Morgunblaðið - 16.04.2020, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. APRÍL 2020
Lífrænt
RAUÐRÓFUDUFT
í hylkjum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
• Lækkun blóðþrýstings
• Aukið blóðflæði
• Bætt súrefnisupptaka
• Aukið úthald, þrek og orka
• Minni bólguviðbragða
• Heilbrigðara hjarta-
og æðakerfi
Í aldanna raðir hefur neysla á rauðrófum
verið talin geta haft ýmis
heilsueflandi áhrif m.a.:
100% náttúrulegt og án allra aukaefna. –2 hylki á dag
Nítröt í rauðrófum hafa áhrif á blóðþrýsting. Þeir sem hafa lágan
blóðþrýsting eða taka blóðþrýstingslyf ættu að ráðfæra sig við lækni áður en
þeir bæta rauðrófum við mataræði sitt.
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
Á dögunum kom út ný skáldsaga
eftir rithöfundinn Óttar Norðfjörð,
Dimmuborgir. Fjallar sagan um
bókagagnrýnandann Elmar sem
kemst á snoðir um morð vinar síns
sem framið var 25 árum fyrr. Ótt-
ar vill ekki
meina að sagan
sé klassísk
glæpasaga. „Ég
held að sögu-
þráðurinn komi
fólki á óvart og
sé nokkuð öðru-
vísi en fólk
grunar,“ segir
Óttar.
„Ég fór svo-
lítið viljandi frá því sem hefur ver-
ið í gangi,“ segir Óttar. „Þar sem
lögreglan leysir eitthvert morðmál
og það er svakalegur drungi yfir
öllu.“
Óttar segist ekki viss hvort áður
hafi verið skrifuð glæpa- eða
spennusaga um bókagagnrýnanda
enda sé nokkuð létt yfir þessari
sögu. „Það er léttur tónn í bland
við alvarlegt mál.“
Tekur á einelti
Óttar segir kveikjuna að bókinni
hafa verið sjálfsvíg manns sem
hann þekkti nokkrum árum áður
en hann hóf skrif bókarinnar. Ótt-
ar þekkti manninn, sem var eldri
en hann, þegar hann var lagður í
einelti sem unglingur. „Þetta var á
tíunda áratugnum og var svolítið
brútal, hann fékk að finna fyrir
því. Hann hafði samt plumað sig
en svo mörgum árum seinna gat
hann ekki meir,“ segir Óttar.
Hann vildi því skrifa sögu sem
tæklaði einelti og tileinkar bókina
fórnarlömbum slíks ofbeldis. „Þeg-
ar maður fréttir af þessu finnur
maður að harmurinn og sorgin fer
aldrei, ef einhver lendir svona illa í
þessu. Mig langaði að fjalla um
þetta með einhverju móti. Þetta
var kjarninn en svo fer skáldskap-
urinn af stað þegar maður byrjar
að skrifa.“
Óttar segist sjálfur þekkja báðar
hliðar eineltis, var lagður í einelti
og tók svo seinna þátt í að leggja
krakka yngri en hann í einelti.
„Þetta er eitt af því fáa sem maður
sér virkilega eftir. Maður var
náttúrlega svo vitlaus og vissi ekki
betur.“
Einhver álög yfir öllu
Þó Óttar vilji ekki gefa of mikið
upp um söguþráð bókarinnar segir
hann nafn hennar, Dimmuborgir,
hafa mikla þýðingu fyrir fram-
vindu bókarinnar. „Fyrir aðal-
persónurnar tvær hefur þessi stað-
ur mikla þýðingu,“ segir Óttar.
Dimmuborgir segir hann merki-
legan stað. „Ég var hrifinn af því
að geta sett mikilvæga senu í bók-
inni þar. Fyrir utan að vera ótrú-
lega fallegur staður þá er hann
líka svo dulmagnaður. Með alla
þessa álfasteina og álfatrú og sög-
ur af huldufólki sem tengjast hon-
um. Þegar ég fer þarna um finnst
mér einhver álög yfir öllu. Ég trúi
ekki á svona en sögurnar af þess-
um stað eru svo áhugaverðar og
flottar.“
Sögusviðið hefur mikla tengingu
við æsku Óttars. „Þetta er Reykja-
víkursaga og ég sæki mikið í mitt
eigið líf, eins langt og það nær,“
segir hann og bendir á að persón-
urnar séu vitaskuld skáldaðar.
Bókin bankaði upp á
Skrif bókarinnar hafa tekið síð-
ustu sex árin að sögn Óttars og
segist hann ekki hafa getað sleppt
því að klára bókina. „Ég var alltaf
mjög hrifinn af grunnhugmynd-
inni, grunnplottinu. Ég held að það
sé örlítil nýjung í íslenskum
glæpasögum.“
Óttar lagði bókina um tíma frá
sér í langan tíma, hálfnaður með
skrif hennar. „Ég reyndi oft að
komast í hana aftur en festist allt-
af í kvikmynda- og þáttaskrifum.
Síðan fyrir tveimur árum fór ég í
barneignarfrí í þrjá mánuði og
fékk þá frí frá kvikmyndaiðn-
aðnum. Þá bankaði þessi bók allt í
einu upp á aftur.“
Á þeim tíma var bókin mun lík-
ari hefðbundinni glæpasögu, dökkt
var yfir söguþræðinum og persón-
unum líka. Þá hafði Óttar nýlokið
vinnu sinni við skrif á handriti
sakamálaþáttanna Brots sem sýnd-
ir voru hér á landi í lok síðasta árs
og í upphafi þessa árs. „Þá hugsaði
ég: mig langar ekki að gera þetta
aftur. Og þá breytti ég um stílinn
og tónninn varð allt annar,“ segir
Óttar en honum var seinna bent á
að þessi stíll væri kallaður „cosy
mystery“ á ensku en hefði ekki
notið mikilla vinsælda meðal rit-
höfunda hér á landi.
Kvikmynd í bígerð
Óttar var aðalhandritshöfundur
áðurnefndra þátta, Brots, sem
Netflix framleiddi og eru kallaðir
„The Valhalla Murders“ á enskri
tungu. Þá hefur hann unnið að
ýmsum kvikmyndaverkefnum í
gegnum árin, þar á meðal handriti
fyrir kvikmynd byggða á hans eig-
in skáldsögu, Una, sem ráðgert er
að fari í tökur í ár en þessa dag-
ana er ekki víst hvenær nákvæm-
lega þær hefjast sökum kórónu-
veirunnar. Með Óttari vann
Marteinn Þórsson að handritinu og
hefur kvikmyndin fengið styrk frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands.
„Minn áhugi lá alltaf í kvik-
myndum þegar ég var ungur og ég
ætlaði aldrei að skrifa bækur held-
ur handrit fyrir bíómyndir,“ segir
Óttar. „Ég byrjaði á bíóhandriti
þegar ég var 15 ára en vissi ekkert
hvað ég var að gera og þá leiddist
ég út í að skrifa bækur.“
Fyrir um 10 árum fór Óttar
smám saman að nálgast þessa
fyrstu ást sína í skrifum ef svo má
segja. „Þetta vatt bara upp á sig.“
Hann segir handritaskrif á
margan hátt lík bókaskrifum en þó
einnig mjög ólík. „Í grunninn er
maður að segja sögu og ég hef
lært mikið um að skrifa handrit
með því að skrifa skáldsögur,“ seg-
ir hann.
„En það er mjög skýr munur
sem ég tók eftir þegar ég byrjaði
aftur að skrifa þessa bók. Í bókum
er maður helst að segja meira og í
bíóhandritum minna.“ Í kvik-
myndahandritum sé því fátt verra
en þegar allt er matað ofan í
áhorfandann en því er akkúrat öf-
ugt farið þegar skáldsögur eru
lesnar.
„Ég get sem dæmi ekki unnið á
sama tíma í kvikmyndahandriti og
í skáldsögu. Ég þarf bara að segja
að núna í viku muni ég vinna í bók
en ekki kvikmyndahandriti. Þá
þarf ég að skipta ekki bara um gír
heldur einfaldlega skipta um bíl.“
Ekki að fríka út
eins og vinirnir
Óttar býr ásamt fjölskyldu sinni
í Barcelona á Spáni. Þar hefur ver-
ið sett útgöngubann þar sem ein-
ungis nauðsynlegar mannaferðir
eru leyfðar og ekkert opið annað
en matvöruverslanir og lyfjabúðir.
Útgöngubannið virðist þó ekki
herja mikið á sálarlíf Óttars, hing-
að til að minnsta kosti.
„Sem rithöfundur er maður bú-
inn að vera í einhverskonar sam-
göngubanni alla sína ævi og búinn
að halda sig frá fólki að einhverju
leyti síðustu fimmtán árin,“ segir
Óttar og hlær en vinna hans við
skrif fer að mestu fram heima.
„Ég finn ekki sömu einkenni og
vinir mínir hérna úti sem eru að
fríka út. Ég finn ekki fyrir neinu.
Það komu tímar hér áður fyrr þar
sem maður fór ekki út úr húsi í
marga daga því maður var djúpt
sokkinn í skáldsögu.“
Eins og í heimsendakvikmynd
Fyrir tveimur árum eignuðust
Óttar og kona hans dreng og segir
Óttar þó viðbrigði að geta ekki far-
ið út með honum.
„Ég má fara út að kaupa í mat-
inn. Það eru bara matvöruversl-
anir og apótek opin,“ segir Óttar.
„Konan mín er ólétt og komin
langt á leið. Hún hefur því ekkert
farið út því við viljum ekki að hún
smitist af þessum vírus.“
Hann segir breytinguna því
nokkra. „Ef maður væri ekki með
barn þá kannski tæki maður minna
eftir þessu. Núna horfum við á
tvær Pixar-myndir á dag í staðinn
fyrir eina.“
Óttari finnst staðan vera sér-
stök. „Þetta er náttúrlega stór-
furðulegt. Að fara út að versla í
matinn er bara eins og að vera í
heimsendabíómynd. Það er skrítið
að fara út á götu. Það er allt lokað,
götur hálftómar og allir með grím-
ur.“
Eins og áður sagði eiga Óttar og
kona hans von á barni en þar til
það lítur dagsins ljós eftir mánuð
eða svo getur verið að hann taki
þátt í vinnu með framleiðslufyr-
irtækinu True North. „Svo er ég
byrjaður að þróa skáldsöguna,
Dimmuborgir, sem kvikmynda-
handrit,“ segir hann en fram-
leiðslufyrirtækið Mystery hefur
keypt kvikmyndarétt sögunnar.
„Ég er með það í bakhöndinni og
geri annaðhvort af þessu tvennu
núna.“
Ljósmynd/Elo Vázquez
Á Spáni Óttar Norðfjörð býr ásamt fjölskyldu sinni í Barcelona. Þar er lífið óvenjulegt um þessar mundir en hann
er ekkert farinn að örvænta vegna ástandsins enda vanur því vera mikið heima við skrif bóka og handrita.
Verið í samkomubanni alla ævi
Ný skáldsaga Óttars Norðfjörð, Dimmuborgir, komin út Krimmi sem hefur létt yfirbragð
Fékk nóg eftir skrifin við þættina Brot Stórfurðulegt ástand í Barcelona, segir Óttar