Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 50

Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 50
tskálar voru eitt mesta höfuðból á Suðurnesjum ásamt Stóra-Hólmi í Leiru og Kirkjubóli á Miðnesi. Kirkja sú er nú stendur á Útskálum var reist á árunum 1861–1863, timburhús á hlöðnum grunni með sönglofti, forkirkju og turni og tekur um 200 manns í sæti. Forsmiður var Einar Jónsson frá Brúarhrauni. 1975 var forkirkjan stækkuð og komið þar fyrir snyrtiherbergjum, geymslu og skrúðhúsi. Að innan er kirkjan máluð og skreytt af Áka Gränz, málarameistara, hann skýrði jafnframt upp gamla skraut- málningu sem nær var horfin. Kirkjan er af yngri turngerð og er friðuð. Altaristaflan er eftir erlendan málara og sýnir boðun Maríu, pre- dikunarstóllinn var að öllum líkindum upprunalega í Dómkirkjunni í Reykjavík. Skírnarfonturinn er eftir Ríkharð Jónsson. Séra Sigurður B. Sívertssen var prestur að Útskálum í tæplega hálfa öld. Hann vann að mörgum framfaramálum, s.s. jarðabótum og hús- byggingum, m.a. lét hann byggja kirkjuna sem nú stendur, en þekkt- astur er hann fyrir Suðurnesjaannál sem hann skrifaði. Kirkja hefur líklega verið á Útskálum frá fyrstu tíð, hennar er fyrst getið í kirknaskrá Páls biskups frá um 1200. Þá var kirkja einnig á Kirkjubóli en þeirrar kirkju er síðast getið í heimildum frá 14. öld. Dýrlingar kirkjunnar í kaþólskri trú voru Pétur postuli og Þorlákur helgi. Einn hryggilegasti atburður sjóferðarsögu Íslands tengist kirkj- unni. Þann 8. mars 1685 fórust 136 á sjó, flestir af Suðurnesjum. Um nóttina rak 47 lík á land í Garðinum og var 42 þeirra búin sam- eiginleg gröf í Útskálakirkjugarði. Það er talið að aldrei hafi jafn margir verið jarðaðir á sama degi frá sömu kirkju á Íslandi. Myndin var tekin í síðustu viku þegar unnið var að viðhaldi á Út- skálakirkju en í sumar er verið að mála kirkjuna að utan. Hér er unnið í turni kirkjunnar. Að Útskálum 50 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.