Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 23
Sex marka stórsigur Grindvíkinga
Grindavík bauð upp á sjóðheita markasúpu á
Grindavíkurvelli þegar heimakonur tóku á móti
Álftanesi í fjórðu umferð í 2. deild kvenna á Ís-
landsmótinu í knattspyrnu. Lokastaðan varð 6:0
fyrir Grindavík.
Grindavík byrjaði leikinn af krafti og gestirnir
sáu aldrei til sólar. Staðan í hálfleik var 3:0 fyrir
Grindavík. Una Rós Unnarsdóttir opnaði mark-
areikninginn hjá Grindavík á tólftu mínútu. Eftir
það tók Birgitta Hallgrímsdóttir við og raðaði inn
mörkum. Hún hafði skorað fimm mörk áður en
flautað var til leiksloka. Tvö markanna gerði hún
í fyrri hálfleik og bætti við þremur í þeim síðari.
VF-myndir: Hilmar Bragi
– Þetta var enginn smá leikur hjá þér
gegn Álftanesi, leyfðir Unu að skora
eitt og sást svo bara um restina.
Já, þetta var gaman en Una var geggjuð
í þessum leik og átti þátt í flestum mörk-
unum. Við vinnum mjög vel saman.
– Þið fóruð illa af stað í byrjun móts
en hafið verið að koma til baka.
Já, þetta byrjaði ekki alveg nógu vel hjá
okkur en Ray er búinn að vera duglegur
að láta okkur spila saman á æfingum og
við erum búnar að ná miklu betur saman
en í byrjun.
– Þið ætlið ykkur upp, er það ekki?
Jú, að sjálfsögðu. Það er ekkert annað í
boði. Við höfum góðan tíma núna til að
undirbúa næsta leik því þetta er níu liða
deild og eitt lið situr alltaf hjá í hverri um-
ferð, nú er komið að okkur. Við munum
koma sterkar til baka þegar við mætum
Sindra í næsta leik og ætlum að vinna
þær.
– Og hvað ætlarðu að setja mörg
mörk þá?
Það veit ég ekki [hlær]. Ekkert ákveðið,
bara vinna leikinn.
Birgitta með fimm
Víkurfréttir slógu á þráðinn til markamaskínunnar og heyrðu í henni hljóðið.
2. deild kvenna:
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 23
Una Rós Unnarsdóttir var
„geggjuð“ í leiknum, skoraði
eitt og átti þátt í flestum
hinna marka Grindavíkur.