Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Qupperneq 32

Víkurfréttir - 15.07.2020, Qupperneq 32
Hermann Hreiðarsson tekinn við liði Þróttar Knattspyrnudeild Þróttar hefur gert samning við Hermann Hreiðarsson um að taka við þjálfun meistaraflokk Þróttar. Hermann á langan feril að baki sem leikmaður og spilaði á sínum tíma tæplega 500 leiki fyrir lið á Englandi, á að baki 89 leiki fyrir A landslið Íslands og var hann fyrirliði í sextán þeirra. Síðustu ár hefur hann komið að þjálfun, fyrst hjá ÍBV og nú síðast aðstoðarþjálfari Southend United. Þá verður Andy Pew áfram spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks, Andy stýrði liðinu í tveimur leikjum í fjarveru Brynjars Þórs Gestssonar sem lét af störfum þjálfara Þróttar af persónulegum ástæðum. „Við erum mjög ánægð með þessa ráðningu. Það fer gott orð af Her- manni sem er góður þjálfari. Stemmning, reynsla og gæði eru meðal þess sem hann er þekktur fyrir, það mun hjálpa okkur í því verkefni að festa okkur í sessi í 2. deildinni og byggja upp lið til framtíðar,“ segir Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar. „Þetta verður krefjandi verkefni en jafnframt spennandi og skemmtilegt. Ég er þakklátur fyrir tækifærið sem Þróttur Vogum er að veita mér. Ég er að taka við góðu búi frá Brynjari Gestssyni og núna er það mitt að halda áfram á sömu braut, byggja ofan á það sem hefur verið gert í vetur og síðustu leikjum. Leikmannahópurinn er gríðarlega spennandi og mikil gæði í hópnum. Eftir að hafa tekið fundi með Marteini og öðrum sem starfa fyrir félagið, þessi brennandi ástríða sem fólkið hefur fyrir félaginu þá varð ég að fá að vera þátttakandi. Nú er bara að vona að allir bæjarbúar snúi bökum saman og geri allt til að mynda stemmningu til að hjálpa liðinu í sumar,“ segir Hermann Hreiðarsson, nýr þjálfari Þróttar Vogum. Hermann Hreiðarsson stýrði liði Þróttar í fyrsta sinn á afmælis- deginum sínum þegar Þróttur fór norður á Húsavík og mætti þar botnliði Völsungs. Afmælisdag- urinn byrjaði ekki vel því leikurinn var varla byrjaður þegar Þrótt- arar lentu undir, aðeins nokkrar sekúndur liðnar. Þróttarar gáfust ekki upp og undir lok fyrri hálf- leiks brustu loks varnir Völsungs þegar Brynjar Jónasson skoraði og jafnaði leikinn (44’). Í síðari hálf- leik kom Alexander Helgason bolt- anum í netið (64’) og tryggði Þrótti sigur og þrjú stig sem kom þeim í sjötta sæti deildarinnar. 2. deild karla: Þróttarar sigruðu botnliðið þrátt fyrir brösuga byrjun Brynjar Jónasson skoraði jöfnunarmark Þróttar á Húsavík. VF-mynd: Hilmar Bragi Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg. 32 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.