Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 57

Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 57
Kristín Bára Haraldsdóttir er mikil ævintýrakona. Frá tvítugsaldri hefur hún að eigin sögn verið með annan fótinn í útlöndum en í dag er hún 38 ára gömul. Kristín Bára er búsett í Sihanouk- ville í Kambódíu. Þar er lítið þorp sem heitir Otres Beach eða Otres Village. Þorpið stendur við fal- lega, hvíta strönd við Tælandsflóa. Kambódía er land í Suðaustur-Asíu með landamæri að Tælandi í vestri, Laos í norðri og Víetnam í austri. Í suðri á landið strandlengju að Tælandsflóa. Kristín Bára og kærasti hennar vinna nú að verkefni sem felst í að útbúa vítamín- og próteinstykki fyrir börn á svæðinu. Unnið er út frá því að stofna óhagnaðar- drifið félag sem síðan gefur fram- leiðsluna til fátækra barna, í skóla og á munaðarleysingjahæli. Víkurfréttir ræddu við Kristínu Báru í síðustu viku um ævin- týraþrá hennar á fjarlægum slóðum og hvað hún er að fást við. Það var samt ekki hlaupið að því að ná góðu sambandi, því net- samband þar sem hún býr er ekki í miklum gæðum og þá var raf- magnsleysi á svæðinu, sem minnir okkur á þau gæði sem við búum við hér á Íslandi. Kristín Bára gat því ekki sent okkur myndir í hárri upplausn til að birta með viðtalinu, því lélegt net neitaði að hleypa stórum myndum í gegn. – Hvað kemur til að þú ert í Kambódíu? „Ég og kærasti minn bjuggum í New York en fyrir fimm árum ákváðum við að fara að ferðast og leita okkur að stað þar sem við gætum haft sumarhús. Við fórum í þriggja mánaða ferðalag og fórum til Balí, Tælands, Vietnam, Laos og enduðum í Kambódíu. Hér erum við í litlum og æðis- legum strandbæ og hér eru bæði innfæddir í bland við vesturlandabúa. Þetta er algjör paradís með fjögurra kílómetra langri, hvítri strönd og allir að vinna saman. Þetta er rosalega fínt og alveg eins og póstkort. Svo eru fimm eyjur hérna rétt fyrir utan þar sem þú getur skroppið yfir á bát og eytt nótt á eyðieyju. Þetta var bara draumur að koma hingað.“ – Hvernig vaknaði draumurinn hjá þér að fara og ferðast um heiminn? „Kærasti minn, Adrian Cowen, var búinn að búa í New York í 23 ár og ég eiginlega dró hann með mér í þetta árið 2015. Hann hafði verið að starfa í tískuiðnaðinum og fyrir- tækið sem hann var með var að leysast. Hann var laus allra mála og því ákváðum við að gera þetta.“ – En Kambódía er kannski ekki fyrsti áfangastaðurinn sem manni dettur í hug? „Nei, við vorum ekkert rosa- lega spennt fyrir Kambódíu. Við héldum að það væru bara kóngulær í matinn og allt svoleiðis. Svo var þetta bara allt annað en við héldum.“ – Er þetta eitthvað svipað og Tæland? „Nei, reyndar ekki. Þetta er miklu ódýrara, miklu auðveldara fyrir vesturlandabúa að fá langar vega- bréfsáritanir. Að fá áritun í sex mánuði eða jafnvel ár er mjög Lærir kínversku af YouTube við hvíta strönd í Kristín Bára Haraldsdóttir upplifir ævintýri í litlu þorpi í Kambódíu: Kambódíu Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.