Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 17

Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 17
Hann sagði einnig að hann væri búinn að klippa mikið af því í gegnum árin og hefði fyrir nokkru síðan gróðursett annað í garðinum, sem nú nær rétt yfir meterinn. Gamla „gullið“ er hins vegar jafn hátt húsinu sem það stendur við, u.þ.b. átta, níu metrar. „Mér finnst einnig merkilegt hve tréð hefur dafnað, þar sem lítil mold var sett yfir melinn þegar garðurinn var frágenginn á sínum tíma. Það var ekki sett nema um fimm sentimetra moldarlag. En ég er líka með góðan áburð á blettinn – set reglulega kúaskít á hann”, sagði Sigurður Einarsson í forsíðufrétt Víkurfrétta árið 1987. Gullregnið komst aftur í frétt- irnar árið 1999. Þá var birt frétt um það 15. júlí og tréð að verða 40 ára gamalt. Aftur var rætt við Sigurð Einarsson, sem þá var nýorðinn 85 ára gamall, um tréð sem skartaði sínu fegursta og var í fullum blóma. Gullregn blómstrar aðeins ef sum- arið árið áður var gott. Sumarið 1998 hefur því verið gott, því tréð var blómum prýtt í Víkurfréttum í júlí 1999. Aftur var flutt frétt af fjalla-gull- regninu árið 2011 og þá á forsíðu Víkurfrétta. Að þessu sinni fékk tréð viðurkenningu sem tré ársins á Íslandi það árið en útnefningin var á vegum Skógræktarfélags Ís- lands. Þetta var í fyrsta skipti sem tré á Suðurnesjum fékk þá út- nefningu. Fjalla-gullregnið þótti fyrirtaks dæmi um það hvernig trjágróður getur vaxið og dafnað suður með sjó þrátt fyrir erfið skil- yrði. Nú fjöllum við aftur um gull- regnið eða lítið afkvæmi þess, að haldið er, sem sprettur upp úr mal- bikinu við Krambúðina við Hring- braut í nokkurra tuga metra fjar- lægð frá tré ársins 2011. Vonandi fær gullregnið við Krambúðina að vaxa og dafna áfram. Úti í horni á malbikuðu stæði við verslun Krambúðarinnar við Hringbraut í Keflavík hefur gullregn skotið rótum og blómstrar fallega þessa dagana. Telja verður líklegt að gullregnið við Krambúðina sé afkvæmi þess á Greniteignum og að það hafi sáð sér. Úr Víkurfréttum í júlí 1999 Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 17

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.