Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 49

Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 49
– Uppáhaldsmálsháttur eða til- vitnun: Margt gott til í þessum efnum, sá þessa línu í bók fyrir skemmstu: „Hver maður skapar sína eigin merkingu, form og takmark.“ (Howard Roark) – Hver er elsta minningin sem þú átt? Ætli það séu ekki minningarbútar af okkur mömmu og pabba á Hjallavegi og líka á Vatnsnesvegi. Svolítið ljóslifandi minningin þegar ég læsti mig sem smágutti inni á baði og missti lykilinn ofan í niðurfallið á baðinu. Til allrar hamingju var það einn af topp tíu markvörðum Íslandssögunnar, Steini Bjarna, með enn eina topp- frammistöðuna og bjargaði mér af baðherberginu. – Orð eða frasi sem þú notar of mikið: Ljómandi. – Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu? Líklega beint inn í Örlygsstaða- bardaga eða eitthvað um þann tíma. Mikið held ég að það hafi verið gaman að sjá Ísland í start- holunum. – Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Út í heim. – Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Ætla að velja Eric Clapton, ég myndi hefja daginn á að plokka strengjabrettið svo úr því rjúki og veiða svo í Laxá í Ásum fram á kvöld. Það ætti að þjóna mínum eigin hagsmunum ágætlega. Til þess að aðrir hefðu gagn af þessum óvæntu líkamsskiptum þá kæmi líka til greina að vera nú- verandi Bandaríkjaforseti og hafa það fyrsta verk eftir morgun- bollann að segja af mér. – Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöld- verð? Ég myndi bjóða Kára Stefánssyni til að tryggja beittar umræður og góðan húmor. Andrew Strong, söngvari The Commitments, fengi boð því þetta er jú kvöld- verður en rúsínan í pylsuend- anum væri söngur hans við eftir- réttinn. Síðast en ekki síst myndi ég vilja fá Gunnar Dal í matar- boðið því hann myndi sjá til þess að Kári, Andrew og ég færum betri menn út í nóttina. – Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til? Sem eina stóra áskorun sem við ætlum öll að klára saman með stæl. Áfram veginn. – Er bjartsýni fyrir sumrinu? Já, ég er almennt bjartsýnn og ég þykist viss um að veðurguðirnir gefi okkur þónokkra bongódaga á næstu vikum og mánuðum. Þá hef ég ofurtrú á okkur Íslend- ingum, COVID-19 og fylgifiskar faraldursins munu ekki knésetja okkur frekar en nokkuð annað. – Hvað á að gera í sumar? Ferðast um landið mitt með fjöl- skyldunni og ná inn nokkrum veiðidögum og já svo var víst ein- hver hellingur sem ég ætlaði að gera í garðinum heima hjá mér og það er bara verk í vinnslu eins og þeir segja. – Hvert ferðu í sumarfrí? Síðustu ár höfum við fjölskyldan oftar en ekki farið til Húsavíkur og spókað okkur í kringum Tjör- neshrepp og Öxarfjörðinn. Ég geri ráð fyrir því að við látum okkur ekki vanta þar þetta sumarið. – Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim? Ég myndi byrja með þau í for- drykk á Brúin bar á Courtyard by Marriott hótelinu, eftir það færum við Blue Diamond-túrinn og tækjum eins marga áfanga- stöði á honum og hægt er að koma við á einum degi. Eftir góðan Blue Diamond-túr væri förinni heitið beint niður í bæ í kvöldverð. – Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu … ... til Margaret River á suðvestur- horni Ástralíu. Almættið var í sínu fínasta pússi þegar það púslaði Margaret River saman. „Ég legg alltaf vel við hlustir þegar Of Monsters and Men eru að senda eitt- hvað nýtt frá sér. Þá er ég alltaf jafn undrandi á því hvað við eigum margt efnilegt tónlistarfólk hér á Íslandi, það er meiriháttar!“ N etspj@ ll Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.