Samtökin '78 - 30 ára Afmælisrit Samtakanna '78 - 01.06.2008, Side 4
6-7
nisyfirlit:
Ávarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra á afmæli
Samtakanna ‘78.
Yngsti homminn, elsta lesbían eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur.
Það skilja þau að sjötíu ár í aidri. Mikiö vatn hefur runnið til
sjávar síðan lítil strákastelpa bögglaöist ein með óskiljanlegar
tilfinningar í Miðbæjarskólanum á fjórða áratugnum og þar til
fjórtán ára strákur kom í fylgd pabba síns á fund
ungliöahreyfingar Samtakanna '78 árið 2007.
8-15
Úr grasrót I griðastað eftir Veturlióa Guönason.
Saga félagsskaparins lceland Hospitality, sem var fyrirrennari
Samtakanna '78 og stofnaöur tveimur árum fyrr. Þetta
afsprengi hippakynslóðarinnar á sér verðugan arftaka sem enn
starfar af fullum krafti, nefnilega leðurklúbbinn MSC Island.
16-19
Eini homminn í Klaustrinu eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur.
Frosti Jónsson erformaður Samtakanna ’78. Hann lýsir viðhorfi
sínu til félagsins og framtíöar þess. Þá lýsir hann unglingsárum
í Menntaskólanum á Akureyri þar sem hann vaknaði til vitundar
um sjálfan sig í skugga umræðunnar um alnæmi.
20-21
Þrjátíu ára stríðið, eftir Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur.
Saga Samtakanna ‘78 rakin í máli og myndum; allt frá
uppreisn Harðar Torfasonar, baráttunni við Ríkisútvarpið,
ótrúlegum fordómum og litríkum félagsheimilum til gleðiganga,
sorga og sigra.
22-44
Alnæmisfaraldurinn-þröngi vegurinn til sigurs, eftir
Böðvar Björnsson. Plágan sem kvaddi dyra þegar baráttu-
hugurinn var í algleymingi. Ungir menn sem sneru heim úr
sjálfskipaðri útiegð til að deyja. Dimmasti og sorglegasti tíminn í
sögu samkynhneigðra á íslandi.
45-49
Drottningar á djamminu eftir Hilmar Magnússon.
Hinsegin fólk á það sameiginlegt að kunna að sletta úr
klaufunum svo um munar. Skemmtanalíf borgarinnar
hefur ekki fariö varhluta af hinsegin menningu. Rifjuð er upp
djammsaga homma og lesbía á mölinni.
50-69
Blessað barnalán eftir Ragnhildi Sverrisdóttur.
Öðruvísi fjölskylda í Reykjavík. Tveir nýbakaðir pabbar og tvær
nýbakaðar mömmur kusu að feta nýjar slóðir við að stofna
fjölskyldu. Obbolítill strákur á nú tvö sett af foreldrum sem deila
með sér forsjánni.
70-73
Með pennann að vopni eftirÁrna Heimi Ingólfsson.
íslenskar bókmenntir eiga nú orðiö nokkra hefð fyrir hinsegin
bókmenntum. Sú hefð er þó ekki löng. í fyrra lést Elías Mar
rithöfundur sem fyrstur höfunda lýsti ástum karla opinskátt f
íslenskri sögu.
76-84