Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Qupperneq 60

Víkurfréttir - 15.07.2020, Qupperneq 60
inga sem m.a voru að vinna fyrir Mars og McVitie's. Nú er tími til að hjálpa öðrum og hugsa minna um sjálfan sig. Ég hef það gott þannig séð en maður sér fólkið hérna í kringum sig missa vinnuna því það vantar ferðamennina. Hót- elin eru lokuð og allt fólkið sem er að vinna þar við þrif og fólkið á veitingastöðunum er búið að missa vinnuna. Þetta fólk á fullt af börnum og við erum að reyna að hjálpa þeim.“ – En hvernig gengur að nálgast nauðsynjar? Er nóg til í búð- unum? „Nefnilega ekki sko. Þetta er lítið þorp þar sem við erum og við erum alveg yst í þorpinu. Það eru nokkrar búðir í þorpinu sem ég fer í á mótorhjólinu og þar get ég keypt nauðsynjavörur eins og tannkrem en eftir að Kínverjarnir komu þá var hætt að selja allar vesturland- avörur eins og skinku, ost og brauð. Nú er bara hægt að kaupa soya- sósur, núðlur og eitthvað kínverskt sem við vitum varla hvað er.“ Kristín Bára segir að 95% af vesturlandabúunum sem bjuggu í þorpinu séu farnir og þau séu bara nokkur eftir. Ástæðan fyrir því að þau eru ekki farin er að þau elska ströndina. „Þetta er æðisleg strönd hérna og okkur líður vel – og að vera með þetta hótel útaf fyrir okkur er alveg klikkað.“ – Hversu stórt og mikið er þetta hótel? „Þetta er þriggja hæða hótel en öll herbergin eru risaherbergi og það eru því bara 50 herbergi á hótelinu. Svo eru þaksvalir, þyrlupallur og sundlaugar.“ Og þegar við ræddum við Kristínu Báru um hótelið þá hrópar hún skyndilega: „Risaeðla!“ og hlær mikið. Myndarleg eðla var komin upp á miðjan vegg hjá henni. „Hvað kallar þú risaeðlu,“ spyr blaða- maður og hún lýsir eðlu sem er um 35 sentimetrar á lengd en segir svo: „Þær halda moskítóflugum í burtu.“ – Og þú ert ekkert á förum, eða hvað? „Nei, mér finnst ég bara vera örugg hérna. Við eru fjögur hérna. Ég og maðurinn minn, einn rússneskur strákur og einn bandarískur strákur sem var læknir í hernum. Það er gott að hafa hann hér og við höfum talað mikið um það að ef eitthvað okkar verður veikt þá er hann búinn að kaupa öll þau lyf sem er mælt með. Hann er meira að segja fær um að gera heima- tilbúna öndunarvél ef út í það er farið,“ segir Kristín Bára og hlær. – Hvað segir þitt fólk heima um þennan flæking á þér? „Ég er 38 ára gömul í dag og ég hef verið með annan fótinn í út- löndum síðan ég var tvítug. Þegar ég var tvítug fór ég með hópi af krökkum til London fyrir Skjá einn til að vinna að atriði í sjón- varpsþátt sem Dóra Takefusa og Björn Jörundur voru með og hét Þátturinn. Svo kom ég heim og fór í kvikmyndskóla en svo er ég alltaf að gera eitthvað nýtt og ferðast um heiminn og njóta lífsins“ segir Kristín Bára Haraldsdóttir í Kambódíu. Núna er heitasti tími ársins. Appið segir mér núna að það sé 32 stiga hiti. Það er svo rakt hérna að það er ólíft á milli klukkan níu á morgnana og til hálf fjögur á daginn ... Kristín Bára býr á lúxushóteli við ströndina. Hótelið er með 50 herbergjum, sundlaugar og þyrlupall á þakinu og handan götunnar er hvít ströndin. Hér má sjá mynd af hótelinu og vinnuvélar fyrir framan það. Í baksýn má sjá hálfbyggð háhýsi sem Kínverjar voru byrjaðir að byggja á svæðinu en jafn hratt og þeir komu þá fóru þeir einnig hratt af svæðinu eftir að áform breyttust. 60 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.