Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 22

Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 22
á timarit.isÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG Keflavík hefur farið mjög vel af stað í Lengjudeild kvenna þetta árið og það er engin launung að stelpurnar ætla sér upp um deild eftir þetta tíma- bil. Þær mættu í Grafarvoginn í fjórðu umferð og mættu Fjölnisstúlkum sem sátu í sjöunda sæti fyrir leikinn en Keflavíkurstelpur vermdu toppinn. Það var fyrirliði Keflavíkur, Na- tasha Moraa Anasi, sem reið á vaðið og skoraði fyrsta mark leiksins á 20. mínútu. Þá tók Dröfn Einarsdóttir sig til, reimaði á sig skotskóna og skoraði tvö mörk fyrir leikhlé (39’ og 42’). Hún bætti því þriðja við í síðari hálfleik og innsiglaði stórsigur Keflvíkinga sem hafa farið mjög vel af stað í Lengjudeildinni og eru með tíu stig eins og Tindastóll eftir fjórar um- ferðir með markatöluna 14:1. Þær Dröfn og Natasha eru markahæstar leikmanna Lengjudeildar kvenna, Dröfn hefur skorað fimm mörk en Natasha fjögur. Keflavík lék einnig í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Keflavíkurstelpur fóru þá norður fyrir heiðar, á Akureyri, og mættu Þór/KA. Skemmst er frá því að segja að þegar dómarinn blés til leiksloka hafði aðeins eitt mark verið skorað og það höfðu norð- anstúlkur skorað, því er Keflavík dottið úr leik í bikarnum. Lengjudeild kvenna: Keflavíkurstúlkur halda toppsætinu Fyrirliðinn Natasha Moraa Anasi hefur skorað fjögur mörk fyrir Keflavík í Lengjudeildinni í sumar. Hér er hún í leik gegn Augnabliki í þriðju umferð Íslandsmótsins. VF-mynd: Jóhann Páll Dröfn Einarsdóttir skoraði þrjú gegn Fjölni og er markahæst í Lengjudeildinni. Hér er hún á fullri ferð í bikarleik gegn Aftureldingu fyrr í sumar. VF-mynd: Hilmar Bragi Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg. 22 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.