Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 45
Róbert Már Bjarkason, sex ára, sem er einhverfur og með al
varlega þroskahömlun hefur tekið miklum framförum eftir að
hann hóf nám í Arnarskóla síðastliðið haust. „Stuðningurinn
sem við höfum fengið frá skólanum og starfsfólki hans er ómet
anlegur og viljum við því gera allt sem í okkar valdi stendur til
þess að sýna þakklæti í verki,“ segir Sylvía móðir hans.
að eiga barn með miklar sérþarfir.
Þetta er endalaus barátta, alltaf.“
Sylvía og Valdi bróður hennar
ætla saman í Reykjavíkurmara-
þonið með Róbert Má, son Sylvíu.
Svo er alltaf að bætast í hópinn.
Þau ætla þrjá kílómetra en tvær
frænkur Sylvíu ætla að fara tíu
kílómetra fyrir Team Róbert.
„Mamma ætlar að vera með líka
og það er alltaf að bætast í hópinn
og nægur tími, því hlaupið er ekki
fyrr en 22. ágúst,“ segir Sylvía.
Eins og verkefnið hefur farið af
stað þá gerir Sylvía ráð fyrir að
hún eigi eftir að synja alveg heilan
helling í viðbót. „Það er nýtt lag á
50.000 króna fresti og ég þarf að
standa við það,“ segir hún og hlær.
Þegar viðtalið var tekið á mánudag
sagðist Sylvía vera komin með eitt
lag í skuld. Aðspurð hvort hún ætli
að fá Valda aftur með sér í söng, þá
sagðist hún vonast til þess að það
myndi verða. „Ég var alveg hitta
á hvað hann tók vel í þetta. Þetta
er bara svo gott málefni að það er
ekkert annað hægt,“ segir hún og
á von á því að geta fyllt heila plötu
af lögum áður en átakið er á enda.
„Ég get örugglega gefið út Mara-
þonlögin í lokin,“ segir hún og hlær
ennþá meira.
– Er þetta í fyrsta skipti sem þú
syngur opinberlega?
„Já, opinberlega, ef það er ekki
talið með að hafa sungið drukkin
á karaokebar á Spáni,“ segir Sylvía
og hlær meira og ítrekar að hún sé
ekki framfærin manneskja og hafi
leyft Valda bróður sínum að eiga
sviðið þegar að söngnum kemur og
frægðinni. „Ég átti von á þremur
söngmyndböndum í heildina, en
þau urðu þrjú á einum sólarhring.“
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
HÉR MÁ LEGGJA
VERKEFNINU LIÐ!
Um Arnarskóla
Arnarskóli var stofnaður
2017. Fyrsta skólaárið voru
fjórirnemendur, núna eru 20
nemendur og verða 29 í haust.
Skólinn er starfræktur allan
ársins hring og ekki lokaður
nema á rauðum dögum og um
helgar. Skóli, frístund og sum-
arfrístund fer öll fram á sama
stað með sama starfsfólkinu.
Eins er unnið að því að önnur
íhlutun (s.s. talþjálfun, iðju-
þjálfun og sjúkraþjálfun) fari
einnig fram innan veggja Arn-
arskóla þannig að ekki þurfi
að rjúfa skóladag nemenda.
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 45