Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 32
Hermann Hreiðarsson
tekinn við liði Þróttar
Knattspyrnudeild Þróttar hefur gert samning við Hermann Hreiðarsson
um að taka við þjálfun meistaraflokk Þróttar. Hermann á langan feril að
baki sem leikmaður og spilaði á sínum tíma tæplega 500 leiki fyrir lið á
Englandi, á að baki 89 leiki fyrir A landslið Íslands og var hann fyrirliði í
sextán þeirra. Síðustu ár hefur hann komið að þjálfun, fyrst hjá ÍBV og nú
síðast aðstoðarþjálfari Southend United.
Þá verður Andy Pew áfram spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks, Andy
stýrði liðinu í tveimur leikjum í fjarveru Brynjars Þórs Gestssonar sem lét af
störfum þjálfara Þróttar af persónulegum ástæðum.
„Við erum mjög ánægð með þessa ráðningu. Það fer gott orð af Her-
manni sem er góður þjálfari. Stemmning, reynsla og gæði eru meðal þess
sem hann er þekktur fyrir, það mun hjálpa okkur í því verkefni að festa okkur
í sessi í 2. deildinni og byggja upp lið til framtíðar,“ segir Marteinn Ægisson,
framkvæmdastjóri Þróttar.
„Þetta verður krefjandi verkefni en jafnframt spennandi og skemmtilegt.
Ég er þakklátur fyrir tækifærið sem Þróttur Vogum er að veita mér. Ég er
að taka við góðu búi frá Brynjari Gestssyni og núna er það mitt að halda
áfram á sömu braut, byggja ofan á það sem hefur verið gert í vetur og
síðustu leikjum. Leikmannahópurinn er gríðarlega spennandi og mikil gæði
í hópnum. Eftir að hafa tekið fundi með Marteini og öðrum sem starfa fyrir
félagið, þessi brennandi ástríða sem fólkið hefur fyrir félaginu þá varð ég að
fá að vera þátttakandi. Nú er bara að vona að allir bæjarbúar snúi bökum
saman og geri allt til að mynda stemmningu til að hjálpa liðinu í sumar,“
segir Hermann Hreiðarsson, nýr þjálfari Þróttar Vogum.
Hermann Hreiðarsson stýrði liði
Þróttar í fyrsta sinn á afmælis-
deginum sínum þegar Þróttur fór
norður á Húsavík og mætti þar
botnliði Völsungs. Afmælisdag-
urinn byrjaði ekki vel því leikurinn
var varla byrjaður þegar Þrótt-
arar lentu undir, aðeins nokkrar
sekúndur liðnar. Þróttarar gáfust
ekki upp og undir lok fyrri hálf-
leiks brustu loks varnir Völsungs
þegar Brynjar Jónasson skoraði og
jafnaði leikinn (44’). Í síðari hálf-
leik kom Alexander Helgason bolt-
anum í netið (64’) og tryggði Þrótti
sigur og þrjú stig sem kom þeim í
sjötta sæti deildarinnar.
2. deild karla:
Þróttarar sigruðu
botnliðið þrátt
fyrir brösuga
byrjun
Brynjar Jónasson skoraði
jöfnunarmark Þróttar á Húsavík.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
32 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár