Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1974, Blaðsíða 34
32 ÍSLENSKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
umræddra veðurstöðva yfir sjó og fjarlægðar
þeirra frá ströndu. Seinkun síðasta frosts að
vori með vaxandi hæð (fjarlægð frá hafi) er
því sennilega afleiðing þess, að landrænna
einkenna veðurfarsins gætir þar í vaxandi
mæli, eins og nefnt var raunar hér að framan.
Við getum nú tengt saman líkingarnar
tvær, þar sem norðlæg breidd og hæð yfir
sjó eru óháðar breytistærðir, og fundið mis-
mun þeirra, Md, það er lengd tímabilsins, frá
því að meðalhiti sólarhringsins fer fyrst yfir
4,0 °C og þar til vænta má síðasta frosts að
vori (Bg—Sf). Minnumst þess samt, að ekki
er um nákvæmlega sama tímabil að ræða:
Md = 0,84 (Xi—60) + 0,045 X2 + 15,5
Xi = norðlæg breidd,0
X2 = hæð yfir sjó, m
Mismunur byrjunar gróandans og síðasta
frostdags eykst þannig um tæplega einn dag
við hverja gráðu norðlægrar breiddar og um
AV2 dag við hverja 100 m, sem land hækkar.
Að meðaltali fyrir allar 37 veðurstöðvarnar
má vænta síðasta frosts að vori tæpum 23
dögum, eftir að gróandinn byrjar (þ. e. með-
alhitinn fer fyrst yfir 4,0°C).
Fjöldi frostlausra daga að sumri.
í framhaldi af því, sem áður er rætt, var
reiknað út samband fjölda frostlausra daga
að sumarlagi á ýmsum stöðvum, skv. tölum
Jóns Eyþórssonar og Hlyns Sigtryggs-
sonar (1971), og hæðar stöðvanna yfir sjáv-
armáli og norðlægrar breiddar þeirra. Tölur
um frostlausa daga eru ekki að öllu leyti
samstæðar. Þær eru „í öllum meginatriðum
frá 1951 —1960, en þó ná einstaka stöðvar
frá 1952—1960” (Hlynur Sigtryggsson
1973). Ber að minnast þess við mat talnanna
og samanburð við önnur gildi í þessari rit-
gerð. Aðhvarfslíkingin reyndist verða
Ff = 220,05—17,42 (Xi—60)—0,18 X2
R = 0,81 P<0,001
F = fjöldi frostlausra daga
Xi = norðlæg breidd stöðvar, 0
X2 = hæð stöðvar yfir sjó, m
Hér kemur það fram, að vænta má 17
daga fækkunar frostlausra daga á sumri við
hverja breiddargráðu (110 km), sem norðar
dregur, og að einnar gráðu færsla til norðurs
hefur sömu áhrif á fjöida frostlausra daga og
100 m hækkun lands yfir sjó.
Fjöldi frostlausra daga er um 150—160
við suðurströndina (svæði I), en um og innan
við 100 í útsveitum norðanlands og austan
(svæði IV). Samkvæmt reglunni ættu frost-
lausir dagar á Kili að vera um 20 á sumri
og í Möðrudai mætti vænta 45 frostlausra
daga. Samhengi þáttanna er náið, og má
skýra um 66% breytileika á fjölda frost-
lausra daga með breytistærðunum tveimur,
norðlægri breidd og hæð yfir sjó. Mæld giidi
fjölda frostlausra daga eru notuð til þess að
draga grófar jafningjalínur þeirra um landið
á mynd 5.
Nú verður að hafa í huga þann mun á
hitafari, sem landslag veldur, t. d. að hætta á
myndun kuldapolla" er ærið misjöfn eftir
legu staðarins. Þetta hefur sín áhrif á fjölda
frostlausra daga, sem reikna þarf með við
notkun áður fundinnar reglu.
ÁLYICTANIR
Áður en lengra verður haldið, skal á það
minnst, að niðurstöður þær, sem hér hafa
verið kynntar, eiga aðeins við meðalástand
margra ára, en duga ekki til mats á einstökum
árum.
Nú má spyrja, hvort gefi haldbetri upp-
lýsingar um vaxtarskilyrði gróðurs, byrjun
gróanda, eins og hún er skilgreind hér, eða
síðasti frostdagur. Um þetta atriði eru inn-
lendar athuganir ófullkomnar enn þá, enda
þótt bændur og aðrir jarðyrkjumenn búi í