Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 70

Víkurfréttir - 15.07.2020, Síða 70
B rynja Bjarnadóttir er hjúkrunarfræðingur og starfar á slysa- og bráðamóttökunni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún fór til Nepal í byrjun mars til að stunda framhaldsnám í jóga- kennslu. Þegar Brynja fór út var aðeins eitt nýgreint COVID-19 til- felli á Íslandi. „Mig grunaði aldrei á þeim tíma að ástandið yrði svona ofboðslega slæmt og veiran myndi breiðast hratt út,“ segir hún í samtali við Víkurfréttir. Hátt uppí Himalaya- fjöllum með mjög takmarkað net- samband og ákveðin að vera lítið sem ekkert í símanum fyrir komu sína þangað þá fann Brynja þörfina fyrir að heyra mjög reglulega í fólkinu sínu heima í ljósi aðstæðna. Brynja hefur tekið saman frásögn af ferðalaginu til Nepal og þeim ævintýrum sem hún lenti í við að komast aftur heim til Íslands. Sög- unni deilir hún hér með lesendum Víkurfrétta. Hlutirnir breyttust hratt og engra kosta völ Í ósýktu landi á þeim tíma voru miklar ráðstafanir varðandi fyrir- byggjandi aðgerðir. Af öllum fimm flugunum sem ég tók frá Íslandi og í gegnum fimm flugvelli á leið til Nepal þá var Nepal eina landið þar sem ég var hitamæld um leið og ég gekk frá borði. Rúmlega tveimur til þremur vikum eftir að ég lenti var tekin sú ákvörðun af ríkisstjórn Nepal að lokað yrði fyrir öll flug til landsins. Á svipuðum tíma lokaði Indland sem þýddi að við mætti búast að matur yrði af skornum skammti. Fréttirnar sem komu svo í kjölfarið voru að Nepal ætlaði að loka fyrir flug til landsins í tíu daga og því banni yrði aflétt 31. mars. Bannið skall á og við enn í Pokhara. Dagarnir liðu og hlutirnir breyttust hratt, banninu var svo framlengt til um miðjan apríl. Bæði kennarar og nemendur jóganámsins fengu boð frá sinni ríkisstjórn að best væri að halda heim og sömuleiðis ég. Við áttum engra kosta völ. Annars yrðum við föst í Nepal næstu mán- uðina þar sem þjónusta lægi niðri, matur af skornum skammti og að- gang að ásættanlegri heilbrigðis- þjónustu væri erfitt að fá. Á sama tíma var hugsað til heimamanna sem mögulega myndu þurfa hana miklu frekar en við. Strandaglópar í orðsins fyllstu merkingu Það var hægara sagt en gert að skipuleggja heimför. Í þrjá daga vorum við eins og lítil skrifstofa að finna leið út úr Nepal. Þarna var búið að banna allar samgöngur og þú máttir alls ekki fara út úr húsi nema að vera með sérstakt leyfi. Við vorum strandaglópar í orðsins fyllstu merkingu. Á þriðja degi, eftir að vera búin að hafa samband við öll utanríkisráðuneyti sem við höfðum aðgang að á þeim tíma: Íslands, Þýskalands, Austurríkis og Frakklands, með litlum árangri um hvernig hægt væri að komast í burtu þá fóru hlutirnir að ganga upp. Bæði Þýskaland og Frakk- land ætluðu að senda neyðarflug til að sækja sitt fólk sem var fast í Nepal. Flugin færu frá Kathmandu til Doha og þaðan til Frankfurt eða Parísar. Þetta voru miklar gleðifréttir. Núna var bara að komast til Kat- hmandu, það var klárlega erfiðasti parturinn af þessu öllu saman. Það var enginn viljugur að koma okkur þangað þar sem erfitt var að fá leyfi til að ferðast frá Pokhara til Kathmandu. Við höfðum fengið sent leyfisbréf frá okkar löndum. En það veitti eingöngu leyfi til að fara fótgangandi. Leyfið sem okkur vantaði þurfti að innihalda nafn Brynja Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur, fór í framhaldsnám í jógakennslu til Nepal og var þar þegar landið lokaðist vegna COVID-19. Brynja tók saman ferðasögu um heimferðina. Ævintýraför frá Nepal til Íslands 70 // víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.