Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 26

Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 26
Sýndi stóleik og var verðskuldað valinn maður leiksins Það var ekki úr vegi að heyra í Sindra Kristni Ólafssyni, manni leiksins, eftir sigurinn á Þór en síðustu leikir Keflavíkurliðsins hafa vægast sagt verið ótrúlegir. – Jæja Sindri, nú eru tveir síðustu leikir heldur betur búnir að vera svakalegir og rosalega ólíkir. Já, mjög ólíkir. Þeir eiga ekkert sameiginlegt. – Þú áttir flottan leik síðast og valinn maður leiksins. Ertu ekki sáttur við þína frammistöðu? Jú, þrususáttur. Gott auðvitað að sækja þessi þrjú stig miðað við út í hvað málin voru komnir. – Stórmunur á liðinu milli heima- leikja, hálfdaufir á móti Leikni en komið svo öskrandi í þennan leik. Hvað gerðist? Já, við lentum í ákveðnu stemmn- ingsleysi á móti Leikni þótt við værum yfir, þeir eru með sterkt lið og gengu bara á lagið. Við söknuðum kannski leiðtogans Fransa inn á miðjunni í þeim leik og áttum í rauninni ekkert meira skilið, þótt við hefðum átt að nýta færi sem við fengum. Þetta var kannski ágætis áminning um að við löbbum ekkert í gegnum þetta Íslandsmót, það sést á úr- slitum í deildinni – allir eru að vinna alla. Alla vega þessi topp átta lið. Það má líka hrósa okkur fyrir Grindavíkurleikinn þar sem við lentum tveimur mörkum undir, það væri auðvelt að brotna við mótlætið en við rifum okkur upp og sýndum hvers megn- ugir við erum, jöfnuðum og gáfumst aldrei upp. Mjög mikill karakter og hann endurspegl- aðist í Þórsleiknum þar sem við lendum tveimur mönnum undir en klárum leikinn og löndum þessum stigum. – Þetta eru tvö ólík lið sem mæta á völlinn í síðustu tveimur leikjum, varnarlega séð. Þurfti Eysteinn ekki að byrsta sig eftir Grinda- víkurleikinn? Það var enginn að missa sig yfir þessu í hálfleik, við tókum mjög fagmannlega á þessu. Við töl- uðum um það eftir leikinn að við hefðum áhyggjur af varnar- leiknum. Þetta væri ekki nógu gott, þó við höfum fengið á okkur fjögur mörk þá fengum við fjórtán skot á rammann og það er bara of mikið. Við vorum ekki að leika nógu góðan varnarleik, vorum að gera kjánaleg mistök og það sást besýni- lega í Þórsleiknum að við vorum búnir að fara vel yfir þetta. Þetta gekk töluvert betur, menn voru að fara í einvígin og vinna seinni boltann – og það munar helling um það. Það er málið. Sindriréttur maður á réttum stað ... Keflavík er frábær vettvangur fyrir mig að vera á núna og ég er stoltur að vera að taka þátt í þessu enn eitt árið ... Sindri flýgur eftir boltanum sem small í slánni. 26 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.