Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 2

Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 2
HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórs- dóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson Hilmar Bragi Bárðarson Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tólf hagkvæmar leiguíbúðir byggðar í Grindavík Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur úthlutað ríflega 3,6 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á 600 hag- kvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið, svokallaðra almennra íbúða. Leiguíbúðirnar verða í fimmtán sveitarfélögum og þar af verða tólf á Suðurnesjum, nánar tiltekið í Grindavík. Fjármunirnir eru hugs- aðir til að styðja við framboð ódýrra leiguíbúða fyrir almenning og verða nýttir til byggingar á 438 íbúðum og kaupa á 162 íbúðum. Stofnframlögin renna til bygg- ingaraðila í almenna íbúðakerfinu og er ætlunin að slá á þann mikla húsnæðisvanda sem lægri- og millitekjuhópar hafa mátt stríða við undanfarin ár. Fólk sem leigir íbúð í kerfinu þarf ekki að verja jafn stórum hluta af ráðstöfunar- tekjum heimilisins til húsnæðis og það myndi í mörgum tilfellum gera á frjálsa leigumarkaðnum og býr við meira öryggi því ekki er hægt að segja upp leigunni nema að ýmsum skilyrðum uppfylltum. Framlög til íbúða í fimmtán ólíkum sveitarfélögum í þessari úthlutun Alls fengu fimmtán sveitarfélög úthlutað stofnframlögum en flestar af íbúðunum 600 eru á höf- uðborgarsvæðinu, eða 472. Auk íbúðanna tólf á Suðurnesjum er um að ræða átta íbúðir á Austur- landi, fjórtán á Norðurlandi eystra, þrettán á Norðurlandi vestra, tíu á Suðurlandi, fjórar á Vestfjörðum og 67 á Vesturlandi. Sem stuðning við lífskjara- samningana ákvað ríkisstjórnin að auka framlögin til almenna íbúðakerfisins um 2,1 milljarð ár- lega á árunum 2020 til 2022 til þess að flýta fyrir uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og stuðla að auknu húsnæðisöryggi leigjenda. Heildarfjárfesting tæplega 20 milljarðar króna Ljóst er að stofnvirði þeirra verk- efna sem samþykkt voru í þessari úthlutun fela í sér fjárfestingu á húsnæðismarkaði upp á tæplega tuttugu milljarða króna. Þar af fara tæpir fjórtán milljarðar í uppbygg- ingu á hagkvæmu húsnæði og sex milljarðar í kaup. Alls bárust HMS 35 umsóknir um samtals 5,6 milljarða króna og af þeim voru 31 umsókn sam- þykktar, ýmist að fullu eða að hluta til. Sveitarfélög nutu forgangs við úthlutunina og hlutu alls um 1,2 milljarða króna. Verktaki sem sér um að slá og hirða opin svæði í Reykjanesbæ hefur fengið mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum í Reykjanesbæ og bæjarbúar ekki verið sáttir við vinnubrögð verktakans. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, tekur undir gagnrýni bæjarbúa sem hann segir réttilega gagnrýna slælega frammistöðu verktakans sem sjái um að slá og hirða opin svæði í sveitarfélaginu. „Starfsmenn Umhverfismið- stöðvar hafa margoft gert at- hugasemdir en viðbrögð verið lítil. Málið var rætt utan dag- skrár í bæjarráði Reykjanesbæjar í morgun og verður formlega á dagskrá í næstu viku. Í millitíð- inni verða gerðar fleiri tilraunir til að fá verktakann til að bæta sig,“ segir Kjartan bæjarstjóri á Facebook-síðunni Reykjanesbær - gerum góðan bæ betri. Slæleg frammistaða sláttuverktaka komin á borð bæjarráðs Reykjanesbæjar 2 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.