Morgunblaðið - 16.04.2020, Side 61

Morgunblaðið - 16.04.2020, Side 61
Til framleiðslu á rauðumblóðkornum þarf m.a. járn,B12 vítamín og fólínsýru. Ef skortur er á einhverju þessara efna, minnkar framleiðsla rauðra blóðkorna sem leiðir á endanum til blóðleysis. Blóðskortur veldur því að rauðum blóðkornum, sem flytja súrefni um líkamann, fækkar og flutningsgeta þeirra minnkar. Við þetta tapa frumurnar orku sem getur valdið ýmsum líkamlegum kvillum. Járnskortur Járnskortur er einn algengasti næringarefnaskortur í heiminum og snertir u.þ.b. 25% jarðarbúa. Það eru þó nokkur vel þekkt og algeng einkenni járnskorts sem gott er að vera vakandi yfir: n Orkuleysi n Svimi & slappleiki n Hjartsláttartruflanir n Föl húð n Andþyngsli n Minni mótstaða gegn veikindum n Handa- og fótkuldi Ýmsir sjúkdómar og kvillar geta svo einnig valdið blóðskorti þannig að það er ráðlegt að leita læknis þegar grunur leikur að við þjáumst af blóðleysi. Bæði til að finna orsökina og svo skiptir það líka máli að vera ekki með of mikið járn. Ertu að fá nóg járn úr fæðunni? Allir þurfa að huga að næringunni og passa að fá öll næringarefni úr matnum eins og fremst er kostur. Við lifum ekki í fullkomnum heimi og oft er erfitt að næra sig vel, sem getur haft þær afleiðingar að meltingin frásogar ekki öll þau næringarefni sem við þurfum á að halda. Sumir eru svo hreinlega ekki nógu duglegir að borða járnríkan mat eins og rauðrófur, rautt kjöt, grænt grænmeti, baunir, hnetur, fræ ofl. Engin hægðartregða Meltingarvandamál og hægðartregða er vel þekktur fylgikvilli þess að taka inn járn á bætiefnaformi. Munnúðarnir frá Better You er byltingarkennd nýjung þar sem járnið frásogast gegnum slímhúð í munni. Þannig er alfarið sneitt framhjá meltingarfærum. Núna býður Better You upp á járn munnúða í tveimur styrkleikum, 5 mg og 10 mg. Sölustaðir: Apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða B-vítamín gegna því hlutverkiað viðhalda góðri heilsuog vellíðan. Þau taka þátt í nýtingu orku úr fæðunni og eru mikilvæg fyrir ýmsa líkamsstarfsemi svo sem starfsemi ónæmiskerfis, meltingarfæra, tauga, heila, vöðva, augna, hjarta, æðakerfis og myndunar rauðra blóðkorna. B-vítamín draga einnig úr þreytu og lúa og viðhalda eðlilegri slímhúð ásamt viðhaldi húðar, hárs og nagla. Er hættulegt að taka of mikið af B-vítamínum? B-vítamín fjölskyldan inniheldur 8 B-vítamín og þjóna þau öll mismunandi hlutverkum í líkamanum. B-vítamín eru vatnsleysanleg og þarf því að neyta þeirra reglulega. Ef B-vítamína er neytt í meira magni en líkaminn þarf á að halda á hverjum tíma, skilst umfram magn út með þvagi og því þarf ekki að hafa áhyggjur af ofneyslu. B-vítamín eru sérstaklega mikilvæg fyrir eldra fólk og konur sem eru barnshafandi og með barn á brjósti. Fólínsýra er hvað þekktust fyrir ófrískar konur en það hjálpar til við þroska fósturs og dregur úr hættu á fæðingargöllum. Umbreytir orkuefnum í nýtanlega orku Það er ekki B-vítamínin sjálf sem gefa okkur orku, en það er rétt að án þeirra mun líkamann skorta orku. Líkaminn notar kolvetni, fitu og prótein sem orkugjafa, en mikilvægt er að B-vítamín séu til staðar svo líkaminn geti nýtt þessa orkugjafa og umbreytt í nýtanlega orku. Margir sem byrja að taka inn B-vítamínblöndu finna fljótt gríðarlegan mun á sér. B-vítamínin hafa m.a. góð áhrif á taugarnar og geta því haft slakandi áhrif á líkamann og þannig leitt til betri svefns. Þegar við náum góðum svefni hvílist líkaminn vel og nær að endurnýja sig; taugakerfið endurnærist og andlega hliðin styrkist. Líkaminn þarf á um 13 vítamínum að halda og þar af eru 8 þeirra B-vítamín. Mataræðið skiptir máli Flestir fá nóg af B-vítamínum með fjölbreyttu mataræði. Samt sem áður getur ýmislegt haft áhrif á upptöku næringarefna úr fæðunni. Unnar matvörur eða matur sem hefur verið eldaður við háan hita getur tapað mikið af þeim vítamínum sem eru til staðar í fæðunni frá náttúrunnar hendi. Svo geta undirliggjandi sjúkdómar (sérstaklega tengdir meltingarveginum), mikil áfengisneysla, ýmis lyf ásamt stressi og álagi sem tengist nútíma lífsstíl einnig haft áhrif á upptöku bætiefna. Þekktasta vandamálið er skortur á B-12 vítamíni sem getur m.a. aukið hættu á taugasjúkdómum. Einkenni um skort á B-vítamínum geta verið: n Útbrotum á húð n Sprungur í húð kringum munn og hreistruð húð á vörum n Bólgin tunga n Þreyta og máttleysi n Blóðleysi n Pirringur eða depurð n Ógleði n Ónot í maga, hægðatregða eða of lausar hægðir n Dofi eða náladofi í fótum og höndum B-complete - munnúði sem tryggir upptöku Better You vítamínin koma í formi munnúða en það er einföld leið til að inntaka vítamín og henta öllum. Örsmáar sameindir vítamína frásogast hratt í gegnum slímhimnu kinna sem veitir hraða og áhrifaríka upptöku næringarefna. Fyrir þá sem eiga erfitt með að kyngja töflum eða hafa undirliggjandi meltingarvandamál og eiga erfitt með upptöku næringarefna í gegnum meltingarveginn, geta Better You munnúðarnir komið að virkilega góðum notum. B-complete munnúðinn inniheldur náttúruleg bragðefni af ferskjum, plómum og hindberjum. Útsölustaðir: Fjarðarkaup og flest apótek. Járnskortur er algeng orsök blóðleysis meðal jarðarbúa Margir lenda í vandræðum með meltinguna við inntöku á járni. Better you er með bragðgóða munnúða sem frásogast beint út í blóðrásina frá slímhúð í munni og sneiðir þannig framhjá meltingarfærum „Ástæða járnskorts er oftast vegna ónógs járns í fæðunni, blóðmissis, sjúkdóma og meltingarvandamála, aukinnar járnþarfar (t.d. vegna meðgöngu) eða vegna lélegs frásogs.“ B-vítamín eru mikilvæg fyrir orkuna, taugakerfið og andlega heilsu B- vítamín eru mikilvæg fyrir ýmsa líkamsstarfsemi svo sem starfsemi ónæmiskerfis, meltingarfæra, taugakerfis, vöðva, hjarta og æðakerfis.“ -complete munnúði nú ksins fáanlegur á Íslandi. B lo NÝTT NÝTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.