Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 77
Elva Sif Grétarsdóttir býr með fjölskyldu sinni á
Malaga á Spáni og á Íslandi þar sem þau reyna
að skipta sér jafnt á milli landa. Elva Sif er gift
spænskum listamanni sem heitir Victor og þau eiga
þrjár stelpur, Klöru Sif sem er þrettán ára, Grétu
Líf tíu ára og Bríeti Erlu sem er þriggja ára.
„Sú stutta heldur uppi lífi og fjöri
alla daga,“ segir Elva Sif í samtali
við Víkurfréttir.
Fjölskyldan býr á Benalmadena
á Costa del Sol, sem er um tuttugu
mínútur frá flugvellinum á Malaga.
Fallegur og rólegur bær miðað við
Spán.
„Maðurinn minn rekur fyrirtæki
með systkinum sínum en þau eru
með leiguhúsnæði til leigu hér.
Ég vinn heima við þýðingar og
þegar ég er á Íslandi reyni ég að
vera í forfallakennslu í Heiðar-
skóla. Ég er með B.ED próf frá
menntavísindasviði Háskóla Ís-
lands og finnst gaman að hoppa
inn í skólann.“
Snilldarhugmynd
mömmu
– Hvernig stóð á því að þú
fluttir til útlanda?
„Ég reyndi að komast inn í leik-
listaskóla á Íslandi og erlendis sem
gekk ekki og þá fékk mamma mín
þessa líka snilldarhugmynd að ég
ætti nú bara að fara til Malaga í
þriggja mánaða spænskunám, taka
mér smá pásu. Sú pása varð ansi
löng.“
– Var erfið ákvörðun að söðla
um og flytja í annað land?
„Ég ákvað eiginlega aldrei að vera
á Spáni, þetta bara gerðist. Eins
og ég segi þá var ég alltaf að fara í
stuttan tíma í senn sem varð alltaf
lengri og lengri. Svo bara allt í einu
er komið 2020 og ég gift, þriggja
barna móðir á Spáni. En síðustu
þrettán ár höfum við stelpurnar
alla vega verið mjög mikið á Íslandi
og núna til seinni ára er maðurinn
minn yfirleitt með okkur þar sem
hann er með aðstöðu hjá Íslensk
Grafík í Reykjavík og hefur haldið
ýmis námskeið í grafískri list og
þrykkingu.
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
„Já, ég sakna alltaf Íslands þegar
ég er ekki þar. Öll mín fjölskylda
á heima á Íslandi og öryggið sem
maður finnur á Íslandi er mjög
sjaldgæft, held ég. Sérstaklega
þegar maður er búin að eignast
börn þá sér maður hvað það er
gott að vera á Íslandi, öryggi og
utanumhald er mjög gott. Til
dæmis þegar við erum að fara til
Íslands þá erum við að „FARA
HEIM“ en þegar við förum aftur
til Spánar þá erum við að „FARA
TIL SPÁNAR“. Dætur mínar una
sér mjög vel á Íslandi, eiga frábærar
vinkonur og elska íslenskt sumar
og íslensk jól. Þetta frelsi sem börn
hafa til dæmis á sumrin á Íslandi
er ekki til staðar á Spáni. Hér fara
þær ekki einu sinni einar labbandi
í skólann eða til vinkonu. Á Íslandi
eru þær úti allan daginn á hjóli eða
hjá vinkonum.“
– Er eitthvað framandi sem
hefur komið þér á óvart þar
sem þú býrð núna?
„Fyrst fór margt alveg svakalega í
taugarnar á mér á Spáni. Þetta er
mikil karlrembuþjóð þó svo það
hafi breyst alveg svakalega síðan
ég kom hingað fyrst. Mér fannst
til dæmis alltaf mjög óþægilegt að
labba fram hjá byggingarlóðum, þá
var allt leyfilegt og alltaf kallað á
eftir manni einhverskonar „hrós-
yrði“ sem voru kannski ekki alltaf
við hæfi. Þetta hefur breyst mjög
mikið og eiginlega bara hætt.
Fleira sem mér finnst furðulegt
hér er að það er ekki móðgun að
einhver segi þér að þú hafir fitnað,
það er bara eðlilegur hlutur. Í dag
er ég nú samt orðin ansi sjóuð í
þessari menningu en ég viðurkenni
það alveg að ég er mikill Íslend-
ingur og þarf oft að bíta í tunguna
á mér þegar kemur að menntun,
uppeldi og öðru. Annars reynir
maður bara að halda sig á mott-
unni, maður breytir svo sem engu
með því að vera að ergja sig.“
Eins og ég segi þá var ég alltaf að fara í
stuttan tíma í senn sem varð alltaf lengri og
lengri. Svo bara allt í einu er komið 2020
og ég gift, þriggja barna móðir á Spáni ...
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 77