síðar stofnaði fyrrverandi sveitaprestsfrúin skóla á Ind- landi, en það er önnur saga. Já, hún mamma, sagði séra Einar, þegar ég spurði hann um eitthvað tilheyrandi Vernd eftir að vera orðinn sjálfur formaður þeirra samtaka. Í rödd hans leyndist að- dáun og virðing – og dulin spenna fyrir því hvað hún myndi taka sér fyrir hendur næst enda þótt hún væri horfin af heimi þessum. Sjálfur var hann ætíð nokkuð jarðbundinn sveitamaður með guðlegan neista og félagsmála- vafstur á borgar- og heimsvísu var honum framandi. Sveitin var hans staður. Guð blessi minningu séra Ein- ars Guðna Jónssonar. Hreinn S. Hákonarson. Kvaddur er sr. Einar G. Jóns- son, sem var trúr sínu lífsstarfi, við þessi skil milli jarðar og him- ins, vonar og fullvissu trúarinnar og veiru og ógnar, sem í dag meina nálægð fylgdar svo margra við jarðaför, sem vildu kveðja sóknarprestinn sinn, ættingja, vin og kollega. Myndir minninga kallast fram, fyrst um þennan hávaxna dökk- hærða nemanda í guðfræðideild Háskólans, sem leyndi á sér með sinni hógværð, en þegar hann tók til máls, var hann kjarnyrtur og ákveðinn, sem sá einnig það spaugilega, þó alvara fagnaðarer- indisins væri þar undirliggjandi. Í kirkjusögu sló hann okkur öllum við og virtist kunna meira en bæk- ur okkar hinna sögðu. Afsökun okkar var að hann kynni söguna betur sem prestssonur frá Kálfa- fellsstað, þar sem föðurafi hans hafði einnig verið prestur. Síðar kynntist ég nákvæmni hans og víðtækri þekkingu á svo mörgum sviðum, sem hann naut á starfsdegi sem prestur, bóndi, kennari, listamaður og hljómlist- armaður með Guðs náð. Listin birtist í teikningum hans, gjarnan af gömlum sveitabæjum sem lifn- uðu við. Hljómlistin kom frá sálu hans, hvort sem hann lék á harm- ónikku, orgel eða píanó eða með hljómsveitum. Aldrei af nótum. Ég gleymi ekki kveldi á presta- stefnu þegar nokkrir höfðu fengið sér léttvín og sr. Einar var kall- aður að píanóinu í gríni með hlátri. Hann varð sem annar þeg- ar hann settist. Stækkaði í stóln- um og lögin streymdu fram, hvert af öðru af meistaranæmni í túlk- un, hvort sem það var frá gömlu meisturum tónlistarinnar eða jass. Við þögnuðum og hlustuðum í auðmýkt. Ekki gleymist barátta hans fyrir gömlu kirkjunni í Árnes- prestakalli, elstu byggingu sýsl- unnar, sem hann taldi að varð- veita yrði, sem varð þrátt fyrir ágreining og hafði þær afleiðingar m.a. að hann flutti heim að Kálfa- fellsstað. Þar sýndi hann kirkjunni, staðnum og prestssetrinu sömu alúð, trúnað og umhyggju eins og á fyrri stöðum í Söðulsholti og í Árnesi. Í prestsstarfi með boðun og sálusorgun, í trúnaðarstörfum samfélagsins og í kennslu í skól- um, í verndun og umhirðu húsa og kirkju með litla safnaðarheim- ilinu við Kálfafellsstaðarkirkju, sem hann hvatti til byggingar á og vann að. Hann vann hörðum höndum við umhirðuna, málaði, smíðaði og gróf með haka og skóflu. Það var ekki tíundað allt til verðs, eins og viðgengst hjá flestum öðrum, heldur höfðaði til ábyrgðar á því, sem honum hafði verið trúað fyrir í köllun til starfs og lífs. Ekki gleymist heldur hvernig hann reyndist fjölskyldu og ætt- ingjum, ferðaðist um erlendis og um allt land með Sigrúnu sinni, oft á gamla húsbílnum og þegar hún veiktist síðar, hvernig hann hugsaði um hana og nú síðast sjálfur veikur. Þó gaf hann sér alltaf tíma til að fara á elliheimili og spila þar fyrir fólkið. Þannig var hann trúr allt til enda þeim hæfileikum, sem Drottinn hafði gefið honum. Við þessi skil milli himins og jarðar, finnst mér eins og talað til sr. Einars með orðum ritningar- innar: „Gott, þú góði og trúi þjónn, yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn til fagnaðar herra þíns.“ Halldór Gunnarsson. Á ofanverðri síðustu öld var prestaköllum í landinu víða á ann- an veg skipað en nú er. Víða voru þau fámenn, en sóknirnar marg- ar. Þjóðkirkjan leitaðist enda við að styrkja byggðirnar í viðleitni þeirra til þess að lifa af. Það var ekki öllum hent að þjóna við þær aðstæður. Kirkjurnar og staðirn- ir stóðu að sínu leyti vörð um byggðirnar, sýnileg lifandi tákn um lífsbaráttu þjóðarinnar um aldirnar. Víða voru staðirnir setn- ir af vel menntuðum, hæfileika- ríkum prestum, sem kosið höfðu sjer að standa vörðinn um helgi- staðina. Síra Sigurður Pálsson vígslubiskup skilgreindi þá svo, að „helgistaðir þjóðarinnar eru inn til dala og út til nesja og á miðunum við landið, hvarvetna þar sem þjóðin hefur helgað land- ið með lífsbaráttu sinni um ald- irnar“. Hlutur Fagnaðarerindis- ins og hins postullega embættis í þeirri lífsbaráttu er samofinn öllu því streði; við orfið og rekuna og pálinn, yfir hlóðunum og við þvottabalann, við árina og færið; frá heiði til hafs. Þeir lögðu lið þar sem til liðsemdar var kallað, enda tilheyrðu þeir sínum sóknum. Síra Einar G. Jónsson, pastor emeritus, var í mörgu verðugur fulltrúi þessarar nú bráðum horfnu aldar presta. Hafði marga kosti og suma prýðilega: Fjöl- menntaður, víðlesinn, söngvinn og góður hljóðfæraleikari. Glaður lífsnautnamaður, en þó hógvær og hófsamur og kyrr, prúðmenni sem hvergi tranaði sjer fram. Námsferill hans greinir, hversu hann bjó sig til þjónustunnar. Að loknu embættisprófi nam hann kirkjusögu við Kaupmannahafn- arháskóla, uppeldis- og kennslu- fræði við HÍ, bætti við sig kirkju- sögu og sálgæzlu við sama skóla auk tónlistarnáms við Tónlistar- skólann í Reykjavík. Ekki verða fjölbreytt störf hans og trúnaðarstörf rakin hjer frekar þó þau ykju í mynd þess sem hann var. Öll eru þau niður lögð prests- setrin sem hann sat: Söðulsholt, Árnes og Kálfafellsstaður. Þó lifa byggðirnar fyrir Guðs miskunn. Mjer er minnisstæð vörn hans og rökfærsla fyrir rjetti staðanna og safnaðanna til að njóta þeirra, enda eru þeir sjálfseignarstofn- anir, þótt nú sje það tízka að láta efni þeirra ala þjónustuna í mannmergðinni víðs fjarri byggðunum, sem þeir voru um aldir efldir að fjármunum til að þjóna. Megi hann njóta fyrirheita Drottins í fögnuði himnanna. Fólkinu hans votta eg samúð og bið minningu hans blessunar. Geir Waage, sóknarprestur í Reyk- holti í Borgarfirði. Einar Guðni Jónsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.