Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 83
stjórnandi og kenni við Guildhall innan tón-
listardeildarinnar,“ segir Sigrún í samtali við
Víkurfréttir.
Hún hefur sérmenntun og yfir tuttugu ára
reynslu í því að stýra skapandi tónlistar-
verkefnum við hinar ýmsu samfélagslegu
aðstæður. „Markmiðið með verkefnunum
er að veita fólki tækifæri til þess að semja
saman nýja tónlist og öðlast með því lífs-
fyllingu, aukið sjálfstraust, tengingu við ná-
ungann og nærsamfélagið, auk þess að eiga
jákvæðar, fallegar og skemmtilegar sam-
verustundir. Því ef okkur líður vel, höfum
rödd og á okkur er hlustað, eru mun meiri
líkur á því að við finnum tilgang í lífinu,
orku til þess að takast á við erfiðleika og
tökum jákvæðari ákvarðanir,“ segir hún.
Vinnur með heimilislausu fólki
Sigrún kennir sitt fag við Guildhall en jafn-
framt vinnur hún sjálfstætt fyrir listastofn-
anir á alþjóðlega vísu, auk þess sem hún er
fengin sem gestakennari við tónlistarhá-
skóla um allan heim, þar á meðal Listahá-
skóla Íslands.
„Í júní 2019 setti ég á stofn nýtt fyrirtæki,
svokallað Community Interest Company
(sem er óhagnaðardrifið), þar sem ég vinn
með heimilislausu fólki og fólki sem er að
byggja sig upp eftir ýmiss konar áföll og
erfiðleika í lífinu. Fyrirtækið mitt heitir
Metamor Phonics og gengur út á að stofna
hljómsveitir sem semja og flytja sína eigin,
frumsömdu tónlist. Núna, tíu mánuðum
síðar, stýri ég tveimur hljómsveitum
í London, einni í Leicester, einni í Los
Angeles og þremur á Íslandi í samstarfi við
Starfsendurhæfingastöðvar á suðvestur-
horninu“.
Í Reykjanesbæ stýrir Sigrún hljómsveit
sem ber nafnið 360°. Hún er rekin í sam-
starfi við Samvinnu á Suðurnesjum og var
fyrsta hljómsveitin sem hún stofnaði hér á
landi og nú hafa starfsendurhæfingastöðvar
í Hafnafirði og á Akranesi fylgt í kjölfarið.
Súperspennandi verkefni sem á
erindi til heimsbyggðarinnar
„Hugmyndin er að þessar hljómsveitir bjóði
þremur til fjórum einstaklingum frá hverri
sveit að taka þátt í nýrri „súperhljómsveit“
sem sett verður á stofn í nóvember 2020.
Sú hljómsveit verður starfrækt í samstarfi
við Listaháskóla Íslands, Sinfóníuhljómsveit
Íslands og Tónlistarborgina Reykjavík. Við
erum með tónleikadag bókaðan í Norður-
ljósum í Hörpu í maí 2021, svo nú er eins
gott að COVID-19 fari að haga sér vel svo
við getum haldið fyrri plönum,“ segir Sigrún
og bætir við: „Nú í miðju útgöngubanni hér
í Bretlandi gerðist nokkuð mjög spennandi
en hljómsveitin sem ég stýri með Guildhall-
nemendum og fólki sem hefur verið heim-
ilislaust í London, The Messengers, gaf út
sína fyrstu plötu. Þetta er ótrúlegt afrek út
frá mörgum sjónarhornum en öll tónlistin á
plötunni er samin af hljómsveitinni í heild.
Það eitt og sér er áhugavert en þegar litið
er til þess að helmingur hljómsveitarinnar
hefur á einhverjum tímapunkti búið á göt-
unni, þá er þetta stórmerkilegt. Svo þegar
við skoðum að tónlistin er hrikalega flott,
lögin falleg og vel flutt, þá erum við bara
komin með súperspennandi verkefni sem
á erindi til heimsbyggðarinnar.“
Platan heitir Bear Witness og er hægt að
kaupa hana rafræna á Bandcamp, Spotify
og iTunes og svo er líka hægt að kaupa smá-
skífu á Qrates.
Búið nánast öll
fullorðinsárin í London
Sigrún hefur búið í London nánast öll sín
fullorðinsár. Við spurðum hana hvort hún
sakni einhvers frá Íslandi. „Ég var rétt rúm-
lega tvítug þegar ég flutti út og var orðin
gift kona og stjúpmóðir þriggja yndislegra
dætra tveimur árum síðar. Því má segja að
ég hafi byggt mitt líf í Englandi en þrátt
fyrir að hafa búið erlendis í rúm 22 ár hef
ég alltaf haldið tengingunni til Íslands og er
hálfpartinn búin að búa mér til umhverfi
þar sem ég er virk á báðum stöðum. Þegar
ég hlusta á útvarpið er það nánast alltaf ís-
lenskar stöðvar. Ég hlusta á morgunútvarp
Rásar 2 á hverjum einasta virkum morgni
og það er í bakgrunninum þegar fjölskyldan
H
ilm
ar Bragi Bárðarson
hilm
ar@
vf.is
... þar sem ég vinn með
heimilislausu fólki og fólki
sem er að byggja sig upp eftir
ýmiss konar áföll og erfiðleika
í lífinu. Fyrirtækið mitt heitir
MetamorPhonics og gengur
út á að stofna hljómsveitir
sem semja og flytja sína
eigin, frumsömdu tónlist ...
Sigrún að stjórna The Messengers, hljómsveitinni
sem hún stýrir með Guildhall-nemendum og
fólki sem hefur verið heimilislaust í London.
Þetta eru nokkrir meðlimir
The Trailblazers, hljómsveitarinnar sem
Sigrún stofnaði í Los Angeles 2018.
Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg.
víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 83