Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 13
TILLAGA AÐ BREYTINGU Á AÐALSKIPULAGI SANDGERÐISBÆJAR 2008-2024
OG TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI FYRIR NÝJAN LEIKSKÓLA VIÐ BYGGÐAVEG
Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum 24. júní 2020 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sand-
gerðisbæjar 2008-2024 samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr.
105/2006 um umhverfismat áætlana. Samhliða er auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir leikskóla norðan við Byggðaveg.
skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auk óverulegrar breytingar á deiliskipulagsmörkum Lækjamóta.
TILLAGA AÐ BREYTINGU Á AÐALSKIPULAGI - SVÆÐI FYRIR ÞJÓNUSTUSTOFNANIR VIÐ BYGGÐAVEG
Breytingin felst í að 1 ha. svæði norðan við Byggðaveg sem skilgreint er sem opið svæði verður skilgreint sem svæði undir þjónustustofn
anir. Jafnframt er mörkuð ný stefna um staðsetningu leikskóla í Sandgerði þar sem fallið er frá fyrirhugaðri staðsetningu leikskóla við Króks
kotstún/Landakotstún og þess í stað verði nýr leikskóli staðsettur norðan við Byggðaveg (L3).
TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI - LEIKSKÓLI VIÐ BYGGÐAVEG OG BREYTING Á DEILISKIPULAGSMÖRKUM LÆKJAMÓTA
Deiliskipulagssvæðið er um 1 ha. að stærð og staðsett norðan við Byggðaveg á svæði fyrir þjónustustofnanir, sbr.breytingu á aðalskipu
lagi Sandgerðisbæjar 20082024 sem auglýst er samhliða tillögu þessari. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum leikskóla allt að 1.100 m2 að stærð
á 8.200 m2 lóð.
Jafnframt eru gerðar óverulegar breytingar á deiliskipulagi íbúðasvæðis við Lækjamót sem felst í að mörk skipulagssvæðis eru færð suður
fyrir Byggðaveg á kafla við gatnamót Lækjamóta.
Tillögurnar, ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu verða til sýnis á bæjarskrifstofunni í Sandgerði, Vörðunni, Miðnestorgi 3, frá og með
miðvikudeginum 15. júlí n.k. til til mánudagsins 31. ágúst 2020 og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík. Tillögurnar er einnig til
sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins www.sudurnesjabaer.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við tillögurnar til til mánudagsins 31. ágúst 2020.
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa með tölvupósti á
jonben@sudurnesjabaer.is, eða á bæjarskrifstofuna í Garði, b.t. skipulagsfulltrúa, Sunnubraut 4, 250 Garður.
Virðingarfyllst,
Jón Ben. Einarsson, skipulagsfulltrúi
Fjölnota rými
Helga segir að fremra rýmið, sem
nú hýsir bátasafnið, yrði fjölnota
rými fyrir margskonar uppákomur.
Hún vill t.a.m. koma upp bóka-
klúbbi sem myndi hittast og lesa
saman íslensku listasöguna sem
nýlega var gefin út. Hún segist vilja
fá höfunda kaflanna, sem allir eru á
lífi, til að koma og fara yfir sitt efni.
Samtímalistasöfnin á lands-
byggðinni eru í Reykjanesbæ, í
Árborg og á Akureyri og eru alveg
á pari við bestu söfnin á höfuð-
borgarsvæðinu. „Það þarf sterk
bein í sveitarfélagi til að bjóða
upp á samtímalistasafn og standa
með því,“ segir Helga og bendir á
sama tíma á að listasafn sé ekki
félagsmiðstöð. Íbúar hugsa með
sér hvers vegna hún Gunna sem
býr í sveitarfélaginu fái ekki að
sýna í listasafninu. Það fær hún
hins vegar ekki fyrr en hún hefur
farið í nám í einhverju tengdu
listinni og sýnt ákveðið lengi að
listasafnið veitir henni athygli.
„Hins vegar viljum við allt gera
fyrir bæjarbúa til að koma þeim á
þann stað að þeir eigi möguleika á
sýningu í safninu og hjálpa þeim
að komast þangað og það er annað
mál. Þú byrjar ekki á því að sýna í
listasafni. Það er ákveðinn heiður
að komast þangað inn og góðir
listamenn eru ekki alltaf að sýna
í söfnum. Þeir fá bara nokkur svo-
leiðis tækifæri yfir ævina, oftast.
Það er til mikils að vinna fyrir
listamann að fá sýningu á listasafni
og er gífurlega stórt mál. Þetta er í
raun áratuga ferli listamannsins og
að vera í samhengi við heimslistina
til að fara inn á slíkt safn. Við erum
þannig safn og þessi örfáu söfn á
landinu.
Það eru sveitarfélög nálægt
okkur í stærð sem eru ekki að
standa svona vel að hlutunum
eins og Reykjanesbær og það er
í lagi að tala um það að við erum
meira en rokkbær,“ segir Helga og
hlær. „Menningin hérna er meira
en Kanamenning. Það á líka við um
byggðasafnið. Þetta er aldagamall
útgerðarstaður og héðan koma líka
skáld og rithöfundar.“
Aðrar áherslur
Spurð hvort breyting verði á stefnu
safnsins segist Helga vera frekar
Frá sýningunni Innskot sem opnaði í byrjun maí í Listasafni Reykjanesbæjar.
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 13