Fréttablaðið - 19.09.2020, Page 61
Njótum í faðmi Hjaltadals
Hólar í Hjaltadal eru einn friðsælasti staður á landinu. Þar er rekin fyrsta flokks ferðaþjónusta
með fjölbreytta gistimöguleika. Í vetur bjóðast frábærar dekurhelgar, tilvaldar fyrir pör og hópa.
Gistimöguleikar eru fjölbreyttir á Hólum. Smáhýsin eru afar notaleg og henta pörum eða stærri hópum.
Gústaf Gústafsson, framkvæmda
stjóri Hjaltadals ferðaþjónustu,
er með meistaragráðu í stýringu á
ábyrgri ferðaþjónustu. MYNDIR/AÐ-
SENDAR.
Kokkurinn Edu
ardo Montoya
með Ingu Dóru
Þórarinsdóttur
og dóttur þeirra
Lunu Maríu
Montoya Ingu
dóttur.
Hóladómkirkja
er vinsæll ferða
mannastaður
enda gull
fallegt kenni
leiti staðarins.
Myndin er tekin
í Auðunnar
stofu.
Staðurinn Hólar í Hjaltadal er landsþekktur fyrir gífurlega veðursæld. Í ná
grenninu er fjöldi fallegra gönguleiða sem gaman er að ganga eftir.
Hjaltadalur ferðaþjónusta ehf. er rekin undir merkjum ábyrgrar ferðaþjónustu þar
sem markmiðið er að vera í eins
miklu samstarfi við heimamenn
og hægt er og versla við fólk úr
héraði. Veitingastaðurinn Kaffi
Hólar, sem er staðsettur á Hólum
í Hjaltadal, er rekinn allt árið um
kring og gegnir tvíþættu hlutverki.
Annars vegar sem mötuneyti fyrir
nemendur Háskólans að Hólum og
starfsfólk á staðnum og hins vegar
á kvöldin yfir sumarmánuðina er
um að ræða „á la carte“ veitinga-
stað. „Kokkurinn er argentískur
og heitir Eduardo Montoya og býr
með fjölskyldu sinni að Frosta-
stöðum í Skagafirði. Matseðillinn
er því óneitanlega með argentísku
ívafi þar sem steikur og fiskur eru í
forgrunni.
Hluti af ábyrgðarstefnu ferða-
þjónustunnar er að versla eins
mikið og hægt er af úrvalshráefni
frá bændum og framleiðendum
í héraði. Norðurland er sann-
kölluð matarkista og er mikið um
hágæðamatvælaframleiðslu hér
í nærsveitum og endurspeglar
matseðillinn á veitingastaðnum
það. Kjöt, kryddjurtir, grænmeti;
gúrkur, tómatar og kartöflur á
matseðlinum, kemur úr nágranna-
sveitum. Þá er Hólableikjan
landsþekkt hráefni á meðal
matgæðinga og matreiðslufólks
á Íslandi. Nauta rib eye steikin í
steikarsamlokunni okkar kemur
til dæmis frá Birkihlíð, sem er rétt
sunnan við Sauðárkrók og svo er
súrdeigsbrauðið bakað í bakaríinu
á Sauðárkróki.
Sem dæmi var nafnið á veitinga-
staðinn valið í íbúakosningu hér á
Hólum. Kostirnir við þessa ábyrgu
rekstrarstefnu eru ótvíræðir, enda
er þetta hagstætt fyrir samfélagið
og umhverfið. Þetta er líka eitt-
hvað sem dregur að viðskiptavini
enda vilja okkar viðskiptavinir
smakka mat sem er framleiddur á
staðnum,“ segir Gústaf Gústafsson
framkvæmdastjóri.
Dásamleg dekurhelgi
„Í vetur ætlum við að bjóða upp
á spennandi og notalegar dekur-
helgar sem henta hvort heldur
er einstaklingum, pörum eða
hópum. Fólk mætir þá seinnipart
föstudags og dagskrá lýkur stuttu
eftir hádegi á sunnudeginum.
Helgarnar byrja á föstudagskvöldi
á bjórsmakki og kvöldsnarli, eftir
það verður boðið upp á línudans-
námskeið til þess að hrista hópinn
saman og búa til skemmtilega
stemningu. Við erum náttúrulega
staðsett í miðju Texas Íslands og
því á línudansinn vel við og kemur
gestunum í rétta stuðið til að
hrista úr sér vikuþreytuna.
Daginn eftir byrjum við á
morgunverði og svo er haldið
í gönguferð um Hólaskóg og
nágrenni, sem er í útjaðri þorps-
ins, með sérlega fróðum heima-
manni sem gjörþekkir skóginn og
sögu svæðisins. Svo verður boðið
upp á hádegismat.
Seinnipart laugardagsins verður
sannkölluð matarupplifun þar
sem þemað er villibráð á Hólum.
Gestum er þá kennt hvernig villi-
bráðin er meðhöndluð en aðalhrá-
efnið er gæs og hreindýr. Um
kvöldið verður svo stórkostlegur
villibráðarkvöldverður borinn
fram á veitingastaðnum Kaffi
Hólum.
Sunnudagurinn hefst í rólegheit-
unum með morgunverði og í kjöl-
farið verður núvitundarnámskeið
og æfingar tengdar því fram að
hádegi. Þetta er fullkominn endir
á skemmtilegu helgarnámskeiði
og skilur fólk eftir í ró og kyrrð.
Eftir hádegismat lýkur formlegri
dagskrá. Við mælum með því
að taka heimferðina í rólegheit-
unum og nýta daginn til þess að
skoða svæðið, kíkja í bakaríið á
Sauðárkróki eða skella sér í sund á
Hofsósi.“
„Dekurhelgarnar í vetur eru til-
valdar fyrir pör, hjón, einstaklinga
sem og fyrirtækja- eða vinahópa
og að gefa gestum nasaþefinn af
því hvernig Hólastemningin er.
Einnig höfum við tök á því að
klæðskerasníða helgarnar fyrir
fólk en við erum í sambandi við
góðan hóp af hæfileikaríku fólki á
svæðinu sem býður upp á fjöl-
breytta afþreyingarmöguleika.“
Gistimöguleikar
„Við erum bæði með átta notalegar
tveggja herbergja íbúðir á Hólum
í fjölbýlishúsum með svölum, sem
og nokkrar tegundir af smáhýsum,
hvort tveggja lítil tveggja manna
og stærri sem rúma allt að 4-6
manns. Allar íbúðir eru með sér
baðherbergi með salerni og sturtu,
eldhúsáhöldum, sjónvarpi og
þvottavél.“
Hvað svo?
„Þann 7. nóvember stefnum við á
að halda heljarinnar villibráðar-
hlaðborð þar sem við tjöldum öllu
til í mat og skemmtun. Þá verða vel
yfir 100 miðar til sölu en við getum
boðið gistimöguleika fyrir allt að
48 manns. Eftir áramót munum
við svo bjóða upp á frábærar
helgarferðir fyrir pör og hópa
þar sem þemað er fjallgöngur og
gönguskíði, en Hjaltadalurinn er
alger gönguskíðaparadís.“
Hjaltadalur ferðaþjónusta ehf. 551
Sauðárkrókur, Hólar í Hjaltadal
Bókaðu gistingu á booking@holar.
is eða www.visitholar.is Sími: 455-
6333, 849-6348 eða 662-4156.
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 9 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 NJÓTUM Í VETUR