Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Page 58

Víkurfréttir - 15.07.2020, Page 58
ódýrt. Það er auðvelt að fá atvinnuleyfi og það kostar tíu dollara fyrir árið.“ – Hvernig eruð þið að afla tekna til að lifa? „Það fer ekki mikið fyrir því núna. Við vorum með bakarí og seldum í verslanir og til hótela. Við vorum einnig að gera múslí og granóla og það gekk rosalega vel þangað til fyrir tveimur árum þegar Kínverjarnir komu á svæðið. Það voru gefin leyfi fyrir 110 spilavítum á svæðinu okkar, þannig að uppbyggingin er búin að vera rosaleg á síðustu tveimur árum. Hér hafa risið háhýsi og hér eru lúxusbílar um allt.“ – Þannig að Kínverjarnir flæddu yfir allt? „Já en jafn fljótt og þeir komu þá fóru þeir aftur og skildu staðinn okkar eftir eins og hálfgert sprengjusvæði. Ég veit ekki hvað það eru margar byggingar og háhýsi hálf- kláruð og allt í rúst. Ástæðan er að veðmál á netinu höfðu verið leyfð en síðan ákvað forsætisráðherrann að banna þá starfsemi og þá fóru allir og ákváðu að skilja allt eftir, allar glæsikerrurnar og bara allt. Það stendur til dæmis Rolls Royce hérna fyrir utan hótelið hjá okkur og hefur verið hér í marga mánuði.“ – Og þið búið bara á hóteli? „Við búum á hóteli sem er lokað. Þetta er nýtt lúxushótel og við erum bara fjögur sem búum hérna og erum að passa hótelið fyrir vin vinar okkar. Þetta er svolítið eins og í kvikmyndinni Shining. Það er þyrlu- pallur uppi á þaki, danssalir og þetta er allt mjög skrítið. Það eru fjórar sundlaugar og tvær uppi á þaki. Svo erum við bókstaf- lega á ströndinni. Ég opna hurðina, labba yfir götuna og þá er ég kominn á sandinn á ströndinni.“ – Hvernig er veðrið þarna? „Núna er heitasti tími ársins. Appið segir mér núna að það sé 32 stiga hiti. Það er svo rakt hérna að það er ólíft á milli klukkan níu á morgnana og til hálf fjögur á daginn.“ – Og hvað gerir þú á þeim tíma? „Ég nota hann til að skrifa. Svo er ég einnig að læra kínversku í gegnum YouTube. Ég er komin með kambódískuna svo til í lagi. Ég er líka að læra Taekwondo og box á strönd- inni og er með þjálfara.“ Ég og kærasti minn bjuggum í New York en fyrir fimm árum ákváðum við að fara að ferðast og leita okkur að stað þar sem við gætum haft sumarhús. Við fórum í þriggja mánaða ferðalag og fórum til Balí, Tælands, Vietnam, Laos og enduðum í Kambódíu ... 58 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.