Íslenskar landbúnaðarrannsóknir - 01.09.1974, Side 40
38 ÍSLENSKAR LANDBÚNAÐARRANNSÓKNIR
TAFLA 1. Yfirlit yfir nytjajurtir af krossblómaætt, sem ræktaðar eru á Islandi. TABLE 1. Scheme for crops of the genus Cruciferae, which is cultivated in lceland.
Nafn á íslenzku Nafn á latínu
Höfuðkál (hvítkál, rauðkál, toppkál). Brassica oleracea, ssp. capitata.
Blómkál. Brassica oleracea, ssp. botrytis.
Mergkál og þyrilkál (grænkál). Brassica oleracea, ssp. acephala.
Brúskál (þúsundhöfðakál). Brassica oleracea, ssp. fruticosa.
Næpa. Brassica campestris, ssp. rapifera.
Vorrepja. Brassica napus, ssp. oleifera, f. annua.
Fóðurrepja, vetrarrepja, Asparagus-kál og Hungry-gap. Brassica napus, ssp. oleifera, f. biennis.
Gulrófa. Brassica napus, ssp. rapifera.
Mustarður (gult sinnep). Sinapis alba.
Ætihreðka (sumarhreðka). Raphanus sativum, ssp. radicula.
Fóðurhreðka. Raphanus sativum, ssp. oleiferus.
1966, Matthías Eggertsson 1966, Agnar
Guðnason 1967, Árni Jónsson og Matthí-
as Eggertsson 1967, Ingi Garðar Sigurðs-
son 1969, Kristinn Jónsson 1969, Kristinn
Jónsson 1970, Jónas Jónsson 1970, Krist-
inn Jónsson 1971, Ingi Garðar Sigurðsson
1973, Magnús Óskarsson 1973 og Matthí-
as Eggertsson 1973. Víðar kunna að leyn-
ast greinar um tilraunir þessar.
Einnig er í grein þessari yfirlit yfir til-
raunir með sáðmagn fóðurkálsfræs, sem gerð-
ar voru á Akureyri, Hólum, Hvanneyri og
Reykhólum 1957—1964. Þeir, sem áður
hafa skrifað umþessarsáðmagnstilraunir,eru:
Árni JÓNSSON 1961, Magnús ÓSKARSSON
1963, Árni Jónsson og Hólmgeir Björns-
son 1964 og Árni Jónsson og Matthías
Eggertsson 1967.
Tilraunir með fóðurkálsstofna.
Tilraunir þær með stofna, sem hér verður
fjallað um, voru gerðar á tilraunastöðvum
eða á vegum tilraunastöðva í jarðrækt, en
þær eru á Akureyri, Hólum í Hjaltadal,
Hvanneyri í Borgarfirði, Reykhólum í Reyk-
hólasveit, Sámsstöðum í Fljótshlíð og Skriðu-
klaustri í Eljótsdal. Auk þeirra tilrauna, sem
hér er getið, voru gerðar tilraunir með stofna
af fóðurkáli á Korpu við Reykjavík. Á töflu
2 og 3 er yfirlit yfir stofnatilraunirnar. Á
fyrri töflunni er ritað heiti landshluta í stað
þess að rita nafn tilraunastöðvar. Þetta er
gert vegna þess, að sumar tilraunirnar voru
dreifðar og gerðar utan tilraunastöðvanna.
Á töflunum sést, að gerðar hafa verið til-
raunir með margar tegundir og stofna fóður-
káls. Af repju voru gerðar tilraunir með fóð-
urrepju, Hungry gap, Asparagus kale og ein-
og tvíæra olíurepju, sem nefnd hefur verið
vorrepja og vetrarrepja. Aðrar tegundir, sem
getið er um á töflunni, eru mergkál og brús-
kál, sem hvort tveggja eru undirtegundir af
Brassica oíeracea, fóður hreðkur og mustarð-
ur eða öðru nafni gult sinnep.
Á töflunum er dálkur fyrir hlutfallslega
uppskeru, þar sem meðaluppskera úr hverri
tilraun er sett sem 100. Þessi tala sýnir betur
en uppskerutölurnar, hver staða stofnanna er
gagnvart öðrum stofnum, sem reyndir hafa