Morgunblaðið - 16.04.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 16.04.2020, Síða 8
Tekjutengd afborgun námslána mun lækka þegar vextir og endur- greiðsluhlutfall á eldri námslánum LÍN verða lækkuð á næstunni. Ábyrgðarmenn á um 30.000 lánum verða felldir brott til að tryggja jafn- ræði. Uppgreiðsluafsláttur verður hækkaður upp í allt að 15% þegar til- lögur um að bæta stuðning við greið- endur námslána verða innleiddar. Forsætisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og fjár- málaráðherra kynntu þessar breyt- ingar í gær. Ríkisstjórnin ákvað að fara að til- lögum starfshóps um endurskoðun á reglum vegna endurgreiðslu náms- lána. Hópurinn var skipaður í tengslum við kjaraviðræður á opin- berum markaði. Í aðgerðunum felst m.a. að vextir námslána lækka úr 1% í 0,4% og ábyrgðarmenn á lánum í skilum sem tekin voru fyrir 2009 falla brott. Starfshópurinn mat nú- virtan kostnað aðgerðanna um 14 milljarða króna, sem falla á lengri tíma og LÍN fjármagnar. BHM fagnar aðgerðunum Bandalag háskólamanna (BHM) gaf út yfirlýsingu í gær og fagnaði þessum boðuðu aðgerðum ríkis- stjórnarinnar. „Þær munu koma tugþúsundum Íslendinga til góða, bæði félagsmönnum aðildarfélaga BHM sem og öðrum sem greiða af námslánum. BHM hefur árum sam- an barist fyrir því að dregið verði úr endurgreiðslubyrði námslána og að ábyrgðamannakerfið verði afnumið að fullu. Með þeim breytingum sem ríkisstjórnin hefur nú boðað eru þessi baráttumál loksins í höfn. Kaflaskil hafa orðið í hagsmuna- og réttindabaráttu BHM fyrir félags- menn,“ sagði m.a. í yfirlýsingu Bandalags háskólamanna. gudni@mbl.is Námslánin verða léttari í skauti  Vextir og endurgreiðsluhlutfall eldri námslána LÍN lækka  BHM fagnar 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga. 10–17 Laugardaga. 11–15 Fjármálaráðherra sat fyrirsvörum á veffundi Samtaka atvinnulífsins í gær og fór yfir stöðuna í efnahags- og atvinnu- málum og þau úrræði sem rík- isstjórnin hefði gripið til vegna kórónuveirufarald- ursins. Þá kom fram að frekari að- gerðir væru vænt- anlegar fyrir viku- lok án þess að útfærsla þeirra væri rakin í ein- stökum atriðum. Þó er ljóst að stjórnvöld átta sig á að til dæmis þarf að bregðast sérstaklega við vanda þeirra sem gert hefur ver- ið að loka fyrirtækjum sínum. Það er spurning um sanngirni, segir fjármálaráðherra.    Annað sem fram kom er aðfjármálaráðherra leggur ríka áherslu á að koma efnahags- lífinu hér á landi á fulla ferð sem fyrst þó að áfram yrði lokað til útlanda.    Þetta skiptir miklu. Íslendingarhafa ekki nema að litlu leyti stjórn á því hvenær ferðalög á milli landa hefjast á ný og verða að fara mjög varlega í að aflétta hömlum á borð við sóttkví við komu til landsins.    Þegar tekist hefur að útrýmaveirunni innanlands, eða svo gott sem, þá er mikill sigur unn- inn. Þá getur hagkerfið innan- lands farið á fulla ferð, í það minnsta allt sem ekki snýr að þjónustu við erlenda ferðamenn.    Þegar innlenda hagkerfið erfarið að snúast með nánast hefðbundum hætti verður ástand- ið gjörbreytt frá því sem nú er. Alla áherslu þarf að setja á að ná því markmiði sem fyrst. Bjarni Benediktsson Innlenda hagkerfið er aðalatriðið nú STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hin alþjóðlegu verðlaun Vigdísar Finnbogadóttur voru afhent í fyrsta sinn í gærkvöldi. Færeyski málvísindamaðurinn, kennarinn og útgefandinn Jonhard Mikkelsen varð sá fyrsti sem hreppti þann heiður, en hann hlaut Vigdísar- verðlaunin. fyrir einstakt framlag sitt til að efla og þróa færeyska tungu bæði inn á við og út á við. Benedikt Jónsson, sendiherra og Aðalræðismaður Íslendinga í Fær- eyjum, afhenti Mikkelsen verðlaun- in og var sýnt frá því í sérstakri dagskrá RÚV í gærkvöldi. Íslensk stjórnvöld, Háskóli Ís- lands og Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur standa að verðlaun- unum, og á að veita þau árlega einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu menn- ingar og þá einkum tungumála. Í fréttatilkynningu um afhend- inguna í gærkvöldi segir að til- gangurinn með verðlaununum sé „að heiðra og vekja athygli á lofs- verðu framlagi Vigdísar til tungu- mála og menningar, en eins og al- þjóð veit hafa þessi málefni ætíð verið henni afar hugleikin.“ Ljósmynd/Færeyska Kringvarpið Vigdísarverðlaunin Jonhard Mikkelsen er fyrsti verðlaunahafinn. Jonhard hlaut fyrstu Vigdísarverðlaunin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.