Víkurfréttir - 15.07.2020, Blaðsíða 10
Bátasafn tekur breytingum
Orðrómur hefur verið um það í
bænum að bátasafn Gríms Karls-
sonar væri á förum úr báta-
salnum þegar komið er inn í Duus
Safnahús. Helga staðfestir þetta
í samtali við Víkurfréttir en bát-
unum verður gert hærra undir
höfði á sýningum á öðrum stað í
Bryggjuhúsinu, sem er hluti Duus
Safnahúsa.
„Við Eiríkur [Jörundsson], for-
stöðumaður Byggðasafns Reykja-
nesbæjar, erum sammála um það
að bátasafnið er ekki að njóta
sín nógu vel eins og það er. Báta-
safninu hefur ekki verið miðlað.
Þegar þú kemur þar inn þá er
safnið eins og kirkjugarður. Það
passar alls ekki að ganga í gegnum
bátasafnið ef þú ert að fara inn á
samtímalistasafn. Ég vil þessum
bátum vel og að þeir séu sýndir í
einhverju samhengi og með upp-
lýsingum og með markvissum
hætti. Fólk þarf að upplifa eitthvað
meira en bara magn. Fólk þarf líka
að upplifa sögu bátanna,“ segir
Helga um bátasafnið.
Listasafnið gersemi
í bæjarfélaginu
Helga hefur ákveðnar skoðanir á
listasafninu. „Mér finnst að það
þurfi að koma fram og ég er ekki
viss um að fólk geri sér grein fyrir
því að þetta er eitt af fáum sam-
tímalistasöfnum sem er viður-
kennt safn. Hingað kemur fólk úr
Reykjavík til að fara á listasafnið,
það gerir sér ferð fyrir þetta safn.
Listasafnið er gersemi í bæjar-
félaginu sem ég myndi óska að
fleiri myndu nýta sér betur og
vissu betur af. Safnið hefur verið
falið á bak við bátasafnið. Duus-
húsin eru svolítið eins og þeim
hafi verið kastað þarna niður og
hending hvar hlutirnir eru. Við
viljum að þetta sé í lagi og viljum
skýra hvar hvert einasta safn og
stofnun er þar innanhúss, þannig
að gestir okkar viti hvar þeir finna
byggðasafnið og hvar þeir finni
listasafnið. Við viljum setja upp-
lýsingamiðstöðina og færa aðalinn-
ganginn í gryfjuna sem er í miðju
hússins. Þá er listasafn til hægri og
byggðasafn til vinstri. Með þessu
verðum við sjálfstæðari með hvað
við viljum setja upp og skemmti-
legra fyrir fólk að koma þarna inn.
Það er erfitt fyrir listamenn að tjá
sig í þessu rými eins og það er í
dag, þegar allt er ofan í öllu.“
Örari sýningardagskrá
– Hvert stefnir þú með Lista-
safn Reykjanesbæjar?
„Við hjá listasafninu verðum með
mun örari sýningardagskrá heldur
en áður. Hér voru að jafnaði um
fimm nýjar sýningar á ári en ég
stefni að því að hér opni nýjar
sýningar á sex vikna fresti. Þá
verður líka sú breyting að hingað
til hefur verið gefinn út bæklingur
með hverri sýningu. Það hafa fáir
verið að kaupa þennan bækling
þannig að í framtíðinni verður
gefin út árbók Listasafns Reykja-
nesbæjar þar sem allar sýningar
ársins verða teknar til umfjöllunar.
Helga Þórsdóttir
var ráðin í starf safnstjóra Listasafns Reykjanesbæjar í ársbyrjun
og hóf störf í byrjun febrúar. Helga er með brottfararpróf frá Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands ásamt því að hafa lokið M.A. í myndlist
frá De l’ecole Nationale d’Arts de Cergy-Pontoise Mention og M.A.
í menningarfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún einnig stundað
nám í innanhússarkitektúr í Frakklandi og leiðsögu í Leiðsögumanna-
skólanum í Kópavogi. Helga starfaði í Byggðasafni Vestfjarða frá ár-
inu 2016, m.a. sem forstöðukona, áður en hún kom til Reykjanesbæjar.
Þá hefur hún einnig komið víða við í sýningarstjórn og textaskrifum um
myndlist.
Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með Helgu í Gömlubúð þar sem
safnstjórinn hefur skrifstofu og rætt var um sýn hennar á safnið sem
hún er að taka við.
Aðrar áherslur
með nýjum safnstjóra
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
10 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.