Morgunblaðið - 16.04.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.04.2020, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR Þungar og öflugar undirstöður DVERGARNIR R HNERRIR DURGURJÖTUNN DRAUPNIR ÞJARKUR Þessir dvergar henta vel sem undirstöður þar sem þung og öflug festing er aðalatriði. fyrir mér, að það hefðu komið fram alvarlegar ásakanir á hendur mér frá samstarfskonu og það væri „Me too“- mál. Mér var gefinn kostur á starfs- lokasamningi og málið yrði þá látið niður falla og ekki rætt frekar en að öðrum kosti fengi ég formlega áminningu og mér sagt upp störfum í kjölfarið. Þetta var vondur fundur og ásökunin kom mér í opna skjöldu,“ segir Pétur Þór. „Me too“-byltingin svokallaða var þá í hámarki og Pétri fannst hann varnarlaus. „Þetta hafði skelfileg áhrif á mig, konu mína og börn. Sem betur fer gekk ég strax í það að boða fjölskyldufund til að segja fólkinu mínu frá þessum ásökunum og fá mér lögmann til að ráðfæra mig við. Það kom í ljós þegar lögmaður minn fékk, eftir mikla eftirgangsmuni, bréfið sem samstarfskona mín hafði skrifað stjórninni að þar kom ekkert fram um kynferðislega áreitni. Raunar reyndu stjórnarmennirnir að þræta fyrir það síðar að hafa komið fram með þessa ásökun en frásögn mín var staðfest í vitna- leiðslum í dómsal eftir að ég höfðaði málið, bæði af trúnaðarmanninum sem var með mér á fundinum og af öðrum sem fengið hafði þessa skýr- ingu á brottrekstri mínum,“ segir Pétur. Hann hefur engar skýringar á því að þessar ásakanir komu fram aðrar en þær að þarna hafi fundist auðveld leið til að koma honum frá. Í hans huga styður það kenninguna sem staðfest hafi verið við vitnaleiðslur að fyrrverandi formaður Eyþings, Guð- mundur Baldvin Guðmundsson, hafi beðið samstarfskonuna um að skrifa stjórninni bréf um samstarfsörðug- leika við Pétur þannig að stjórnin hefði eitthvað í höndunum til að koma honum frá. Pétur segist hafa átt náið og að því hann taldi gott samstarf við Guðmund á meðan þeir störfuðu saman. Tekur hann fram að komið hafi upp ágreiningur á milli sín og samstarfskonunnar. Hann hafi talið sig hafa leyst þau mál fyrr um sumarið og meðal annars beðið hana afsökunar á framkomu sinni. Hún hafi lýst sig mjög sátta með þá niður- stöðu og samstarfið verið með ágæt- um eftir það. Þess vegna hafi verið sérkennilegt að fá þetta framan í sig. Kostaði á fjórða tug milljóna Athygli vekur hversu mikið lá á að koma Pétri frá. Eðlileg starfslok voru að nálgast hjá honum. Hann tók þátt í undirbúningi að sameiningu Eyþings og tveggja atvinnu- þróunarfélaga í ein samtök. Var nokkuð ljóst að þá yrði fram- kvæmdastjórum sagt upp og sjálfur segist Pétur Þór hafa reiknað með að hverfa úr starfi framkvæmdastjóra á þeim tímamótum. Sameiningin kom síðan til framkvæmda um síðustu áramót þegar stofnuð voru Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Málið varð Eyþingi og sveitar- félögunum sem að því standa dýrt. Dómsáttin sem gerð var 27. janúar sl. kostaði 14,8 milljónir og hefur Pétur áætlað að kostnaðurinn hafi í heildina orðið á fjórða tug milljóna þegar við bæturnar samkvæmt dóm- sáttinni er bætt kostnaði á þeim tíma sem honum var meinað að mæta til vinnu og áætluðum kostnaði lög- manns Eyþings. Þegar dómsáttin hafði verið gerð sendi stjórn Eyþings sveitarfélög- unum bréf með ósk um viðbótar- framlag til að standa straum af sátt- inni. Í bréfinu, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, kemur fram að rétt sé að fara með gögnin sem trún- aðarmál og bóka um afgreiðslu er- indisins í trúnaðarmálabók. Sveit- arfélögin fóru flest eftir þessu en sum brugðust við með öðrum hætti. Til dæmis var trúnaðinum mótmælt af sveitarstjórn Svalbarðsstrand- arhrepps og þá kom fram í fund- argerð bæjarráðs Akureyrar að þetta væri mál fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Eyþings en aðeins vegna þess að fulltrúi minnihlutans lét það koma fram í bókun þar sem hann vakti athygli á málinu. For- menn Eyþings komu úr röðum meirihlutans á Akureyri. Meginhluti kostnaðarins lendir einmitt á skatt- greiðendum þar, rúmar níu milljónir króna, vegna þess að flestir íbúarnir eru þar. Þá hafa fulltrúar minnihlut- ans í sveitarstjórn Eyjafjarð- arsveitar skorað á formann og stjórn Eyþings að axla ábyrgð á mistökum sínum með viðeigandi hætti, eins og það er orðað. Kórónar undarlega stjórnsýslu Í svörum við fyrirspurnum og at- hugasemdum sem Einar Brynjólfs- son, útsvarsgreiðandi á Akureyri, hefur sett fram í greinum í Vikudegi hefur komið fram að stjórnendur bæjarins og Eyþings telji sig ekki hafa heimild til að tjá sig nema að litlu leyti opinberlega um málið, þar sem það sé starfsmannamál. Um ástæður uppsagnarinnar er það eitt sagt að trúnaðarbrestur hafi orðið milli framkvæmdastjóra og stjórnar og ekki náðst samkomulag um starfslok. Því hafi verið nauðsynlegt að segja framkvæmdastjóranum upp störfum. Síðast kom þessi synj- un um upplýsingar fram í yfirlýs- ingu stjórnar SSNE og fyrrverandi fulltrúa í stjórn Eyþings sem birtist í rafrænni útgáfu Vikudags 2. apríl. Pétur Þór vekur í þessu sambandi athygli á að þinghaldið í dómsmáli hans hafi verið opið. Það sem þar hafi komið fram geti því ekki verið trúnaðarmál. „Ég hlýt að vera sá starfsmaður sem rætt er um. Ég heyrði að það væri vitnað til mín, að ég hefði óskað eftir trúnaði og að málið færi ekki í fjölmiðla. Það hef ég aldrei gert enda ekki á mínu færi að stöðva upplýsingar úr opnu þing- haldi. Að senda beiðni um auka- fjárveitingar með þeim skilaboðum að trúnaður skuli ríkja um tilefni þeirra er ekki í takt við opna stjórn- sýslu sem allir tala um að viðhafa, hvað þá vandaða stjórnsýslu. Mér finnst yfirlýsing stjórnarmanna SSNE og Eyþings kóróna þessa undarlegu stjórnsýslu. Ég trúi því ekki að fólkið hafi hugsað málið til enda. Þessi afstaða þess gengur þvert gegn upplýsingalögum og rétti fólks til upplýsinga úr stjórnsýsl- unni.“ Kennsluefni um málsmeðferð Pétur Þór segir að málinu hefði átt að ljúka gagnvart sér með dóm- sáttinni. Hún kom þannig til að eftir vitnaleiðslur mat dómarinn stöðuna þannig að hann ráðlagði lögmönnum að ræða saman um möguleika á dómsátt. Pétur Þór metur niður- stöðuna þannig að með henni hafi falist viðurkenning á rétti hans til skaðabóta og miskabóta auk máls- kostnaðar vegna þess að ekki hafi verið staðið að uppsögn hans með lögmætum hætti. „Ég hélt að stjórnin myndi kynna þetta fyrir sveitarstjórnunum á eðli- legan hátt, segja að henni hefðu orð- ið á mistök við málsmeðferð sem hún harmaði og bæðist velvirðingar á. Þá hefðu engin eftirmál orðið af minni hálfu,“ segir Pétur. Með leyndinni hafi væntanlega átt að reyna að breiða yfir það sem úrskeiðis fór. Pétur telur að í máli hans kristall- ist skortur á þekkingu sveitar- stjórnarfólks, að minnsta kosti norðanlands, á reglum stjórnsýsl- unnar. Hann hefur haft nógan tíma eftir að honum var sagt upp störfum. Athyglisvert er að eitt af því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur er að skrifa kennsluefni fyrir sveitar- stjórnir um málsmeðferð í áþekkum málum, út frá málsmeðferðar- reglum. „Ég á svo sem ekki von á því að mér gangi vel að koma þessu efni á framfæri, eftir það sem á undan er gengið,“ tekur Pétur Þór fram. Vildu leyna ástæðum útgjalda  Eyþing óskaði eftir að leynd ríkti um dómsátt sem gerð var við fyrrverandi framkvæmdastjóra  Aðgerðir við að koma honum frá kostuðu útsvarsgreiðendur á Norðurlandi á fjórða tug milljóna Morgunblaðið/Margrét Þóra Við Hof Pétur Þór Jónasson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Eyþings, býr á Akureyri. Menningarhúsið í baksýn. VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta var áfallaár í lífi mínu. Um sumarið greindist ég með slæmt krabbamein og þurfti að fara í stóra aðgerð. Ég var í krabbameins- meðferð og veikindaleyfi þegar ann- að áfall dundi yfir, ennþá þyngra því það var af mannavöldum. Ég var kallaður á fund formanns og vara- formanns Eyþings og ranglega sak- aður um kynferðislega áreitni gagn- vart samstarfskonu, að því að mér virðist í þeim eina tilgangi að bola mér úr starfi á sem stystum tíma,“ segir Pétur Þór Jónasson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Eyþings, sem var samtök sveitarfélaga í Eyja- firði og Þingeyjarsýslum. Hann ræð- ir um mál sem komu upp á árinu 2018. Það vakti athygli þegar það spurð- ist út, þrátt fyrir ósk stjórnar Ey- þings um trúnað, að gerð hefði verið dómsátt við framkvæmdastjórann fyrrverandi í janúar sl. og hann fengi tæpar 15 milljónir kr. í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar ári fyrr. Stjórn Eyþings sendi reikninginn á sveitarfélögin með ósk um að þau færu með erindið sem trúnaðarmál. Pétur Þór hefur látið það koma fram opinberlega að leyndin hafi ekki ver- ið að hans ósk og að hann hafi ýmis- legt við stjórnsýslu sveitarfélaganna að athuga, bæði við eftirleik málsins og málið sjálft sem lauk með dóm- sáttinni. Alvarlegar ásakanir Fundurinn afdrifaríki var í byrjun október 2018. Ný stjórn hafði þá ný- lega tekið við hjá Eyþingi og for- maður og varaformaður, Hilda Jana Gísladóttir og Kristján Þór Magnús- son, boðuðu hann á fundinn til að ræða stöðuna og hvað væri fram undan hjá honum og vinnustaðnum. Pétur segist hafa tekið trúnaðar- mann með sér á fundinn og hrósar happi yfir því í ljósi þess sem síðar gerðist. „Það var bara eitt mál kynnt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.