Víkurfréttir - 15.07.2020, Page 57
Kristín Bára Haraldsdóttir er mikil ævintýrakona.
Frá tvítugsaldri hefur hún að eigin sögn verið
með annan fótinn í útlöndum en í dag er hún
38 ára gömul. Kristín Bára er búsett í Sihanouk-
ville í Kambódíu. Þar er lítið þorp sem heitir Otres
Beach eða Otres Village. Þorpið stendur við fal-
lega, hvíta strönd við Tælandsflóa. Kambódía er
land í Suðaustur-Asíu með landamæri að Tælandi
í vestri, Laos í norðri og Víetnam í austri. Í suðri á
landið strandlengju að Tælandsflóa.
Kristín Bára og kærasti hennar
vinna nú að verkefni sem felst í að
útbúa vítamín- og próteinstykki
fyrir börn á svæðinu. Unnið er
út frá því að stofna óhagnaðar-
drifið félag sem síðan gefur fram-
leiðsluna til fátækra barna, í skóla
og á munaðarleysingjahæli.
Víkurfréttir ræddu við Kristínu
Báru í síðustu viku um ævin-
týraþrá hennar á fjarlægum
slóðum og hvað hún er að fást
við. Það var samt ekki hlaupið að
því að ná góðu sambandi, því net-
samband þar sem hún býr er ekki
í miklum gæðum og þá var raf-
magnsleysi á svæðinu, sem minnir
okkur á þau gæði sem við búum
við hér á Íslandi. Kristín Bára gat
því ekki sent okkur myndir í hárri
upplausn til að birta með viðtalinu,
því lélegt net neitaði að hleypa
stórum myndum í gegn.
– Hvað kemur til að þú ert
í Kambódíu?
„Ég og kærasti minn bjuggum í
New York en fyrir fimm árum
ákváðum við að fara að ferðast og
leita okkur að stað þar sem við
gætum haft sumarhús. Við fórum
í þriggja mánaða ferðalag og
fórum til Balí, Tælands, Vietnam,
Laos og enduðum í Kambódíu.
Hér erum við í litlum og æðis-
legum strandbæ og hér eru
bæði innfæddir í bland við
vesturlandabúa. Þetta er algjör
paradís með fjögurra kílómetra
langri, hvítri strönd og allir að
vinna saman. Þetta er rosalega fínt
og alveg eins og póstkort. Svo eru
fimm eyjur hérna rétt fyrir utan
þar sem þú getur skroppið yfir á
bát og eytt nótt á eyðieyju. Þetta
var bara draumur að koma hingað.“
– Hvernig vaknaði draumurinn
hjá þér að fara og ferðast um
heiminn?
„Kærasti minn, Adrian Cowen, var
búinn að búa í New York í 23 ár
og ég eiginlega dró hann með mér
í þetta árið 2015. Hann hafði verið
að starfa í tískuiðnaðinum og fyrir-
tækið sem hann var með var að
leysast. Hann var laus allra mála
og því ákváðum við að gera þetta.“
– En Kambódía er kannski ekki
fyrsti áfangastaðurinn sem
manni dettur í hug?
„Nei, við vorum ekkert rosa-
lega spennt fyrir Kambódíu.
Við héldum að það væru bara
kóngulær í matinn og allt svoleiðis.
Svo var þetta bara allt annað en
við héldum.“
– Er þetta eitthvað svipað og
Tæland?
„Nei, reyndar ekki. Þetta er miklu
ódýrara, miklu auðveldara fyrir
vesturlandabúa að fá langar vega-
bréfsáritanir. Að fá áritun í sex
mánuði eða jafnvel ár er mjög
Lærir kínversku
af YouTube við
hvíta strönd í
Kristín Bára Haraldsdóttir
upplifir ævintýri í litlu þorpi
í Kambódíu:
Kambódíu
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 57