Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 68

Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 68
Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir og Ágúst Ágústsson eru nágrannar Þorsteins Bjarnasonar og Kristjönu Héðinsdóttur og hafa vinahjónin leyft vinum sínum á Facebook að fylgjast með fjörinu á staurnum á tímum COVID-19. Ragn- heiður setti nýlega söguna á bak við matarstaur- inn og hún er vægast sagt mjög skemmtileg. Þegar við fluttum í húsið okkar höfðu önnur hjón keypt hinn helm- inginn. Ýmislegt var ófrágengið eins og vill gerast með nýleg hús og eitt af því var bílaplanið. Nágrannakonan var ákveðin í því að það þyrfti að koma landa- mæraveggur á miðju bílaplaninu þ.e. frá húsi og u.þ.b. 1,5 metra út frá því eins og væri á öllum hinum húsunum. Þetta var samþykkt og staurinn því settur niður um leið og var hellulagt. Svo kom haustið og veturinn og þessir nágrannar voru orðnir góðir vinir okkar. Við komumst fljótt að því að það var gott að geta labbað þurrum fótum undir þakskegginu í stað þess að fara út fyrir landamæravegg og lenda í bleytu eða snjó þannig að það var tekin ný ákvörðun um að reisa ekki umræddan vegg. Síðan er liðinn góður áratugur og staurinn er þarna, ekki til neinnar prýði og lítils gagn..... eða þar til núna að hann öðlaðist nýtt hlut- verk sem hefur vakið nokkra at- hygli. Við vinirnir gerðum það af og til að borða saman en svo kom COVID-19 og þá kom upp sú staða, vinnunnar vegna, að ég og hús- bóndinn á hinu heimilinu máttum ekki hittast mikið því við vorum á sitt hvorri vaktinni þar. Einn daginn hringir nágranna- konan í mig og segist vera að elda ljúffengan lambapottrétt og hún ætli að setja hann við dyrnar og dingla bjöllunni. Næsta dag fannst mér ég verða að launa greiðan og þá kviknaði þessi hugmynd, sem Gústi fram- kvæmdi snarlega að setja plötu á staurinn og réttlæta þannig tilveru hans. Þarna var kominn fínasti staður fyrir matargleðina okkar. Eins og þið hafið séð þá hefur staurinn verið miðpunktur mik- illar gleði síðustu vikur og verður áfram til 4. maí. Nokkrum sinnum í viku höfum við skipst á að setja kvöldmatinn á staurinn og upp á síðkastið meira að segja útfært kokteilboð þarna úti eftir að sólin fór að skína. Matarafhendingarstaurinn fæst í Byko en ég er ekki viss um að þeir geti tryggt svona góða nágranna með í pakkanum. :-) ... og þá þekkið þið, sem nenntuð að lesa alla langlokuna, söguna um staurinn. Sagan af staurnum Eins og sjá má á myndunum er stemmningin góð við matarstaurinn. 68 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.