Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Umsjón með samningaviðræðum og gerð kaupsamninga. Við greinum fjárhag og rekstur fyrirtækja og önnumst fjármögnun og fjárhagslega endurskipulagningu þeirra. Haukur Þór Hauksson – haukur@investis.is – Gsm. 893 9855 Thomas Möller – thomas@investis.is – Gsm. 893 9370 Steinn Haukur Hauksson – steinn@investis.is – Gsm. 849 8360 Í-MAT ehf. JG ehf. Hér eru nokkur dæmi um verkefni þar sem Investis hefur annast ráðgjöf við sölu, sameiningar eða aðkomu fjárfesta á undanförnum árum: KAUP, SALA OG SAMEINING FYRIRTÆKJA Heimsmynd okkar hefurverið umbylt. Megir þúlifa áhugaverða tíma,hljómar kínverskt mál- tæki, en langflest okkar myndu örugglega velja að hafa ekki lifað innrás Covid-19 inn í líf okkar síð- astliðna mánuði. Heilbrigðiskerfið, bæði spítalarnir sem og heilsu- gæslan, stendur fremst í barátt- unni við veiruna og af augljósum ástæðum hefur því þurft að breyta miklu í starfsemi þessara tveggja hornsteina kerfisins. Líf okkar er gjörbreytt Á mörgum heilsugæslum er því reynt að sinna sem mestu í gegn- um símatíma og/eða Heilsuveru, og tímabókanir hjá læknum eða hjúkrunarfræðingum ekki gefnar nema að undangengnu mati læknis eða hjúkrunarfræðings símleiðis á einkennum hvers og eins. En hvað þá með alla „venjulegu sjúkdómana“, alla þá sjúkdóma sem heilsugæslan hefur sinnt við greiningu og fyrstu meðferð dags- daglega alla daga ársins? Hvað með brjóstverki, hjartaáföll, heila- áföll, botnlangabólgu og fleiri bráða sjúkdóma? Hvað verður um þá og hver er tíðni þeirra á tímum veirunnar? Fáar formlegar rannsóknir hafa skiljanlega enn farið fram, en vís- bendingar eru um, bæði vestan hafs og austan, að bráðatilfellum eins og hjarta- og heilaáföllum hafi farið fækkandi þar nú þegar veiran hefur gjörbreytt lífi okkar eins og við þekktum það síðastliðna mán- uði. Harlan Krumholz, hjartalækn- ir við Yale-háskólann í Bandaríkj- unum, ritar grein í New York Times hinn 6. apríl sl. sem ber yfirskriftina Hvað varð um öll hjartaáföllin? Þar lýsir hann reynslu lækna hjá Yale af því hvernig þeir upplifa marktæka fækkun bráðra sjúkdóma eins og til dæmis hjartaáfalla síðastliðna mánuði. Þessi þróun í Bandaríkj- unum virðist ekki bundin við hjartasjúkdóma: Manda Cheled- nik, skurðlæknir í Missouri-fylki, spyr á Twitter þann 5. apríl sl. hvað hafi orðið af sjúkdómum eins og venjulegri botnlangabólgu og bráðri gallblöðrubólgu? Situr fólk heima? Sama eða svipuð þróun virðist eiga sér stað austan hafs: Rann- sakendur á Spáni birtu nýlega grein þar sem þeir greindu frá 40% fækkun bráðra inngripa vegna hjartaáfalla í síðustu viku marsmánaðar á þessu ári saman- borið við vikurnar áður en farald- urinn skall á. Í grein í sænska læknatímaritinu Dagens Medicin þann 30. mars sl. er greint frá því að sænskir hjartalæknar telji kom- um vegna hjartavandamála á sjúkrahús þar í landi hafa fækkað mikið á tímum veirunnar. Mögu- lega breyttir áhættuþættir. Stóra spurningin er auðvitað af hverju þessi þróun virðist vera að eiga sér stað og hvort um sömu eða svipaða þróun sé að ræða hér á Íslandi? Nærtækasta skýringin er mögulega því miður sú að fólk sitji heima með einkenni þar sem, skilj- anlega, það vilji ekki leita á heilsu- gæslustöðvar eða sjúkrahús af ótta við að sýkjast þar af Covid-19. Einnig er mögulegt að á þessum tímum skipaðrar fjarlægðar við næsta mann séu áhættuþættir fyr- ir sumum sjúkdómum breyttir vegna breyttrar hegðunar okkar. Senda erindi eða hringja Í ljósi alls ofangreinds er ástæða til að minna á hlutverk öflugrar heilsugæslu hér á landi. Ástæða er til að minna á að með rafrænum skilríkjum er ávallt hægt að senda erindi í gegnum Heilsuveru, eða þá hringja í afgreiðslu þinnar heilsu- gæslu og biðja um símatíma og eða viðtal við lækni eða hjúkrunar- fræðing. Heilsugæslan – hér fyrir þig. Hvað varð um öll hjartaáföllin? Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hjólreiðar Félagslíf og samkomur liggja í láginni í yfirstandandi samkomubanni en margir hafa í staðinn lagt stund á ýmiskonar hreyfingu sem er mjög gefandi fyrir sálina, hreinsar hugann og er alhliða heilsubót. Heilsuráð Hlynur Níels Grímsson sérnámslæknir í heimilislækn- ingum, Heilsugæslunni Seltjarnarnesi og Vesturbæ Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa orðið varir við aukinn áhuga borgar- búa á að rækta sitt eigið grænmeti. Opnað var fyrir umsóknir um mat- jurtagarða fyrir íbúa í Reykjavík um miðjan mars. Efalítið hefur ástandið á tímum kór- ónuveirunnar ýtt undir áhuga fólks. Eins hafa breytingar sem gerðar voru á görðunum við Logafold í Graf- arvogi í fyrra mælst vel fyrir og auk- ið áhugann, samkvæmt upplýsingum Jóns Halldórs Jónassonar, upplýs- ingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg. Ræktunarkassar voru settir upp við Logafold til að auðvelda notendum að láta græna fingur njóta sín án þess að bogra niður við jörð, segir í frétt á heimasíðu borgarinnar. Flest- ir eru kassarnir 40 sentímetra háir, en sumir þeirra eru 70 cm og henta þeir þeim sem hafa skerta hreyfi- getu. Hver kassi er 8 fermetrar. Á öðrum stöðum í borginni eru beð. Alls er boðið upp á kassa og beð á fimm stöðum í borginni. Reykjavík- urborg útdeilir einnig garðlöndum í Skammadal í Mosfellsbæ. Allir kass- ar við Logafold eru bókaðir í sumar og kominn er biðlisti, en enn eru þar lausir skikar. Garðarnir við Þorra- götu og í Laugardal hafa alltaf verið eftirsóttir og þar eru biðlistar eftir skika. Þá er meiri ásókn í matjurtagarðana í Fossvogi en oft áður, en þar eru þó enn lausir nokkrir skikar. Þá eru enn lausir bæði kassar og skikar í Árbæ. Með því að fara á vefsíðuna https:// reykjavik.is/matjurtagardar má sjá hvaða skikar eru lausir. Reykjavíkurborg hlutast til um út- hlutun á 553 görðum sem verða af- hentir leigjendum 1. maí eða fyrr ef veður leyfir. Leiga fyrir garða er óbreytt frá fyrra ári. Leiga fyrir garð- land í Skammadal er 5.000 krónur og skiki í fjölskyldugörðunum kostar 4.800 kr. Garðarnir í Logafold verða leigðir á 3.400 kr. kassinn (8 fer- metrar). Ræktunarkassar í Logafold hafa slegið í gegn Aukinn áhugi á ræktun matjurta Ljósmynd/Reykjavíkurborg Logafold Kassarnir voru settir upp í fyrra og hafa slegið í gegn. Þeir sem leigja þessa kassa þurfa ekki að bogra niðri við jörð við ræktunarstörfin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.