Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 95

Víkurfréttir - 15.07.2020, Side 95
bleikju. Kviðpokaseiði eru flutt í seiðastöðina frá klakstöð fyrir- tækisins að Núpum í Ölfusi. Seiðin eru alin í seiðastöðinni í tíu til tólf mánuði, eða þangað til þau hafa náð 100 gr. að stærð. Þá eru þau flutt úr seiðastöðinni yfir í áfram- eldið sem er utandyra í kerjum á landi. Þegar fiskur nær tilskilinni stærð er hann svo fluttur lifandi í sérútbúnum tankbílum til slátr- unar og vinnslu í Sandgerði. Það er Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sem sér um boranirnar á nýju sjóholunum og þær hafa gengið vel þrátt fyrir að þurft hafi að breyta verklaginu vegna núver- andi ástands. Framkvæmdir eru langt komnar og á þeim að ljúka með virkjun nýrra hola fyrir lok júní næstkomandi. Eykur afköstin „Þetta mun auka afkastagetu fisk- eldisstöðvarinnar umtalsvert en þetta er mikið vatnsmagn sem við erum að dæla. Þegar fram- kvæmdum lýkur mun stöðin geta dælt tveimur og hálfum rúmmetra af vatni á sekúndu,“ segir Hjalti Bogason, rekstrarstjóri Samherja fiskeldis á Suðurnesjum, á heima- síðu Samherja. Nýlega fékk fisk- eldisstöðin að Stað stækkun á rekstrarleyfi sínu í 3.000 tonn og félagið er að auki með 1.600 tonna leyfi að Vatnsleysu. Að sögn Hjalta mun fiskeldið á Suðurnesjum geta framleitt tæplega 4.000 tonn af bleikju þegar þessum hluta fram- kvæmdanna lýkur. Tuga milljarða útflutingsverðmæti Samherji fiskeldi er stærsti fram- leiðandi bleikju í heiminum með um 3.800 tonn árlega en það er tæplega helmingur allrar eldisbleikju sem er framleidd á heimsvísu. Radarinn, mælaborð sjávarútvegsins sem rekið er af SFS, greindi nýlega frá því að útflutningsverðmæti eldisaf- urða hafi verið 25 milljarðar króna á síðasta ári. Það er 90% aukning frá fyrra ári og hefur útflutningsverð- mætið aldrei verið meira. Hjalti Bogason rekstrarstjóri Samherja fiskeldis á Suðurnesjum. Páll Ketilsson pket@vf.is 1000 Mb/sek og 15 stjónvarpsstöðvar innifaldar „Ég er með (GÍG) 1000 mb/sek uppi á Ásbrú“ frá 10.590 kr/mán Eydís Konráðsdóttir hefur búið í Sydney í Ástralíu síðan 2004 25 metra hraunveggir í Lambafellsgjá Útivist á Suðurnesjum plötur BJÖRGVINS ÍVARS5 upp áhalds Helmingur eldisbleikju í heiminum frá Suðurnesjum Lærði margt um sjálfa sig Súrdeigsbakstur og hunda- þjálfun í kórónuveirufarald ri Úr bókunarþjónustu í barnabókaútgáfu BRUGÐUST VIÐ ALGERU ST OPPI Í REKSTRI Fljótur að segja já við flutningum til útlanda EYÞÓR ATLI ÚR GRINDAVÍK KAREN GUÐNA FLUTTI TIL DANMERKUR Guðbjörg og Viðar búa á Gran Canaria hálft árið Sama veðrið allt árið Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbL. // 41. árg. YFIR 1.000 RAFRÆNAR SÍÐUR Þetta viðtal birtist áður í 20. tölublaði Víkurfrétta 2020. Smelltu á forsíðuna til að sjá allt blaðið! Miðvikudagur 15. júlí 2020 // 28. tbl. // 41. árg. víkurFrÉttir á SuðurNESjuM í 40 ár // 95

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.