Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.04.2020, Blaðsíða 28
AFP Hylling Bakvarðasveitir í New York hylla hjúkrunarfólk í Westchester Medical Center fyrir fórnfús störf þess í þágu kórónuveirusjúklinga. Um allan heim berjast menn við að ná tökum á kórónuveiru- faraldrinum. Það gengur misjafnlega, en mörg þau ríki sem tóku af ákveðni og festu á faraldrinum þegar í byrjun eru nú farin að uppskera verulegan árangur. Er smám saman verið að draga úr og milda þær ráðstafanir sem gerðar voru þegar koma þurfti böndum á útbreiðsluna í upphafi. Enn er þó langt í land með að ástandið verði venjulegt að nýju og glíman við efnahagsleg skakkaföll verður langvinn. Í löndum sem voru sein til eru hins vegar framundan áframhaldandi ströng boð og bönn og djúp efnahagskreppa. Samkvæmt yfirliti á vef Johns Hopkins-háskólans í Banda- ríkjunum höfðu í gær greinst yfir tvær milljónir smita af völd- um kórónuveirunnar. Flest þeirra eru í Bandaríkjunum, 610 þúsund. Þar í landi hafa flest dauðsföllin orðið í New York, um átta þúsund að tölu. Varkárni Starfsmenn markaðarins í White- chapel í London nota maska við afgreiðslu. Sjúkrahús Hjúkrunarfólk í Aachen í Þýskalandi við umönnun fólks sem sýkst hefur af veirunni. Tekist á við faraldurinn um heim allan 28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020 Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr silki LEIKFÖNG Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu) - 108 Reykjavík - S. 568 3920 Opið 12.30-18.00 ÞÚ FIN N U R A LLT FYR IR Á H U G A M Á LIN H JÁ O K K U R pingpong.is pingpong.is pingpong.is pingpong.is ÞÚ FINNU ALLT FYRIR ÁHUGAM ÁLIN HJÁ O KKUR DARTVÖRUR Mikið úrval - Frábært verð Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Flest ríki reyna nú hvað þau geta til að sporna við útbreiðslu kórónu- veiru. Á meðan sum hafa reynt að setja á sem fæstar hömlur á íbúa sína brugðust önnur skjótt við með landamæralokunum og samkomu- banni. Eitt þessara ríkja er Nýja- Sjáland og hefur það vakið athygli út fyrir landsteina sína fyrir góðan ár- angur í baráttunni við veiruna. Íbúafjöldi á Nýja-Sjálandi er hátt í 4,8 milljónir, staðfest smit voru í gær 1.386 og andlát níu talsins. Hlutfall þeirra sem látist hafa þar vegna kór- ónuveiru er því 0,6%. Til samanburð- ar má nefna að hlutfall þetta er 12,8% á Ítalíu og 8,4% í Svíþjóð, sem um þessar mundir hefur hæsta dánarhlutfall á Norðurlöndum þegar kemur að staðfestum kórónuveiru- smitum. Fyrsta smit kórónuveiru greindist á Nýja-Sjálandi 28. febrúar sl., sama dag og veiru- og sýklafræðideild Landspítala greindi fyrsta smit hér á landi. Fljótlega var gripið til tak- markana á ferðalög fólks frá Kína, Íran og Suður-Kóreu. Innan við þremur vikum frá fyrsta smiti var al- gjör lokun landamæra boðuð. „Aldrei í sögu Nýja-Sjálands hef- ur verið gripið til svo umfangsmikilla aðgerða og ég geri mér fulla grein fyrir hve óvenjulegt þetta er,“ sagði forsætisráðherrann Jacinda Ardern við sama tilefni, en þá voru staðfest tilfelli þar í landi innan við 30. Á sama tíma voru allar samkomur innanhúss með fleiri en 100 manns bannaðar með fáeinum undantekn- ingum. Fjöldasamkomur utanhúss með fleiri en 500 manns voru einnig bannaðar. Skólum var þó enn haldið opnum. Það átti þó eftir að breytast því innan við viku síðar var lýst yfir neyðarástandi í landinu öllu með um- fangsmiklum lokunum og takmörk- unum í minnst fjórar vikur. Skilaboð stjórnvalda til almennings voru ein- föld: Haldið ykkur heima. Gott gengi Nýja-Sjálands í barátt- unni er sagt vera blanda af vísindum og sterkri forystu, en sýnatökur voru þar einnig áberandi og hafa nú yfir 50 þúsund sýni verið prófuð fyrir kórónuveiru. Ardern segir nú mikil- vægt að aflétta bönnum hægt til að koma í veg fyrir útbreiðslu á ný. Huga brátt að afléttingu Færeyjar eru annað land sem vak- ið hefur athygli fyrir góðan árangur. Þar voru staðfest smit í gær 184 og andlát ekkert en fyrsta smit greind- ist 4. mars. Færeyingar gripu snemma til þess ráðs að beita sóttkví, settu á ferðatakmarkanir og lokuðu landamærum sínum að hluta. Þeir munu brátt hefja fyrstu skref við að afnema þær hömlur sem grip- ið var til. Nánar má lesa um þetta á mbl.is í vefútgáfu Morgunblaðsins. Skjót viðbrögð eyríkja skiluðu góðum árangri  Nýja-Sjáland og Færeyjar hafa vakið athygli í baráttunni AFP Neyðarástand Ekki er útilokað að aðgerðir stjórnvalda á Nýja-Sjálandi verði framlengdar til að tryggja að veiran blossi ekki upp aftur. Skannaðu kóðann til að lesa meira um þetta á mbl.is KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.